Fréttablaðið - 02.03.2012, Blaðsíða 44
2. mars 2012 FÖSTUDAGUR24
timamot@frettabladid.is
Í kvöld fagnar fyrrverandi og núverandi starfsfólk Sam-
bíóanna þrjátíu ára afmæli fyrirtækisins með því að blása
til veislu á Grand Hóteli. Þar verður að sjálfsögðu Árni
Samúelsson, sem opnaði Bíóhöllina, forvera Sambíóanna,
á þessum degi árið 1982. „Það er alveg makalaust hvað
þetta er búið að vera fljótt að líða,“ segir Árni, þegar hann
er beðinn um að líta yfir farinn veg. „En svoleiðis er það
líka alltaf þegar gaman er í vinnunni,“ bætir hann við.
Árni segir að margir hafi álitið það óðs manns æði að
opna Bíóhöllina í óðaverðbólgu ársins 1982. Það hafi hins
vegar verið óþarfar áhyggjur, enda hafi bíóhúsinu í Álfa-
bakka verið tekið fagnandi þá og sé enn í dag geysivinsælt
meðal bíóunnenda. „Það var heil kynslóð sem ólst upp við
það að koma hingað í Álfabakkann í bíó, á árunum 1982
til 1992. Margir þeirra koma enn þá alltaf hingað,“ segir
hann. Í dag eru Sambíóin þó orðin sex, en auk Álfabakka
er þau að finna í Kringlunni, Egilshöll, á Selfossi, Akur-
eyri og í Keflavík.
Sjálfur segist Árni velja að horfa á bíó í Álfabakkanum
eða í Egilshöll, sem hann fullyrðir að sé með betri bíóhús-
um heims. „Ég er nýkominn frá Los Angeles, sjálfri bíó-
borginni, og eftir þá heimsókn get ég fullyrt að Egilshöll-
in er betri en bíóin í Hollywood í dag. Við erum með þeim
bestu í heiminum hvað varðar tækni og gæði húsa.“
Næst á dagskrá Sambíóanna er að bæta Kringlubíó. „Við
erum nýbúin að endurnýja leigusamning við Kringluna,
svo nú verður látið töluvert fé í breytingar á bíóinu þar.“
- hhs
SAMBÍÓIN: FAGNA 30 ÁRA AFMÆLI
Tíminn flýgur
þegar er gaman
BÍÓKÓNGUR Árni Samúelsson fagnar þrjátíu ára afmæli Sambíóanna
með gömlum og nýjum samstarfsfélögum í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
MIKHAÍL GORBATSJEV fyrrverandi leiðtogi Sovétríkjanna, er 81 árs í dag.
„Markaðurinn varð til við upphaf siðmenningarinnar. Hann er ekki uppfinning kapít-
alismans. Ef hann bætir velferð fólksins er hann ekki í mótsögn við sósíalismann.“
81
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir og amma,
Ásta Elsass Jansen
Malarási 12, Reykjavík,
sem andaðist á Landspítalanum sunnudaginn
26. febrúar, verður jarðsungin frá Árbæjarkirkju
mánudaginn 5. mars kl. 13.00.
Poul Jansen
Stefán Þór Jansen Lilia Jansen
Svend Jansen Barbara Cacciamani
Emma Caterina Jansen
Hjartans þakkir til þeirra fjölmörgu
sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát
Bjarna Þórðarsonar
tryggingastærðfræðings.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á 11 B og 11 G
á Landspítalanum við Hringbraut.
Kristín Guðmundsdóttir
Þórdís Bjarnadóttir Dagur Jónsson
Hildur Bjarnadóttir Hjörtur Hjartarson
Valgerður Bjarnadóttir Þórhallur Ágústsson
Vera, Vaka og Vala
Úlla, Bjarni Orvar og Breki
Kristín Ísold og Ágúst Atli
Viðar Þórðarson, Jóhannes Þórðarson
og Þóra Vala Þórðardóttir.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
systir, amma og langamma,
Guðbjörg Bjarnadóttir
til heimilis að Kársnesbraut 17,
Kópavogi,
lést á líknardeild Landspítalans þann 27. febrúar.
Jarðarförin fer fram frá Kópavogskirkju, mánudaginn
5. mars klukkan 11.00. Við þökkum starfsfólki
Landspítalans góða umönnun.
Hellen S. Helgadóttir Einar Eberhardtsson
Bjarni Helgason Sjöfn Guðmundsdóttir
Eggert Helgason Erla Sverrisdóttir
Bjarni Ellert Bjarnason
Sigríður Bjarnadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Ingólfur Ólafsson
vélstjóri,
frá Grænumýri, Seltjarnarnesi,
lést 29. febrúar á Hrafnistu, Reykjavík.
Árný V. Ingólfsdóttir Kolbeinn Guðmundsson
Sigríður Ingólfsdóttir
Ólafía Ingibjörg Ingólfsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir, systir,
amma, langamma og langalangamma,
Aðalbjörg M.
Jóhannesdóttir
(Alla Magga)
er látin. Jarðarförin mun fara fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Bergur Sverrisson Þórhalla Haraldsdóttir
Margrét Sverrisdóttir Pétur Guðmundsson
Jóhanna Jóhannsdóttir
barnabörn, langömmubörn og langalangömmubörn.
Ástkær sonur okkur og bróðir,
Kristján Pétur
Guðmundsson
Hjallalundi 17f, Akureyri,
lést á Calmette-sjúkrahúsinu í Phnom Penh,
Kambódíu, fimmtudaginn 23. febrúar sl.
Útförin mun fara fram í kyrrþey.Við þökkum af alhug
auðsýnda samúð og vinarhug.
Helga Þóra Kjartansdóttir
Guðmundur Kristjánsson Anna Karin Júlíussen
Hrefna Guðmundsdóttir
Kjartan Guðmundsson Emilía Gunnarsdóttir
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Jódís Jónsdóttir
áður til heimilis á Sléttuvegi 11,
lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund
þriðjudaginn 21. febrúar. Útförin hefur farið fram
í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Valgerður G. Ólafsdóttir
Margrét Ólafsdóttir Már Viðar Másson
Pála Kristín Ólafsdóttir Kristján Björn Ólafsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Svava Eggertsdóttir
frá Haukagili,
til heimilis að Skúlagötu 20, Reykjavík,
lést 18. febrúar á Hornbrekku, heimili aldraðra,
Ólafsfirði. Útför hennar fór fram í kyrrþey.
Bræðrabörn.
Robert (Rab) Christie
Grettisgötu 43 A,
er látinn. Útförin auglýst síðar.
F.h. aðstandenda,
Grainne Morris
Ástkær dóttir okkar, móðir,
tengdamóðir og amma,
Svava S. Hjaltadóttir
lést á Landspítalanum í Fossvogi föstudaginn
24. febrúar. Útförin fór fram í kyrrþey. Við sendum
þakkir til allra sem veittu okkur stuðning og sýndu
okkur hlýhug.
Kristín Björg Svavarsdóttir Hjalti Guðmundsson
Kristín Björg Kristjánsdóttir Bernódus Sveinsson
Ingibjörg Jónasdóttir Jo Berger Myhre
Birna Dröfn Jónasdóttir Sævar Jökull Björnsson
Atli Jónasson Magnea Rut Matthíasdóttir
og fjölskyldur.
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.