Fréttablaðið - 02.03.2012, Síða 58

Fréttablaðið - 02.03.2012, Síða 58
2. mars 2012 FÖSTUDAGUR38 sport@frettabladid.is GUNNAR NELSON verður gestur í Boltanum á X-inu 977 í dag. Þátturinn hefst klukkan 11 og viðtalið stuttu síðar. Gunnar keppir í MMA, blönduðum bardagalistum, og gjörsigraði andstæðing sinn í Cage Contender-keppninni í Írlandi um síðustu helgi. Hann er enn ósigraður á ferlinum og hefur gefið til kynna að hann ætli sér enn lengra. N1-deild karla: FH-Fram 29-24 FH - Mörk (skot): Örn Ingi Bjarkason 6 (7), Hjalti Þór Pálmason 6/3 (7/3), Þorkell Magnússon 4 (5/1), Andri Berg Haraldsson 4 (6), Ragnar Jóhannsson 3 (7), Ólafur Gústafsson 3 (10), Hall- dór Guðjónsson 2 (3), Sigurður Ágústsson 1 (1), Varin skot: Pálmar Pétursson 11 (28/1, 39%), Daníel Freyr Andrésson (7/1, 0%), Hraðaupphlaup: 7 (Þorkell 3, Andri 2, Ólafur, Halldór ) Fiskuð víti: 4 ( Ólafur 2, Atli 2) Utan vallar: 8 mínútur. Fram - Mörk (skot): Stefán Baldvin Stefánsson 6 (7), Jóhann Gunnar Einarsson 4 (8), Sigurður Eggertsson 4 (12), Jón Arnar Jónsson 3 (4), Einar Rafn Eiðsson 3/2 (4/2), Halldór Jóhann Sigfússon 2 (3), Ingimundur Ingimundarson 1 (1), Jóhann Karl Reynisson 1 (1). Varin skot: Sebastian Alexandersson 7 (26/2, 27%), Magnús Erlendsson 4/1 (14/2, 29%), Hraðaupphlaup: 5 (Stefán 4, Ingimundur) Fiskuð víti: 2 ( Jóhann, Ægir ) Utan vallar: 4 mínútur. Haukar-Valur 25-25 Haukar - Mörk (skot): Gylfi Gylfason 11/4 (13/4), Tjörvi Þorgeirsson 4 (6), Árni Steinþórsson 3 (3), Freyr Brynjarsson 3 (5), Stefán Sigurmannsson 2 (7), Heimir Heimis. 1 (2), Sveinn Þorgeirs. 1 (5). Varin skot: Birkir Ívar Guðmundsson 14/2 (35/5, 40%), Aron Rafn Eðvarðsson (4/1, 0%), Hraðaupphlaup: 6 (Gylfi 4, Árni, Freyr) Fiskuð víti: 4 ( Árni, Freyr, Heimir, Þórður) Utan vallar: 10 mínútur. Valur - Mörk (skot): Finnur Ingi Stefánsson 7/2 (9/2), Sveinn Aron Sveinsson 4 (7), Valdimar Fannar Þórsson 4 (7), Sturla Ásgeirsson 4/1 (7/2), Magnús Einarsson 2 (2), Orri Freyr Gíslason 2 (2), Sigfús Sigurðsson 1 (1), Anton Rúnarsson 1/1 (6/2), Varin skot: Hlynur Morthens 15 (39/3, 38%), Ingvar K. Guðmundsson (1/1, 0%), Hraðaupphlaup: 5 (Sveinn 2, Sturla 2. Finnur ) Fiskuð víti: 6 (Orri 2, Anton 2, Sturla, Magnús, ) Utan vallar: 4 mínútur. Afturelding-Akureyri 23-28 Mörk Aftureldingar: Jóhann Jóhannsson 6, Böðvar Ásgeirsson 4, Hilmar Stefánsson 3, Jón Helgason 3, Einar Héðinsson 2, Sverrir Hermannsson 2, Þorlákur Sigurjónsson 2, Helgi Héðinsson 1. Mörk Akureyrar: Oddur Grétarsson 7, Geir Guð- mundsson 6, Hörður Fannar Sigþórsson 6, Bjarni Fritzson 4, Guðmundur Hólmar Helgason 2, Heimir Örn Árnason 2, Bergvin Gíslason 1. STAÐAN: Haukar 16 11 1 4 392-352 23 FH 16 10 3 3 427-396 23 Akureyri 16 9 2 5 438-391 20 HK 15 9 1 5 408-381 19 Fram 16 8 1 7 399-406 17 Valur 16 6 4 6 423-402 16 Afturelding 16 3 1 12 371-432 7 Grótta 15 0 1 14 336-431 1 ÚRSLIT IE-deild karla: Tindastóll-Haukar 68-64 Tindastóll: Helgi Rafn Viggósson 19/12 fráköst, Maurice Miller 13/8 fráköst/7 stoðsendingar, Þröstur Leó Jóhannsson 11, Igor Tratnik 8/10 fráköst, Helgi Freyr Margeirsson 8, Hreinn Gunnar Birgisson 5/5 fráköst, Curtis Allen 4/7 fráköst. Haukar: Christopher Smith 20/11 fráköst/5 varin skot, Helgi Björn Einarsson 11, Haukur Óskarsson 9, Alik Joseph-Pauline 9/8 fráköst, Örn Sigurðarson 8/4 fráköst, Emil Barja 3/5 fráköst, Steinar Aronsson 2, Davíð Páll Hermannsson 2. Keflavík-Snæfell 101-100 Keflavík: Magnús Þór Gunnarsson 35/6 fráköst, Charles Michael Parker 25/10 fráköst/7 stoðsendingar, Jarryd Cole 11/13 fráköst, Arnar Freyr Jónsson 8, Valur Orri Valsson 6, Almar Stefán Guðbrandsson 5/9 fráköst, Halldór Örn Halldórsson 5, Kristoffer Douse 4, Guðmundur Auðunn Gunnarsson 2. Snæfell: Marquis Sheldon Hall 25/6 fráköst/9 stoðsendingar, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 23/8 fráköst/5 stolnir, Quincy Hankins-Cole 14/16 fráköst/4 varin skot, Sveinn Arnar Davidsson 12/7 fráköst, Ólafur Torfason 9/10 fráköst, Hafþór Ingi Gunnarsson 9, Jón Ólafur Jónsson 8. Stjarnan-Njarðvík 74-61 Stjarnan: Renato Lindmets 21/10 fráköst, Justin Shouse 15/8 stoðsendingar, Marvin Valdimars- son 14/5 stoðsendingar, Keith Cothran 10/8 fráköst, Jovan Zdravevski 9/4 fráköst, Fannar Freyr Helgason 4/13 fráköst, Guðjón Lárusson 1. Njarðvík: Cameron Echols 24/6 fráköst, Travis Holmes 18/7 fráköst/4 varin skot, Elvar Már Friðriksson 11, Ólafur Helgi Jónsson 3/5 fráköst, Styrmir Gauti Fjeldsted 2/8 fráköst, Páll Kristins- son 2, Oddur Birnir Pétursson 1/5 fráköst, STAÐAN: Grindavík 17 16 1 1554-1334 32 Stjarnan 18 12 6 1569-1472 24 Keflavík 18 12 6 1623-1508 24 KR 17 11 6 1510-1456 22 Þór Þ. 17 11 6 1440-1361 22 Snæfell 18 9 9 1687-1605 18 Tindastóll 18 9 9 1512-1568 18 Njarðvík 18 8 10 1513-1529 16 Fjölnir 17 7 10 1450-1533 14 ÍR 17 6 11 1479-1570 12 Haukar 18 4 14 1386-1493 8 Valur 17 0 17 1275-1569 0 ÚRSLIT HANDBOLTI „Þetta er búið að vera lengi í vinnslu. Ég var með mjög skemmtilegt dæmi í gangi varð- andi annað lið sem er reyndar enn á lífi en það gengur ekki upp fyrir næsta tímabil,“ sagði landsliðs- maðurinn Kári Kristján Kristjáns- son sem er búinn að framlengja samning sinn við Wetzlar til eins árs. Hann fékk betri samning en hann var með. Samningaviðræður hans og Wetzlar hafa tekið langan tíma en loksins náðu Kári og liðið saman. „Þar sem hitt dæmið gengur ekki upp fyrir næsta tímabil varð að finna einhverja lausn. Wetzlar bauð mér þriggja ára samning en ég náði að fá þetta eina ár í gegn og er ánægður með það.“ Næsta sumar verða margir línu- menn með lausan samning og Kári vill vera með í þeim slag. „Þá er markaðurinn mjög opinn. Það verða miklar þreifingar á línu- mönnum þá. Samt veit maður ekki hvað gerist, hvort ég fari út fyrir Þýskaland eða eitthvað annað. Svo getur vel verið að ég verði hér áfram,“ sagði Kári en honum og fjölskyldu hans líður vel í Wetzlar þó svo Kári eigi sér þann draum að spila með stærra félagi. „Mig langar að komast lengra í boltanum. Það er ekkert leyndar- mál. Okkur líður samt vel hérna í þessum bæ.“ - hbg Landsliðsmaðurinn Kári Kristján Kristjánsson framlengir við Wetzlar um eitt ár: Langar að komast lengra í boltanum VÍGALEGUR Kári Kristján er ekki árennilegur á línunni. Hann hefur staðið sig vel í vetur og önnur lið sýna honum áhuga. NORDIC PHOTOS/BONGARTS FÓTBOLTI „Ég er vanur að spila í bláu með liðinu mínu þannig að þetta var ekkert skrítið,“ sagði landsliðsmaðurinn Emil Hallfreðs- son léttur en hann lék á miðviku- dag sinn fyrsta landsleik í tvö ár. Emil hefur verið að leika vel á Ítalíu með félagi sínu, Hellas Verona, og skilaði fínum 45 mín- útum gegn Svartfjallalandi. „Þetta var mjög skemmtilegt. Mér fannst þetta ganga vel og var sáttur. Það var alltaf ákveðið að ég myndi spila í 45 mínútur. Bæði af því að ég er tæpur vegna meiðsla og svo eigum við stórleik gegn Sampdoria um helgina.“ Emil er vanur að leika inni á miðjunni með Verona en hann var alltaf kantmaður er hann átti fast sæti í landsliðinu. Það breyttist ekkert gegn Svartfjallalandi því hann var aftur kominn á kantinn. „Ég get alveg leyst þá stöðu þó svo mér finnist skemmtilegra að spila inni á miðri miðjunni. Ég er tilbúinn að gera það sem Lars biður mig um að gera og reyni að gera það eins vel og ég get. Ég verð að nýta þau tækifæri sem mér bjóðast,“ sagði Emil en er búið að kveikja gamla landsliðsneistann hjá honum eftir þennan leik? „Já, kannski. Ég get alveg við- urkennt að ég hef ekkert sakn- að landsliðsins mikið síðustu tvö ár og einbeitt mér bara að mínu félagsliði. Það hefur gengið vel. Ég hef ekkert verið að hanga við sím- ann og bíða eftir kallinu í lands- liðið. Þegar það er hringt er maður að sjálfsögðu til í að mæta.“ Undirbúningurinn fyrir leikinn betri en áður Emil segir að dagarnir með lands- liðinu hafi verið góðir og honum líst vel á það sem Lars Lagerbäck er að gera með landsliðið. „Mér líst vel á þetta prógramm sem er í gangi. Það er margt öðru- vísi núna en áður og til að mynda var undirbúningurinn fyrir leik- inn sjálfan mun betri,“ sagði Emil og bætir við að allar æfingar hafi meðal annars verið markvissari en áður. „Æfingarnar eru skipulagðar og Lars virðist vera mjög skipulagð- ur. Það er eitthvað sem ég þekki vel frá Ítalíu og kann að meta. Allar æfingar voru markvissar en áður var kannski bara ungir á móti gömlum daginn fyrir leik. Það er búið og nú er meiri fagmennska. Það er eitthvað fyrir fram ákveð- ið og einhver áætlun í gangi sem hefur ekki verið undanfarið,“ sagði Emil og telur að með slíkum vinnu- brögðum geti landsliðið náð sér á strik á nýjan leik. „Þannig virkar fótboltinn. Við erum kannski ekki með bestu fót- boltamenn í heimi en ef það er almennileg leikáætlun og skipu- lag þá eigum við möguleika. Ef við mætum óskipulagðir í leiki eigum við ekki góða möguleika. Þess vegna er ítalski boltinn meðal annars á uppleið því það er verið að pæla í öllu.“ Það leyndi sér ekki í leik Íslands gegn Svartfjallalandi að leikmenn voru að fylgja uppsettu og æfðu skipulagi og svo var baráttan og andinn til fyrirmyndar. „Baráttan verður alltaf að vera til staðar ef við ætlum að ná úrslit- um. Við ætluðum að fylgja því með ákveðni sem Lars var búinn að leggja upp. Bæði í vörn og sókn. Það gekk ekki allt upp í fyrstu til- raun en því meira sem við vinnum saman held ég að við förum að bæta okkur. Það er ýmislegt nýtt í gangi og það hefur ekki verið svona gott skipulag hjá landslið- inu lengi sem er frábært. Lars veit greinilega alveg hvað hann er að gera. Við verðum því að leggjast á eitt, hlusta á kallinn og fara eftir því sem hann segir.“ henry@frettabladid.is Ekki lengur ungir á móti gömlum daginn fyrir leik Landsliðsmaðurinn Emil Hallfreðsson segir að vinnubrögð nýja landsliðsþjálf- arans, Lars Lagerbäck, séu til fyrirmyndar og mun markvissari en hjá fyrirrenn- urum hans. „Það hefur ekki verið svona gott skipulag hjá landsliðinu lengi.“ MÆTTUR AFTUR Emil er hér í gömlum landsleik gegn Hollandi en hann minnti á sig í leiknum gegn Svartfjallalandi á miðvikudag. NORDIC PHOTOS/AP aðeins fram á sunnudag Lagerútsala! 30-70% afsláttur Bak við Holtagarða!! HANDBOLTI Danska stórskyttan Mikkel Hansen og norski línu- maðurinn Heidi Löke voru kosin besta handboltafólk ársins 2011 af Alþjóðahandboltasamband- inu en að kosningunni komu fjöl- miðlamenn, handboltasérfræð- ingar IHF og áhugafólk sem gat kosið á heimasíðu sambandsins. Heidi Löke fékk 28 prósent atkvæða í kjörinu en í 2. sæti var Frakkinn Allison Pineau með 22 prósent atkvæða. Mikkel Hansen fékk 31 prósent atkvæða í kjörinu, Filip Jicha varð í 2. sæti með 21 prósent atkvæða og Frakkarnir Nikola Karabatic og Luc Abalo fengu svo báðir 19 prósent atkvæða í boði. - esá Besta handboltafólk heims: Hansen og Löke valin best ÁTÖK Það var ekkert gefið eftir í leik Hauka og Vals í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.