Fréttablaðið - 02.03.2012, Side 46
2. mars 2012 FÖSTUDAGUR26
BAKÞANKAR
Sifjar
Sigmars -
dóttur
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Pondus Eftir Frode Overli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
LÁRÉTT
2. samsull, 6. þys, 8. fæðu, 9. gerast,
11. fíngerð líkamshár, 12. sjúga, 14.
steintegund, 16. tveir eins, 17. áþekk,
18. drulla, 20. í röð, 21. fullnægja.
LÓÐRÉTT
1. yndi, 3. kringum, 4. köldusótt,
5. hlóðir, 7. flík, 10. skammstöfun,
13. samræða, 15. gípa, 16. kóf, 19.
holskrúfa.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. gums, 6. ys, 8. mat, 9.
ske, 11. ló, 12. totta, 14. kvars, 16. kk,
17. lík, 18. aur, 20. aá, 21. fróa.
LÓÐRÉTT: 1. lyst, 3. um, 4. malaría,
5. stó, 7. skokkur, 10. etv, 13. tal, 15.
skál, 16. kaf, 19. ró.
Jæja, strákar! Þetta er
liðið, en áður en við
göngum út á völl langar
mig að segja við ykkur
nokkur orð...
Þið verðið að muna nokkur atriði.
Snerpan er mikilvæg, skyndisóknir
og sérstaklega einbeita sér að
góðum sendingum! En það sem er
mikilvægast er...
að hafa
gaman!
Farið út á
völlinn og
skemmtið
ykkur
strákar!
Og ekkert er skemmti-
legra strákar en að jarða
andstæðinginn! Make me
happy!!!
Komdu, Palli. Pabbi
þinn er tilbúinn til að
fara!
Auðvitað verðurðu
að fara.
Þetta væri ekki sumarfrí ef við
værum ekki að neyða þig til að
skemmta þér vel.
Verð ég
að fara?
EF HÆNUR
GÆTU FLOGIÐ.
Solla er að labba um með
Hannes í ól eins og hund.
Ég veit. Hann sest, rúllar sér og sækir prik fyrir
hana.
Kannski ætti ég
að segja þeim
að hætta.
Af hverju? Hannes hefur
ekki verið svona gæfur í
marga mánuði!
Árið 1996 hófst á mánudegi. Íslendingar voru 267.958 að tölu. Bíómiði kostaði
550 krónur. Mánaðaráskrift að Morgun-
blaðinu kostaði 1.700 krónur. Fréttablaðið
var ekki til.
ÁRIÐ 1996 átti Davíð Oddsson eftir að vera
forsætisráðherra í átta ár. Ólafur Skúla-
son var biskup. Jóhanna Sigurðardóttir fór
fyrir Þjóðvaka. Það var herstöð á Miðnes-
heiði. Enn voru sex ár í einkavæðingu bank-
anna. Tólf ár í Hrunið.
ÁRIÐ 1996 var John Major forsætisráð-
herra Bretlands, Yasser Arafat forseti
heimastjórnar Palestínumanna, Helmut
Kohl kanslari Þýskalands. Fimm ár voru í
árásirnar á tvíburaturnana í New York. Sjö
ár í Íraksstríðið.
ÁRIÐ 1996 voru tvö ár liðin frá því Kurt
Cobain fyrirfór sér. Flannelskyrtur og Dr.
Martens skór grunge-tímabilsins tóku að
víkja fyrir míní-pilsum og klumbu-
skóm eins og stúlknabandið Spice
Girls klæddist er þær gáfu út fyrstu
smáskífu sína. Ökklabrot færðust
í aukana. Hár flæktist í burstum
um heim allan er konur reyndu að
öðlast hinn heilaga kaleik: greiðslu
sem bauð þyngdaraflinu birginn
og nefndist „Rachel“ í höfuðið á
persónu eins vinsælasta gaman-
þáttar tímabilsins, Friends. Enn
voru fjögur ár í að Jennifer Aniston sem
lék umrædda Rachel giftist kyntröllinu
Brad Pitt svo hjörtu kvenna með flatara hár
brustu. Níu ár voru í að þau skildu.
ÁRIÐ 1996 rispaði ég stuðarann á Volvón-
um hans pabba, nýkomin með bílpróf. Anna
Mjöll söng Sjúbbídú. Þá fæddist fyrsta klón-
aða spendýrið, kindin Dollý. Fimm ár voru
í að Smáralind opnaði. Google var aðeins
óbreytt rannsóknarverkefni tveggja nörda í
Stanford-háskóla. Fólk var nýhætt að hlusta
á kassettur. Tölvufyrirtækið Apple var á
barmi gjaldþrots og iPod og iPhone voru
aðeins rafmagn milli heilafrumna í höfðinu
á Steve nokkrum Jobs.
ÞEIR sem fæddust árið 1996 hefja nú senn
nám í framhaldsskóla. Þeir sem fjölguðu
mannkyninu árið 1996 mega fara að búa sig
undir rispur á stuðurum bíla sinna.
ÁRIÐ 1996 var Ólafur Ragnar Grímsson
kosinn í embætti forseta Íslands. Hefur
hann setið af sér alla helstu lýðræðislega
kjörnu þjóðarleiðtoga heimsins. Meira að
segja Pútín. Hann hefur séð góðæri koma
og fara, stríð koma og fara, hárið á Jenni-
fer Aniston fletjast út og nú síðast flannel-
skyrtur og Dr. Martens koma aftur í tísku.
Ólafur Ragnar hefur setið af sér heila
tískuhringrás, heilu stjörnuhjónaböndin,
heilu tæknibyltingarnar. Er þetta ekki orðið
gott?
Árið 1996
Var hún kannski ímyndun
þessi eina sanna ást?
Eru ástarsögur ómerkilegt rusl en skvísubækur
raunsönn lýsing á lífi nútímakvenna?
Myndir þú taka þátt í Gay Pride?
Biskupsefnin átta svara spurningum
Fréttablaðsins.
Stórveldi rís í Berlín
Dagur Sigurðsson á stóran þátt í uppgangi Füchse Berlin
sem er orðið eitt besta félagslið Evrópu í handbolta.
Meðal annars efnis: