Fréttablaðið - 14.03.2012, Side 16

Fréttablaðið - 14.03.2012, Side 16
16 14. mars 2012 MIÐVIKUDAGUR Talsvert er enn óunnið í barátt-unni gegn kynþáttafordómum á Íslandi.“ Þetta er niðurstaða Kynþátta- fordómanefndar Evrópuráðsins og hún rataði á forsíðu Fréttablaðs- ins sem aðalfrétt þriðjudagsins 21. febrúar 2012. Og hvaða ásteytingar- steinar eru efstir á baugi hjá nefnd- inni? „Í fyrsta lagi skuli múslímar á Íslandi fá land og leyfi til að reisa þar moskur.“ Það eru á 13. ár síðan undirritað- ur gekk á fund þáverandi borgar- stjóra, Ingibjargar Sólrúnar Gísla- dóttur, með þáverandi formanni Félags múslíma á Íslandi, Salmanni Tamimi, sem lagði þá fram umsókn um lóð undir mosku. Nú að liðnum meira en 12 árum hafa múslímar enn ekki fengið land undir mosku. Ýmsar skýringar og aðallega ekki- skýringar hafa verið á sveimi. Ljóst er að kynþáttafordómar ýmissa kjörinna fulltrúa og emb- ættismanna hafa staðið í vegi fyrir framgangi málsins og tafið eðlilega afgreiðslu þess. Þetta er orðin sagan endalausa og er höfuð- borginni og þjóðinni til háborinnar skammar. Í áliti Kynþáttafordómanefndar eru íslensk stjórnvöld í öðru lagi hvött til að ljúka lagasetningu um bann við mismunun vegna kynþátt- ar og misréttis. Árin hafa liðið og umsókn Félags múslíma á Íslandi velkst um í borg- arkerfinu, og margir hafa orðið til að afvegaleiða eðlilega umræðu og afgreiðslu málsins. Á meðan hafa önnur trúfélög fengið sínar umsóknir afgreiddar. Þar má nefna Rússnesku rétttrúnaðarkirkjuna, búddista, Votta Jehóva og Ásatrúar- félagið. En múslímar, sem telja nú þegar um 750 manns, sitja á hak- anum. Kynþáttafordómar, íslamófóbía (hræðsla við trúarbrögðin Íslam) og rasismi af einum og öðrum toga, eiga sér víða vaxtarreit. Það eru misvel leyndir fordómar hjá borgarfulltrúum, embættismönn- um og starfsliði borgarinnar sem tafið hafa afgreiðslu þessa máls á óeðlilegan hátt. Nú er svo komið að þessi mismunun hefur vakið athygli þeirra sem fara með mannréttinda- mál í Evrópu, það er Evrópuráðsins. Kynþáttafordómanefndin hefur sent frá sér álit sem er rautt spjald, ekki bara fyrir borgaryfirvöld held- ur fyrir þjóðina alla. Okkar allra er skömmin á meðan þetta mál hefur ekki fengið farsælan endi. Ég treysti því að borgarstjóri og skipulagsyfirvöld afgreiði málið nú tafarlaust og verði við þeirri mann- réttindakröfu sem borist hefur einnig frá Evrópuráðinu og verið sett í forgang af hálfu þess. Krafan er að Félag múslíma á Íslandi fái land og leyfi til að reisa hér mosku þar sem þeir geti iðkað trú sína, í samræmi við Mannrétt- indasáttmála Evrópu. Krafan um mosku í Reykjavík er mál okkar allra. Kynþáttafordómanefndin hefur sent frá sér álit sem er rautt spjald, ekki bara fyrir borgaryfirvöld heldur fyrir þjóðina alla. Okkar allra er skömmin á meðan þetta mál hefur ekki fengið farsælan endi. Norðmenn ráða yfir gríðar-miklum olíu- og gasauðlind- um. Engu að síður sáu Norðmenn ástæðu til að fagna í nóvember síð- astliðnum þegar birtar voru nið- urstöður olíu- og gasrannsókna á Jan Mayen hryggnum. Olíumála- stofnun Noregs, sem kippir sér ekki upp við hvað sem er, gaf út tilkynningu um óvæntar og spenn- andi niðurstöður. Nýlega upplýsti svo Orkustofnun að rannsóknir olíuleitarfélaganna TGS og VBPR hefðu staðfest að