Fréttablaðið - 09.03.2012, Side 2

Fréttablaðið - 09.03.2012, Side 2
9. mars 2012 FÖSTUDAGUR2 Svavar, ætlið þið í alvöru að spila keilu á sabbatsdeginum? „Já, við verðum að gera það enda spurning um líf og dauða.“ Svavar H. Jakobsson er annar skipu- leggjenda Big Lebowski-hátíðarinnar í Keiluhöllinni á morgun sem tileinkuð er myndinni frá 1998. Í frægu atriði neitar ein persónan að spila keilu á sabbats- deginum þar sem gyðingar skuli halda hvíldardaginn heilagan nema líf liggi við. SKIPULAGSMÁL Gylfi Sigurðs- son aðalvarðstjóri segir áætlaða breytingu á skipulagi umferðar á Dalvegi í Kópavogi munu hindra starf lögreglunnar og stofna öryggi fólks í hættu. Gylfi mætti á síðasta fund umhverfis- og samgöngu nefndar Kópavogs og lagði þar fram bókun. Í henni undirstrikar Gylfi að lög- reglan verði að eiga greiða og óhefta leið frá starfsstöð sinni. Lögreglustöð og sýslumanns- skrifstofa er á Dalvegi 18. Þangað er Pósturinn einnig nýfluttur með afgreiðslu. Ætlunin er að gera tvö hringtorg á Dalvegi, nokkuð ofan og neðan við lögreglustöðina. Jafnframt á að aðskilja akreinar götunnar með umferðareyju. „Ef við erum að fara í útkall í átt að Smáratorgi getum við ekki lengur tekið vinstri beygju niður Dalveginn heldur þurfum fyrst upp að hringtorginu og snúa þar við,“ útskýrir Gylfi. „Hver sekúnda skiptir máli og það getur verið lífsspursmál að bæta ekki þessum krók við leiðina. Þess utan er forgangsakstur hættulegur og ástæðulaust að lengja hann.“ Á þessu hnykkir Gylfi í áður- nefndri bókun. „Með því að loka með einhverjum hætti útakstri lögreglu er verið að stefna öryggi bæjarbúa í hættu,“ fullyrðir hann. Ármann Kr. Ólafsson, bæjar- stjóri í Kópavogi, segir innihald bréfs Gylfa koma bæjaryfirvöldum í opna skjöldu. „Það kemur okkur á óvart að fyrstu viðbrögð lög- reglunnar skuli birtast í þessari bókun með svo afgerandi hætti. Það er greinilegt á þessu að umferðar- sérfræðingum bæjarins ber ekki SPURNING DAGSINS Gráða & feta ostateningar henta vel í kartöflusalatið, á pítsuna, í sósuna, salatið, ofnréttinn og á smáréttabakkann. ms.is Gráða & feta ostateningar í olíu H V ÍT A H Ú SI Ð / S ÍA 12 10 8 1917 1513 119 8 10 12 9 11 13 15 17 19 1 0 8 6 5 úl al in d M án al ind xa lin d Sorpa Bílastæði lögreglunnar Nýtt hringtorg Núverandi útakstur lögreglunnar Nýtt hringtorg Lögreglustöðin Reykjanesbraut Áformaðar breytingar á Dalvegi Fyrirhuguð umferðareyja Varðstjóri berst gegn hindrunum á Dalvegi Aðalvarðstjóri segir áformaðar breytingar á Dalvegi munu hindra lögregluna og ógna öryggi borgaranna. Bæjarstjórinn í Kópavogi segist undrandi og biður um að sjá gögn sem „sérfræðingar séu væntanlega búnir að vinna fyrir lögregluna“. BREYTINGAR Á DALVEGI Hér sést hvernig koma á fyrir tveimur hringtorgum og loka á milli akreina einmitt þar sem lögreglan hefur nú útakstur á Dalveg. