Fréttablaðið - 14.03.2012, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 14.03.2012, Blaðsíða 14
14 14. mars 2012 MIÐVIKUDAGUR Vinnumálastofnun hefur und-anfarin misseri efnt til fjöl- margra verkefna til að stuðla að virkni fólks í atvinnuleit, skapa því tækifæri til að mennta sig, auka vinnufærni og takast á við verkefni sem eru uppbyggileg hvatning til atvinnuþátttöku nú þegar eða síðar þegar atvinnu- tækifærum fjölgar. Fjölbreytni úrræða sem á sér vart fordæmi Erfitt atvinnuástand og atvinnu- leysi hefur mikið verið til umfjöll- unar frá hausti 2008 enda ástand- ið framandi í samfélagi þar sem jafnan hafa verið til störf fyrir alla sem vilja og geta unnið. Tölur um atvinnuleysi verða þó ekki umfjöllunarefni mitt hér, heldur sú öfluga uppbygging fjöl- breyttra tækifæra fyrir atvinnu- leitendur til að styrkja stöðu sína sem átt hefur sér stað síðustu ár og ég held að eigi sér vart for- dæmi. Þetta hefur krafist víð- tækrar samvinnu og virkrar þátt- töku fjölmargra aðila, en ekki síst öflugrar forystu Vinnumálastofn- unar þar sem verkefni eru skipu- lögð og þeim fylgt eftir. Þar hefur byggst upp mikil þekking á þessu sviði, þar er yfirsýn um atvinnu- ástand, fjölda atvinnuleitenda og aðstæðna innan hópsins sem er forsenda þess að skilgreina mark- hópa og skipuleggja vinnumark- aðsúrræði við hæfi hvers og eins. Staðan erfiðust fólki með stutta skólagöngu að baki Að missa vinnuna er áfall. Að vera í atvinnuleit og koma alls staðar að lokuðum dyrum er skelfilegt og það er illt veganesti fyrir ungt fólk sem ætlar að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaði að vera alls staðar hafnað. Erfiðust er staða þeirra sem hafa skemmsta skóla- göngu að baki. Um helmingur atvinnuleitenda hefur ekki lokið neinu námi eftir grunnskóla og um 75% þeirra sem eru 25 ára og yngri. Áhersla hefur verið lögð á vinnumarkaðsúrræði sem taka mið af þessari staðreynd. Í samfélaginu ríkir almennt mikill skilningur á nauðsyn þess að bregðast við þessu ástandi. Það er ómetanlegt hvað stofnanir ríkisins, sveitarfélög, félagasam- tök og fyrirtæki hafa verið reiðu- búin til þátttöku í þeim fjölmörgu átaksverkefnum sem efnt hefur verið til í þessu skyni og það sýnir sig að þegar allir leggjast á eitt er árangurinn vís. Í ársbyrjun 2010 hófst stór- átakið Ungt fólk til athafna í kjöl- far ákvörðunar stjórnvalda um að verja 1,3 milljörðum króna til að skapa tækifæri fyrir fólk án atvinnu til starfa, menntun- ar eða annars konar virkni með áherslu á úrræði fyrir ungt fólk og aðgerðir til að bregðast við langtímaatvinnuleysi. Sett var það markmið að aldrei skyldu líða meira en þrír mánuðir frá því að einstaklingur missti starf þar til honum væri boðið starf, náms- tækifæri, starfsþjálfun eða þátt- taka í öðrum verkefnum og náð- ist það markmið fáum mánuðum síðar. Frá því að átakið hófst til ársloka 2011 höfðu ráðgjafar hitt um 5.000 unga atvinnuleitendur og af þeim höfðu um 3.000 verið skráðir af atvinnuleysisskrá sem telst mjög góður árangur. Í ljósi góðrar reynslu af verk- efninu Ungt fólk til athafna voru aldursmörk fyrir þátttöku hækk- uð í 29 ár og jafnframt ýtt úr vör nýju átaksverkefni gegn lang- tímaatvinnuleysi undir heitinu ÞOR – þekking og reynsla, fyrir fólk á aldrinum 30-70 ára. Frá upphafi átaksins í ágúst 2010 til ársloka 2011 höfðu um 7.500 tekið þátt í verkefninu og var þá hátt í helmingur þeirra kominn með starf eða farinn í nám og skráður af atvinnuleysisskrá. Brottfall úr námi virðist minna en gengur og gerist Samstarfsverkefni ríkisstjórn- arinnar og aðila vinnumarkað- arins, Nám er vinnandi vegur, hófst árið 2011 til að bregðast við langtímaatvinnuleysi með hvatningu og auknum tækifær- um fyrir atvinnuleitendur til að hefja nám. Með góðu samstarfi við skólastjórnendur tókst að tryggja skólavist öllum sem eftir því leituðu og fullnægðu inntöku- skilyrðum haustið 2011 og skapa námstækifæri fyrir um 1.000 atvinnuleitendur í framhaldsskól- um, frumgreinadeildum, háskól- um og framhaldsfræðslu. Skilyrði var að þátttakendur hefðu verið án atvinnu í hálft ár eða lengur. Þessir einstaklingar fengu náms- vist í eina önn án þess að missa rétt til atvinnuleysisbóta, upp- fylltu þeir kröfur um ástundun, en bætur féllu síðan niður hygðust þeir halda náminu áfram. Rúm- lega 900 manns hófu nám í haust á grundvelli átaksins. Af þeim hópi eru yfir 800 sem ákváðu að halda áfram námi á vorönn sem bend- ir til að brottfall þessara einstak- linga úr námi sé jafnvel minna en almennt gengur og gerist. Atvinnutengd vinnumarkaðs- úrræði reynast árangursrík Nú er hafið nýtt átaksverkefni atvinnurekenda, sveitarfélaga, stéttarfélaga og ríkisins gegn langtímaatvinnuleysi undir slag- orðinu Vinnandi vegur sem var kynnt nýlega á atvinnumessu í Reykjavík. Fyrirhugað er að hafa sambærilega atvinnumessu á Suð- urnesjum. Sérstök áhersla verð- ur lögð á þann hóp atvinnuleit- enda sem verið hefur án atvinnu í eitt ár eða lengur, ekki síst þann hóp sem er að ljúka rétti sínum til atvinnuleysisbóta á þessu ári. Með samvinnu við sveitarfélög, stofnanir og fyrirtæki standa vonir til að unnt verði að ráða um 1.500 manns af atvinnuleysisskrá í ný starfstengd vinnumarkaðsúr- ræði um allt land. Tölur Vinnumálastofnunar sýna að atvinnutengd vinnumarkaðs- úrræði reynast stórum hópi fólks greið leið inn á vinnumarkað- inn. Á ársgrundvelli eru um 63% atvinnuleitenda sem taka þátt í slíkum úrræðum farin af atvinnu- leysisskrá þremur mánuðum eftir að þátttöku lýkur og hefur þá ýmist boðist áframhaldandi starf á viðkomandi vinnustað eða nýtt starf annars staðar. Uppbyggilegar atvinnuleysis- bætur Verkefnin sem ég hef nefnt byggj- ast á því að atvinnuleysisbætur nýtist á uppbyggilegan hátt og komi samfélaginu öllu að gagni. Með því að skapa aukin tæki- færi til náms eða starfsþátttöku, kynna þau og hvetja fólk til þátt- töku mynda atvinnuleysisbæturn- ar nokkurs konar grunn að bjart- ari framtíð fólks eins og hefur svo sannarlega sýnt sig í átakinu Nám er vinnandi vegur. Starfstengdu úrræðin byggjast á sömu hugsun því atvinnurekendur sem fjölga hjá sér störfum og leggja þann- ig átakinu lið geta ráðið fólk af atvinnuleysisskrá í tiltekinn tíma en bæturnar ganga upp í launa- kostnað og mæta þannig stofn- kostnaði vegna starfsins. Framhald síðar … Hér hefur verið lýst í stuttu máli nokkrum þeirra verkefna sem unnið er að á sviði vinnumiðlun- ar og vinnumarkaðsúrræða fyrir atvinnuleitendur. Starfið er þó miklu umfangsmeira og mun ég gera því betri