olíu væri að finna á Drekasvæðinu. Það eru góðar vonir um að olía eða gas séu þar í vinnanlegu magni. Eins og Stöð 2 greindi frá á sínum tíma telur Terje Hagevang, helsti sérfræðingur Norðmanna um Jan Mayen hrygginn, að þar sé að finna álíka verðmæti í olíu og gasi og finnast í Noregshafi. Norð- menn hafa þegar leigt borskip til að framkvæma rannsóknarboran- ir við Jan Mayen þarnæsta sumar en samkvæmt rannsóknum Sagex olíufélagsins frá 2006 er megnið af þeim svæðum sem líklegust eru til að geyma olíu- og gaslindir innan íslenskrar lögsögu. Kálið er ekki sopið þótt í ausuna sé komið. En ef þetta gefur Íslend- ingum ekki tilefni til að vera bjart- sýnir er slíkt tilefni vandfundið. Aðstæður Margt hefur breyst frá því að fyrst kviknuðu vonir um að olía og gas kynnu að leynast á Drekasvæð- inu. Eldsneytisverð hefur hækkað gríðarlega. Nú er því hafin nýting á olíulindum sem áður töldust ekki hagkvæmar. Tækniframfarir á undanförnum árum hafa auk þess gert olíuvinnslu á miklu dýpi mun vænlegri en áður. Samkvæmt útboðslýsingu Orku- stofnunar vegna olíuleitar á Dreka- svæðinu er hafdýpi yfir áhugaverð- um leitarsvæðum yfirleitt á bilinu 1.000 til 1.500 metrar (Sagex 2006). Slíkt dýpi er ekki vandamál. Það þyrfti að nota fljótandi borpall en botnfastir borpallar teljast hvort eð er ekki hagkvæmir ef dýpi fer mikið yfir 120 metra. Fljótandi bor- pallar eru því algengir. Þeir hafa auk þess þann kost að vera færan- legir. Fimmta kynslóð færanlegra flotpalla, sem varð til árið 1998, nýtist til borunar á yfir 2.500 metra dýpi og sjötta kynslóð er hönnuð fyrir meira en 3.000 metra dýpi. Borskip geta svo borað á allt að 3.700 metra dýpi. Hafdýpi segir auk þess ekki alla söguna. Við samanburð á borhol- um er litið til þess hversu langt er niður að lindinni. Í því sambandi er dýpið á Drekasvæðinu minna en víða annars staðar. Og þótt veður geti verið válynd suður af Jan Mayen eru aðstæður víða miklum mun verri. Á Norður- sjó er veðurfar mjög erfitt. Raun- ar er ölduhæð á Drekasvæðinu almennt mun minni en við Noreg og á Mexíkóflóa ganga reglulega yfir gríðarlega öflugir fellibyljir. Þar eru yfir 4.000 borpallar. Hvenær? Norðmenn boruðu fyrst eftir olíu sumarið 1966 án árangurs. Sum- arið 1969 fannst svo risaolíulind sem hlaut nafnið Ekofisk. 1971 var farið að dæla olíu beint í skip og tveimur árum síðar, þegar búið var að koma upp olíugeymi, skilaði lindin stórum hluta gjaldeyristekna landsins. Frá 1969 hafa orðið gríðarlegar framfarir við leit og vinnslu. Jarð- lög eru kortlögð með tvívíðum, þrí- víðum og fjórvíðum hljóðbylgju- mælingum. Nú er hægt að leigja borpalla á borð við Eirík rauða og Leif Eiríksson sem sigla um allan heim og gata hafsbotninn á allt að 3.000 metra dýpi. Hinn víð- förli Leifur hefur á undanförnum árum m.a. borað við Noreg, Angóla, Tyrkland og Grænland. E.t.v. er tímabært að Leifur skili sér heim til Íslands. Þótt fyrr hefði verið Rannsóknir TGS og VBPR, sem getið var um í upphafi, voru unnar að frumkvæði fyrirtækjanna sjálfra en vísindamennirnir voru á leið til Grænlands og fengu leyfi til að kanna Drekann í leiðinni. Orku- stofnun bendir á að hinar jákvæðu niðurstöður berist seint fyrir útboð sérleyfa sem nú stendur yfir og lýkur 2. apríl. Það er áhyggjuefni að stjórnvöld