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM saman við umferðarsérfræðinga lögreglunnar,“ segir hann. Samgöngunefndin frestaði afgreiðslu umferðarskipulagsins á Dalvegi á fyrrnefndum fundi. Ármann segir að funda verði með hlutaðeigandi og óskað eftir þeim gögnum sem sérfræðingar séu væntanlega búnir að vinna fyrir lögregluna. Að sögn Ármanns voru mark- miðin með breytingum á Dalvegi þríþætt. „Í fyrsta lagi að auka umferðaröryggi með því að draga úr hraða og fækka krossgatna- mótum á Dalveginum. Í öðru lagi auka umferðarflæði á svæðinu og í þriðja lagi að draga úr hljóð- mengun,“ segir bæjarstjórinn sem kveður málið verða skoðað með ítarlegri hætti þegar frekari upp- lýsingar frá lögreglu liggi fyrir. „Í neyðarakstri liggur sérfræði- kunnátta lögreglunnar. Það er nú bara almenn skynsemi að við slíkan akstur þarf leiðin að vera óheft,“ svarar aðalvarðstjórinn. gar@frettabladid.is DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja- ness hefur dæmt hálfþrítuga konu í tveggja ára fangelsi fyrir að kveikja í sófa í íbúð í Hafnarfirði. Konan var að eigin sögn „kaf- dópuð“ þegar kviknaði í húsinu. Hún neitaði sök og bar við að um óhapp hefði verið ræða en það fékk enga stoð í rannsókn sérfræðinga. Hins vegar þykir sýnt að hún hafi strax eftir íkveikjuna séð að sér og reynt hvað hún gat til að slökkva eldinn, án árangurs. Þá er hún nú komin í stranga meðferð við fíkn sinni. Í þessu ljósi þótti dómnum rétt að skilorðsbinda 22 mánuði refsingarinnar. - sh Tvö ár í fangelsi fyrir brennu: Kveikti í bensín- blautum sófa PAKISTAN, AP Þrjár ekkjur hryðjuverkaleiðtogans Osama bin Laden hafa verið ákærðar í Pakistan. Þar- lend stjórnvöld saka þær um að hafa komið ólöglega til landsins. Konurnar þrjár hafa verið í gæslu- varðhaldi í Pakistan síðan í maí á síðasta ári, eða frá því að bandarískir landgöngulið- ar réðust inn í hús bin Ladens og drápu hann. Þeir fóru síðan með líkið út á sjó og sökktu því. Óljóst er um réttarstöðu ekknanna í Pakistan og ekki einu sinni vitað hvort þær hafa lögmann. - gb Ekkjur bin Ladens ákærðar: Sagðar ólögleg- ir innflytjendur OSAMA BIN LADEN DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja- víkur dæmdi í gær Marcin Tomasz Lech, 33 ára Pólverja, í fimm ára fangelsi fyrir aðild sína að vopnuðu ráni í verslun úr smiðsins Franks Michelsen í október í fyrra. Þrír félagar Lechs ruddust inn í verslunina að morgni 17. október, ógnuðu starfsfólki með eftir líkingum af skammbyssum og höfðu á brott með sér 49 rán- dýr úr. Mennirnir þrír flúðu svo úr landi. Tveir þeirra voru handteknir í Sviss í síðasta mánuði, að því er fram kom í fréttum RÚV í gær, á grundvelli handtökuskipunar sem íslensk lögregluyfirvöld höfðu gefið út. Svissnesk yfirvöld munu framselja þá til Íslands og verður þá réttað yfir þeim hér vegna málsins. Hlutverk Lechs var að flytja bíl til landsins með Norrænu, sem úrin voru síðan falin í. Til stóð að hann mundi síðan koma bílnum aftur úr landi með Norrænu. Dómurinn metur þátt Lechs í ráninu jafnan þætti hinna, jafnvel þótt hann hafi ekki sjálfur ruðst inn í verslunina, enda hafi hann tekið þátt í skipulagningunni frá upphafi til enda. Hann hefur sætt gæsluvarðhaldi frá því nokkrum dögum eftir ránið og kemur sú vist til frádráttar dómnum. Lech er dæmdur til að greiða Vátryggingafélagi Íslands, sem tryggði úrin, rúmar fjórtán milljónir króna í bætur fyrir tjón sem varð á úrunum. Þá er bíllinn sem hann kom á til landsins, Audi A8, gerður upptækur. - sh Tveir úraræningjanna sem sluppu til Póllands handteknir í Sviss og verða framseldir til Íslands: Fimm ára