Fréttablaðið - 02.03.2012, Blaðsíða 18
18 2. mars 2012 FÖSTUDAGUR
FRÁ DEGI TIL DAGS
greinar@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
M
örg stór orð hafa fallið um deilur Gunnars Andersen,
forstjóra Fjármálaeftirlitsins, og stjórnar stofnun-
arinnar undanfarnar vikur. Óhætt er að segja að
stjórnin hafi staðið höllum fæti í umræðunni, enda
verið tregari til að tjá sig en forstjórinn.
Það virðist hafa villt mörgum sýn að Gunnar Andersen hefur
verið í því hlutverki að taka í lurginn á fyrrverandi undrabörnum
og útrásarvíkingum, sem grunaðir eru um lögbrot. Því hlutverki
hefur hann sinnt vel, en það þýðir ekki að hans eigin gjörðir séu
hafnar yfir skoðun eða gagnrýni.
Það er ekki rétt hjá forstjóran-
um að stjórn FME hafi reynt að
losna við hann að tilefnislausu.
Gögn málsins sýna að Gunnar
tók þátt í því, sem starfsmaður
ríkisbankans Landsbankans árið
2001, að leyna fyrir FME tilvist
tveggja aflandsfélaga þar sem
hann sat í stjórn og tengdust bankanum. Tilgangurinn með félög-
unum var að hafa með leynd áhrif á efnahagsreikning bankans.
Að gefa FME rangar upplýsingar er refsivert og sá sem í dag yrði
uppvís að slíku gæti ekki orðið forstjóri fjármálafyrirtækis, hvað
þá FME. Gunnar heldur fram að FME hafi ráðlagt honum að segja
ekki frá félögunum. Engin gögn styðja þær fullyrðingar. Hann
viðurkennir að hafa ekki veitt upplýsingarnar, en sér ekkert að því.
Þess vegna er það rétt sem stjórn FME segir, að hæfi og
trúverðug leiki forstjórans og þar með eftirlitsins er ekki hafið
yfir vafa. Forstjórinn getur þurft að taka á sambærilegum málum.
Þegar þessar upplýsingar voru komnar fram hefðu sumir embættis-
menn – að minnsta kosti í útlöndum – bara sagt af sér að fyrra
bragði.
Í hina hörðu umræðu um aðför stjórnarinnar að Gunnari vantar
líka einhverja trúverðuga skýringu á því af hverju stjórnin hefði
átt að ganga erinda þeirra sem eru í rannsókn hjá FME. Stjórnin
stóð þvert á móti með Gunnari framan af, þegar gögn komu fram
um tengsl hans við aflandsfélögin. Hún ákvað sömuleiðis að senda
þau mörgu mál, sem forstjórinn lagði fyrir hana, til saksóknara.
Stjórn FME kann hins vegar að vera í vandræðum vegna þess að
hún hafi farið á svig við lögin um réttindi og skyldur ríkisstarfs-
manna, sem gera ókleift að reka embættismann án undanfarandi
áminningar. Þau lög eru reyndar úr sér gengin og gera alla starfs-
mannastjórnun hjá ríkinu þunga í vöfum. Það breytir ekki því að
þau eru landslög og ekki er ósennilegt að Gunnar geti sótt skaða-
bætur fyrir dómi vegna ólögmætrar uppsagnar.
Engu að síður er trúverðugleiki FME til framtíðar betur tryggður
með þeirri niðurstöðu sem tilkynnt var í gær en ef stjórnin hefði
tekið þá afkáralegu ákvörðun að áminna forstjórann og halda svo
áfram að vinna með honum eins og ekkert hefði í skorizt.
Yfirlýsingar lögmanns Gunnars fyrir hans hönd í fréttatilkynn-
ingu í gær um „sorgardag“, „Sovét-Ísland“, og að nú hafi Gamla
Ísland sigrað Nýja Ísland eru fram úr hófi dramatískar og ekki trú-
verðugar. Stjórn FME virðist einmitt hafa ákveðið að taka slaginn
í þágu Nýja Íslands, með því að tryggja að trúverðugleiki þeirra
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Atli Fannar Bjarkason (dægurmál) atlifannar@frettabladid.is
HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is
ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
HALLDÓR
Ólafur Þ.
Stephensen
olafur@frettabladid.is
SKOÐUN
Helgi Hjörvar alþingismaður er hálf-drættingur á við Kristján Þór
Júlíusson, þingmann Sjálfstæðisflokks-
ins, þegar kemur að uppboðsmarkaði á
skattfé almennings. Hann telur sig af
þeim sökum hófsemdarmann og tillögur
sínar sáttatilboð. Þetta er alvarlegur mis-
skilningur. Tillagan er róttæk, breytir
leikreglum eftir á, ógildir bindandi samn-
inga og gerir eignir upptækar á kostnað
ríkissjóðs. Tillaga Helga færir afmörk-
uðum hópi íbúðakaupenda 100 millj-
arða króna og ætlar skattgreiðendum að
greiða reikninginn.
