Fréttablaðið - 09.03.2012, Síða 40

Fréttablaðið - 09.03.2012, Síða 40
9. mars 2012 FÖSTUDAGUR20 BAKÞANKAR Brynhildar Björnsdóttur 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Tjekk! Tjekk! Flott... bara eitt í lokin! og þá verðum við að taka fram hanskann, Pondus! Þurf- um við? Ég er hræddur um það! ÆÆÆÆÆ! Tjekk! Þetta lítur ágæt- lega út, Pondus! En nokkrar magaæfingar mundu ekki skaða! Hhhhhaa- aahh hélt að þhhú værir að meina hhhinn hanskaaaan Mamma! Þetta er glat- aður bústaður! Við erum í útilegu! Að sætta sig við óþægindin er helmingur skemmt- unarinnar! En hinn helmingur- inn? Að fara heim. Hver fær að fara í sturtu í dag? Bíddu bíddu! ekki skella á... Höfum þetta stóra pitsu með pepperóní og sveppum! Við erum snemma í því. Farðu og... NE! NEI! HÆTTU! TÖNNIN MÍN!! ...skoðaðu blöð. Ég er góður. LÁRÉTT 2. velta, 6. þófi, 8. heyskaparamboð, 9. festing, 11. tveir eins, 12. skrapa, 14. veira, 16. skóli, 17. kærleikur, 18. skelfing, 20. númer, 21. faðmlag. LÓÐRÉTT 1. kvenflík, 3. nafnorð, 4. niðurstaða, 5. þróttur, 7. náreið, 10. mánuður, 13. af, 15. dreifa, 16. blundur, 19. nudd. LAUSN LÁRÉTT: 2. snúa, 6. il, 8. orf, 9. lím, 11. ll, 12. skafa, 14. vírus, 16. ma, 17. ást, 18. ógn, 20. nr, 21. knús. LÓÐRÉTT: 1. pils, 3. no, 4. úrlausn, 5. afl, 7. líkvagn, 10. maí, 13. frá, 15. strá, 16. mók, 19. nú. Ég heiti Brynhildur og ég er ekki óham-ingjusöm. Ég lifi góðu lífi, er í skemmti- legu og gefandi starfi, á yndislega fjölskyldu og frábæra vini. Ég er heilsuhraust, stunda afar skemmtilega líkamsrækt þrisvar í viku, nýt þess að lesa góðar bækur og fara í leikhús, hef ekki teljandi fjárhagsáhyggjur og á fullt af flottum fötum. Já, ég er fegurð- ardrottning. ÉG FÓR í Hjartavernd um daginn og stóðst öll próf þar með einstakri prýði. Blóðþrýst- ingur aðeins of lágur en blóðsykur í besta lagi, sem og öll möguleg kólesteról. Ég er hress, hamingjusöm og virk. Og þrjátíu kílóum of þung. Það er víst nefnilega ekkert sjálfgefið samasemmerki milli ofþyngdar og sjúkdóma. ÉG HEF reyndar einu sinni þurft að taka þunglyndislyf. Það var eftir að ég náði af mér tuttugu kílóum með því að taka megrun- arduft, brennslupillur og orkute í nokkra mánuði. Ég borðaði ekk- ert og svaf ekkert heldur mis- bauð líkamanum þannig að hann hætti að framleiða náttúruleg gleðiefni. En vá, hvað ég var mjó! ÉG ER ein af þeim sem hafa alla ævi barist við fitupúk- ann og notað opinberar skoðanir á holda- fari sem merkimiða á lífsgæði og gleði. Það var alveg sama hvaða sigra ég vann í lífinu, alltaf var kílóatalan í lok dags mælikvarðinn sem allt miðaðist við. Þangað til að ég ákvað einn góðan veður- dag að hætta að láta áhyggjur af líkams- þyngd stjórna lífi mínu. OG VITI menn, því minna af áhyggjum og vansæld sem ég gaf fitupúkanum, þeim mun glaðari varð ég. Og uppgötvaði að það er ekki samasemmerki á milli þess að vera óhamingjusöm og feit. Heldur ekki heilsulaus, heimsk eða leiðinleg og feit. Mér fór smám saman að líka bara ágætlega að vera ég, hamingjusöm í mínu eigin skinni og því sem sumir kalla skvap en aðrir mýkt og kvenlegar línur. ÞESS vegna er ég orðin svo þreytt á því að lesa í blöðunum og sjá á skjá að ég sé ekki í lagi, ég hljóti að vera óhamingju- söm af því að ég er feit og að það sé ekk- ert til betra í lífinu en að grennast um þrjátíu kíló. TIL hamingju með árangurinn, allir sem hafa náð sínum persónulegu markmiðum í starfi, námi eða líkamsrækt. Sjálf hef ég náð þeim árangri að vera sátt við mig eins og ég er. Og það er mjög góð tilfinn- ing. Of feit fyrir þig? Brúnó og íslensku illmennin Eftirminnileg r skúrkar úr kvikmyndasögu Íslendinga. Lætur heyra vel í sér á línunni Björgvin Björgvinsson hefur verið aðstoðarmaður Willums Þórs Þórssonar knattspyrnuþjálfara í áratug og hjá fjórum félögum. Meðal annars efnis: Síðustu dagar útsölu 50%- af öllum útsöluvörum opið til kl. 18:30 í dag

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.