fangelsi fyrir rán hjá Michelsen JÁTAÐI Marcin Tomasz Lech játaði sök. Hann sagði að upphaflega hafi staðið til að brjótast inn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM DÓMSMÁL InDefence-hópurinn telur eðlilegast að almenningur fái beinan aðgang að landsdóms- réttarhöldunum í gegnum ljósvaka- miðla og aðgang að máls skjölum eða afriti af vitnisburði vitna. Í til- kynningu samtakanna er skorað á Landsdóm að ráða bót á þessu tafarlaust. Bent er á að á ýmis atriði Ice- save-málsins reyni nú fyrir Lands- dómi, en hópurinn telur á skorta að til vitnis séu kallaðir erlendir málsaðilar. Þar á meðal eru nefndir Alistair Darling, fyrrverandi fjár- málaráðherra Breta, Hector Sants, forstjóri breska fjármálaeftir- litsins, og Mervyn King, seðla- bankastjóri Englandsbanka. - óká Sýnt verði úr Landsdómi: Vilja fá útlend- inga fyrir dóm Hitler enn bannaður Dómstóll í München hefur bannað bresku bókaforlagi að gefa út útdrætti úr bók Adolfs Hitlers, Mein Kampf, í þýsku fræðitímariti. Bæjaraland á útgáfuréttinn á bókinni út árið 2015 og hefur komið í veg fyrir útgáfu verksins í Þýskalandi síðan. ÞÝSKALAND REYKJAVÍK Fulltrúar Sjálfstæðis- flokks og Vinstri grænna ósk- uðu eftir því á fundi borgarráðs í gær að innri endurskoðandi og borgarlögmaður fari yfir sölu- ferli vegna eignarhluta Orku- veitu Reykjavíkur (OR) í Enex Kína og Envent Holding. Í tilkynningu segir að ástæða þess að óskað hafi verið eftir úttektinni sé að staðfest hafi verið að OR hafi selt eignarhluti í félögunum „án auglýsingar og eðlilegra upplýsinga til stjórn- armanna í Orkuveitunni“. Einnig er óskað eftir því að upplýst verði hvort ásættanlegt verð hafi fengist fyrir eignirn- ar. - þj Minnihlutinn í borgarráði: Biðja um úttekt á sölu eigna OR INDONESÍA, AP Evie, fyrrverandi barnfóstra Barack Obama forseta Bandaríkjanna, er hrærð yfir því að hafa skotist upp á stjörnuhiminninn, en hún býr í fátækrahverfi í Jakarta. Sjónvarpslið marserar nú inn og út úr litla hjallinum hennar. Fjarskyldir ættingjar sem aldrei hafa virt hana viðlits vilja loksins hitta Evie og henni hefur meira að segja verið boðin mannsæmandi vinna. Evie er 66 ára og fæddist karlmaður en telur sig kvenmann. Hún vakti athygli eftir að viðtal birtist nýlega við hana um baráttu transfólks í blaðinu The Associated Press. Athyglin er einkum vegna tengsla hennar við Bandaríkjaforseta. Hún passaði „Barry“ árið 1969 þegar hann var átta ára og vann á heimili hans sem karlmaður. Evie segist aldrei hafa látið hinn unga Barry sjá sig í kvenmannsfötum. Þegar hún hafði verið beitt ofbeldi í mörg ár fyrir að klæðast kvenfatnaði fannst henni væn- legra að falla inn í fjöldann. Hún hætti því að klæðast sem kona. Eftir að Evie missti vinnuna hjá fjölskyldu Obama dró hún fram lífið með því að handþvo föt fyrir fólk. „Ég geri mér grein fyrir að athyglin mun ekki endast lengi,“ segir hún. „En ég held að saga mín muni opna augu fólks þannig að það muni virða okkur meira.“ -gs Barnfóstra Baracks Obama Bandaríkjaforseta nýtur síðbúinnar athygli: Lét Barry aldrei sjá sig í kjól EVIE Í HÓPI NÁGRANNA SINNA Telur sögu sína auka víðsýni fólks um kynferði. FRÉTTABLAÐIÐ/AP

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.