Þessi fjárhæð er tvöfalt hærri en það
sem ríkið leggur árlega til almannatrygg-
ingakerfisins. Hún er þrisvar sinnum
hærri en kostnaðurinn við rekstur Land-
spítalans. Þar sem ríkið verður að skera
niður útgjöld til þess að eiga fyrir sátt
Helga Hjörvar munu aldraðir og sjúkir
greiða þennan reikning. Ellilífeyrir verð-
ur skertur og dregið úr þjónustu hins
opinbera bæði nú og í framtíðinni.
Þeir sem eiga rétt á þessari þjónustu
og munu þurfa á henni að halda á næstu
árum hafa spilað eftir leikreglunum í
þjóðfélaginu, greitt sína skatta, keypt sér
húsnæði og virt þá samninga sem þeir
hafa gert. Opinber gögn benda til þess
að hópurinn sem keypti í eignabólunni,
og sem Helgi vill gefa skattféð, sé vel
menntaður, með góðar tekjur, á fertugs-
aldri og hafi ekki verið að kaupa sína
fyrstu íbúð. Því er líklegt að flestir hafi
selt íbúð á uppsprengdu verði og haft
verulegan hagnað.
Gangi eftir tillögur Helga Hjörvar og
fleiri verður hagnaðurinn einkavæddur
en tapið sent á skattgreiðendur.
Gylfi Magnússon, fyrrverandi ráð-
herra, skrifaði fyrir nokkrum dögum
grein í Fréttablaðið og setti fram sínar
hugmyndir til lausnar. Þær voru raun-
hæfar og tóku mið af því sem áður hefur
verið gert við svipaðar aðstæður. Gylfi
leggur til að þeir sem keyptu sína fyrstu
íbúð í eignabólunni á fasteignamarkað-
inum fái á næstu árum ríkisaðstoð í
gegnum vaxtabótakerfið. Það má kalla
sanngjarnt þar sem þeir fengu engan
eignabóluhagnað en báru fullan kostn-
að af háu íbúðaverði. Tillögur Gylfa eru
miklu frekar sáttatilboð en þjóðnýting
Helga Hjörvar fyrir fáa útvalda. Megin-
reglan verður að vera að ábyrgðin af við-
skiptum hvíli aðeins á þeim sem eiga í
viðskiptum.
Milljarða atkvæðareikningur
Fjármál
Kristinn H.
Gunnarsson
fv. alþingismaður
Forstjóri Fjármálaeftirlitsins látinn víkja:
Nýja eða
gamla Ísland?
aðeins fram á sunnudag
Lagerútsala!
30-70%
afsláttur
Bak við Holtagarða!!
Andersen-lykillinn
Það er leiðinlegt þegar menn dylgja
um annað fólk. Nú má vera að
voldugir menn hafi síðustu daga og
vikur farið óskaplega illa með Gunnar
Þ. Andersen – hrakið hann úr starfi og
kært til lögreglu fyrir engar sakir. Hann
segist raunar sjálfur, í mergjaðri og
makalausri yfirlýsingu í gær, ætla að
gera grein fyrir sinni „heild-
stæðu sýn“ á stríð sitt við
stjórn FME á næstu dögum.
Vonandi lukkast honum
það vel. En þangað til ætti
hann að láta hálfkveðnar
vísur á borð við þessa eiga
sig: „Alltaf er slæmt þegar
stigið er á tær, einkum
þær sem tengjast bæði peningavaldi
og pólitík. Það skyldi þó aldrei vera
að í sjálfri kærunni sé að finna lykilinn
að lausn gátunnar um raunverulegar
ástæður tafarlauss brottrekstrar.“ Þetta
er eins og úr lélegri bók eftir Dan
Brown og enginn er neinu nær.
Traustið
Að sama skapi væri stjórn FME réttast
að upplýsa almenning – eigendur
stofnunarinnar – í smáatriðum um
það hvað forstjóri hennar er grun-
aður um að hafa gert af sér. Þangað
til er tal stjórnarformannsins um
að hann vilji auka traust
á stofnunina bara
hjóm.
Segðu það eða þegiðu
Annar sem dylgjar er Glúmur Baldvins-
son. Hann ber hönd fyrir höfuð föður
síns, Jóns Baldvins Hannibalssonar,
í samtali við Pressuna. „Ef rétt er, að
frænka hafi fengið greitt fyrir viðtalið,
þá vona ég, hennar vegna, að hún hafi
samið um prósentur af sölu,“ segir
Glúmur, og vísar til Guðrúnar
Harðardóttur, sem sagði
frá blautlegum bréfum
Jóns í Nýju lífi í fyrri viku.
Veit Glúmur til þess að
hún hafi fengið greitt?
Ef svo er á hann að segja
það, en þegja ella.
stigur@frettabladid.is