skil í annarri grein sem birtist á næstu dögum. Þegar allir leggjast á eitt er árangur vís Fyrirhuguð stækkun Land-spítala hefur nokkuð verið í umræðunni að undanförnu. Mikið púður hefur farið í staðsetninguna við Hringbraut sem ákveðin var fyrir rúmum áratug. Á meðan sjón- ir beinast aðallega að þessu atriði fer minna fyrir annarri en afar brýnni umræðu. Hún snertir mál- efni sjúklinga. Á blóðlækningadeild Landspítala við Hringbraut, sem er eina sér- hæfða blóðlækningadeild landsins, dvelst fólk sem haldið er ýmsum illkynja blóðsjúkdómum á borð við hvítblæði og eitlakrabbamein. Sjúklingarnir eiga það flestir sam- eiginlegt að vera mjög ónæmis- bældir og því gríðarlega viðkvæm- ir fyrir ýmiss konar sýkingum, oft í kjölfar þess að hafa gengist undir stífar lyfjameðferðir. Í hópi þeirra sem vísað er til blóðlækningadeildar er fólk sem hefur nýlega fengið erfiðar frétt- ir um að það sé haldið sjúkdómum á borð við bráðahvítblæði og þarf strax að hefja stranga lyfjameð- ferð. Aðrir sjúklingar eru veru- lega ónæmisbældir vegna síns sjúkdóms eða meðferðar og þurfa að dveljast í varnareinangrun til að verja þá gegn utanaðkomandi sýkingum. Þá kemur á deildina fólk með sýkingu sökum ónæmis- bælingar sem oft kallar á sérstaka einangrun, svokallaða smitgát til að koma í veg fyrir að smit ber- ist í aðra sjúklinga deildarinnar. Á deildinni eru jafnframt fram- kvæmdar háskammta krabba- meinslyfjameðferðir með eigin stofnfrumuígræðslu sem hefur bætt verulega árangur meðferðar ýmissa illkynja blóðsjúkdóma og krefst varnareinangrunar í tölu- verðan tíma eftir meðferðina. Af ofan sögðu ætti öllum að vera ljóst að deild sem þessi ætti í nútímanum að búa við þær aðstæð- ur að geta boðið öllum upp á einbýli með sér salernis- og sturtuaðstöðu. Því miður búum við ekki við það í dag þótt starfsfólk geri sitt besta til að mæta kröfum um fyrsta flokks aðbúnað og þjónustu við þennan viðkvæma sjúklingahóp. Á blóðlækningadeild eru fjórtán rúm. Þar af eru sex á einbýlum en á tveimur þeirra er engin sturtu- aðstaða. Það þýðir að viðkomandi sjúklingar þurfa að fara fram á gang til að komast í sturtu, sem er ekki ákjósanlegt. Ekkert fordyri er inni á herbergjunum, sem æskilegt væri vegna sótthreinsunarmála. Þá deila tvö tvíbýli salerni, sem þýðir að allt að fjórir sjúklingar nota þá eitt salerni. Oft kemur sú staða upp að vegna sýkingarhættu mega sjúklingar ekki deila salerni sem skapar mjög erfiðar og óásættan- legar aðstæður á deildinni. Stefnan á blóðlækningadeild er að tryggja öllum einbýli sem á þurfa að halda. Í þeim hópi eru sannarlega einstaklingar sem nýlega hafa greinst með illvíga sjúkdóma og glíma við það áfall auk þess að standa frammi fyrir strangri meðferð. Þó eru dæmi um að nýgreindir einstaklingar þurfi að deila sjúkrastofu með mjög veiku fólki vegna þess að einbýl- um er ekki til að dreifa. Aðrir sjúklingar, sem sumir hverjir eru mikið veikir, liggja langa legu á deildinni. Aðstæður fyrir þá og aðstandendur þeirra eru ekki eins og best verður á kosið. Sjúkraherbergin eru lítil og þrengsli og plássleysi eru hluti af daglegum veruleika sjúklinga og venslafólks þeirra sem gjarnan vill eiga þess kost að verja sem mest- um tíma með hinum sjúku. Í umræðu um stækkun