Fréttablaðið - 14.03.2012, Side 21

Fréttablaðið - 14.03.2012, Side 21
KYNNING − AUGLÝSING Bílar & fjármögnun14. MARS 2012 MIÐVIKUDAGUR 3 Fólk er í auknum mæli farið að horfa á rekstrarkostnað bíls-ins ekki síður en kaupverð- ið þegar hugað er að bílakaupum,“ segir Jón Hannes Karlsson, fram- kvæmdastjóri Ergo, fjármögnun- arþjónustu Íslandsbanka. Á síð- ustu árum hefur eldsneytiskostn- aður hækkað verulega og því vegur sá kostnaður þyngra í heimilisbók- haldinu en áður. Bílaframleiðend- ur hafa brugðist við þessu með því að framleiða sparneytnari og um- hverfishæfari bíla og er því gott úrval af slíkum bílum á markaðn- um í dag. Stjórnvöld hafa einnig gert miklar breytingar á gildandi lögum um vörugjöld. Í stað þess að miða við rúmtak véla var í árs- lok 2010 byrjað að miða við meng- un í útblæstri. Einnig er heimild í þessum lögum til lækkunar á vöru- gjöldum á bifreiðum sem knúnar eru af metani. Þessar breytingar hafa haft áhrif á það hvaða nýja bíla einstaklingar og fyrirtæki eru að kaupa. Grænir bílar – græn lán Ergo hefur frá stofnun boðið sér- kjör á bílalánum til kaupa á spar- neytnum bílum með því að fella niður lántökukostnað á öllum bílum, nýjum sem gömlum, sem losa 0 til 120 g af Co2 á hvern ekinn kílómetra. Markmið Ergo er að hjálpa viðskiptavinum að taka upplýsta ákvörðun við kaup á bílum og atvinnutækjum og um leið að styðja fjölgun umhverfis- hæfari bíla á Íslandi. „Grænu lánin hafa fengið frábærar viðtök- ur en stór hluti allra nýrra bíla- lána hjá Ergo eru græn lán,“ segir Jón Hannes. Í ljósi þess hve frábær- ar viðtökur grænu bílalánin hafa fengið hefur verið ákveðið að fram- lengja tilboð um græn bílalán án lántökugjalda út júní mánuð 2012. Reiknaðu þig græna/n Á vefsíðu Ergo eru reiknivélar frá Orkusetri sem sýna svart á hvítu hvernig val á sparneytnum bíl getur sparað háar fjárhæðir. Þar er meðal annars hægt að sjá hversu miklu bíllinn eyðir í bensín og hversu mikið hann mengar. Einnig er hægt að sjá samanburð á eyðslu, útblæstri og bifreiðagjöldum bíl- tegunda auk þess sem bíllinn getur fengið eyðslueinkunn eftir því hvað hann eyðir miklu elds- neyti. „Ég ráðlegg öllum að skoða þessar reiknivélar áður en tekin er ákvörðun um hvaða bíl skal kaupa. Þarna er hægt að skoða hvernig rekstrarkostnaðurinn breytist eftir því hvaða bíltegund þú velur,“ segir Jón Hannes. Bílar með reynslu Innflutningur á bílum dróst veru- lega saman á árinu 2008 og hefur því aldur bílaflotans hækkað þrátt fyrir aukningu í innflutningi á þessu ári. Um 30% bílaflotans er 6 til 10 ára gamall. Lánamögu- leikar á eldri bílum hafa verið tak- markaðir og því oft erfitt fyrir við- skiptavini að festa kaup á eldri bíl. „Árgerðarbilið sem varð á árun- um 2008 til 2011 hefur ýtt fólki út í kaup á eldri bílum. Til að koma til móts við viðskiptavini okkar ákváðum við að bjóða upp á fjár- mögnun á eldri bílum,“ segir Jón Hannes. Ergo býður upp á allt að 60% fjármögnun á allt að 10 ára gömlum bílum. Hámarksfjár- mögnun er 2,5 milljónir króna og lágmarksverðmæti bifreiðar er 800 þúsund krónur. „Við sjáum ákveðinn viðsnúning í bílaviðskiptum. Það var lítið um að vera á markaðnum í nokkurn tíma og fólk hélt að sér höndum. Nú er aftur á móti að færast líf í viðskiptin að nýju en það sjáum við best á því að útlán hafa tvö- faldast milli ára,“ segir Jón Hann- es. Hann hvetur þá sem eru í þeim hugleiðingum að kaupa bíl að hafa samband við Ergo þar sem ráðgjaf- ar geta farið yfir málin með þeim. Verndaðu umhverfið og veskið Grænu lánin frá Ergo hafa hitt í mark en Ergo hefur frá stofnun boðið sérkjör á bílalánum til kaupa á sparneytnum bílum. Jón Hannes segir fólk í auknum mæli farið að horfa í rekstrarkostnað ekki síður en bílverð við kaup á bílum. E N N E M M / S ÍA / N M 5 0 4 9 1 Hagsýnir heimilisbílar Suðurlandsbraut 14 > sími 440 4400 > www.ergo.is > ergo@ergo.is Að endurnýja bílinn í dag getur borgað sig. Kannaðu kosti grænna bílalána og reiknaðu dæmið til enda á ergo.is 1Blönduð eyðsla á hverja 100 km 2Rekstur í eitt ár á meðalstórum fólksbíl m.v. að bensínverð sé 243 kr., dísilverð 254 kr. og akstur á ári 20.000 km. Árgerð 20052 sjálfskiptur · bensín Árgerð 20122 beinskiptur · dísil Sparnaður á ári 228.240 kr.Eyðsla1 228.600 kr. 4,5 l 456.840 kr. 9,4 l - = 24.780 kr.Bifreiðagjöld 9.460 kr.34.240 kr. - = 2.100 kgCO2 útblástur 2.380 kg 119 g/km 4.480 kg 224 g/km - =

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.