skuli ekki hafa undirbúið útboðið með því að láta vinna rannsóknir í tæka tíð. Fyrir tveimur árum fór ég í fundaferð um landið og benti á mikilvægi þess að ráðast í slíkar rannsóknir sem fyrst. Hvernig sem útboðið á Drekasvæðinu fer er mik- ilvægt að Orkustofnun fái öflugan stuðning og hvatningu stjórnvalda vegna olíuleitar. Ríkisolíufélag Stofnun ríkisolíufélags hefði ýmsa kosti. Halldór Þorkelsson sérfræð- ingur hjá PWC hefur bent á að stofnun slíks félags sé til þess fall- in að laða að fjárfesta en jafnframt er æskilegt að byggja upp þekkingu á olíumálum í landinu. Slík þekking gæti orðið mjög verðmæt jafnvel þótt við yrðum óheppin með Dreka- svæðið, t.d. ef af vinnslu yrði við Grænland og Færeyjar (eða annars staðar við Ísland). Hjá Orkustofnun og í iðnaðar- ráðuneytinu var á sínum tíma hugað að stofnun ríkisolíufélags og fyrir fáeinum árum samþykktu fulltrúar allra flokka sem þá áttu sæti á Alþingi, nema VG, heimild til stofnunar slíks félags samhliða áformum um fyrsta Drekaútboðið. Æskilegt væri að útvíkka þá heim- ild enda var aðeins gert ráð fyrir félagi til að halda utan um vinnslu- leyfi. Ráðstafanir Nauðsynlegt er að tryggja að þjóðin öll njóti góðs af því ef olía og gas finnast í íslenskri lögsögu. Ríkis- olíufélag er liður í því. En einn- ig væri skynsamlegt að undirbúa hvernig farið yrði með hugsanleg- an ávinning af olíu- og gasvinnslu. Það er kostur að setja slíkar reglur án þess þrýstings sem getur mynd- ast á síðari stigum. Þar mætti einn- ig líta til Noregs þ.a. byggður verði upp sjóður sem háður yrði tak- mörkunum til að koma í veg fyrir að stjórnmálamenn freistist til að eyða óhóflega og skapa þenslu. Þó ætti að sjálfsögðu að nýta ávinn- inginn til að bæta kjör lands- manna. Greiða undirstöðustéttum opinberra starfsmanna almennileg laun o.s.frv. Áhrif Okkur liggur á. Ef það finnast vinnanlegar olíu- eða gaslindir í íslenskri lögsögu hefði það sam- dægurs mikil áhrif á hag lands- manna. Vaxtakjör ríkisins myndu batna til muna og vaxtakostnað- ur lækka. Það leyfir strax meiri útgjöld en ella, gerir Íbúðalánasjóði kleift að veita óverðtryggð lán á lágum vöxtum og leysa skuldavand- ann. Hægt yrði að halda úti stöðug- um og sterkum gjaldmiðli án verð- tryggingar. Norðursjávarolía og gas bjargaði á sínum tíma efnahag Bretlands og gerði Noreg að einu ríkasta landi heims. Smæð þjóðarinnar er kost- ur því að brot af þeim kolefnisauð- lindum sem grannþjóðir okkar hafa yfir að ráða gerir sama gagn fyrir Íslendinga. Í því efnahagslega gjörninga- veðri sem mun ríða yfir heiminn á næstu árum myndi slík viðbót við þær auðlindir sem Íslendingar eiga nú þegar tryggja velferð til fram- tíðar. Verum skynsöm og varfærin en leyfum okkur líka að vera bjartsýn. Það er fullt tilefni til þess. Stofnun ríkisolíufélags Opið bréf til borgarstjóra: Mosku í Reykjavík - mál allra Auðlindir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins Nauðsynlegt er að tryggja að þjóðin öll njóti góðs af því ef olía og gas finnast í íslenskri lögsögu. Trúmál Sveinn Rúnar Hauksson formaður Félagsins Ísland-Palestína 525 8000 www.bilaland.is KLETTHÁLSI 11 og EIRHÖFÐA (Bílakjarninn) VIÐ ERUM Á TVEIMUR STÖÐUM: E N N E M M / S ÍA / N M 5 10 0 4

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.