Land- spítala er að okkar mati brýnast að gefa gaum að aðstæðum sjúk- linga. Stærri Landspítali snýst alls ekki um neitt pjatt heldur fyrst og fremst um meðferð og öryggi sjúk- linga. Brýnt er að stækkun spítal- ans verði að veruleika til þess að mæta þeim kröfum sem nútím- inn gerir til þessara þátta. Hversu lengi geta sjúklingarnir okkar beðið? Stærri spítali er ekki pjatt heldur nauðsyn Forsetakosningar eru á marg-an hátt spegilmynd af virkni lýðræðis. Álitsgjafar og leiðara- höfundar íslenskra fjölmiðla hafa stundum fjallað um forsetakosn- ingar erlendis í niðrandi tón og gjarnan með viðurnefninu „rúss- nesk“ kosning. Yfirleitt er þá átt við að valda- maður nær yfirburðakosningu með bolabrögðum og misnotkun ríkisfjölmiðla m.a. með því að úti- loka aðra frambjóðendur frá fjöl- miðlum og keyra þess í stað skoð- anamyndandi áróður. En því miður gerist þetta einn- ig á Íslandi. T.d. í forsetakosn- ingunum árið 2004 fengu fram- bjóðendur engan aðgang að RÚV. Íslensku ríkisfjölmiðlarnir notuðu tugi klukkustunda í að útvarpa og sjónvarpa fótboltalýsingum en gátu ekki séð af nokkrum mín- útum fyrir íslenskar forsetakosn- ingar. Engin umfjöllun fór fram á RÚV annað en margendurteknar skoð- anakannanir sem hömruðu á yfir- burðastöðu sitjandi forseta. For- setinn var eini frambjóðendinn í þeim kosningum sem fékk aðgengi að ríkisfjölmiðlinum í gegnum embætti sitt á Bessastöðum. Það var síðan ekki fyrr en kvöldið fyrir kjördag sem hald- inn var einn umræðufundur fram- bjóðenda í sjónvarpssal, en á þeim tímapunkti var auðvitað þjóðin þegar búin að gera upp hug sinn en án þess að hafa kynnst málefn- um frambjóðenda með óhlutdræg- um hætti. Dr. Dietrich Fischer, prófessor við friðarháskóla Evrópu í Aust- urríki, lýsti viðtali við sig á RÚV fyrir forsetakosningarnar 2004 með þessum orðum: Mér var tjáð að öllum þessum þáttum, sem voru kjarni umræðu minnar, hefði verið sleppt þegar hluti viðtalsins var sýndur í sjónvarpinu í kvöld. Ég verð að játa að ég er hneykslað- ur. Þessi leið til að hindra frjálsa og opna umræðu minnir einna helst á herferðina í Júgóslavíu árið 1992 þar sem talsmanni frið- ar, Milan Panic, var aftrað frá að kynna friðarstefnu sína fyrir kjós- endum vegna þess að fjölmiðlum þar í landi var alfarið stjórnað af stuðningsmönnum þáverandi for- seta landsins, Slobodan Milosevic. Bréf Dr. Fischer má lesa í heild á vefnum forsetakosningar.is. Í kjölfar þess að tilboði RÚV í sýningarrétt á fótbolta var hafn- að, hafa tugir klukkustunda fallið úr dagskráráætlun RÚV fyrir maí og júní. Nú er því kjörið tækifæri fyrir útvarpsstjóra að venda kvæði í kross og tryggja með óhlutdrægri og vandaðri umfjöllun að árs- ins 2012 verði ekki minnst vegna „rússneskra“ forsetakosninga á Íslandi. Hvatning til út- varpsstjóra Atvinnumál Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra Nýr Landspítali Hlíf Steingrímsdóttir yfirlæknir blóðlækningadeildar LSH Kristjana G. Guðbergsdóttir deildarstjóri á blóðlækningadeild LSH Forsetaembættið Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi 525 8000 www.bilaland.is KLETTHÁLSI 11 og EIRHÖFÐA VIÐ ERUM Á TVEIMUR STÖÐUM: (Bílakjarninn) E N N E M M / S ÍA / N M 5 10 0 4

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.