Fréttablaðið - 14.03.2012, Síða 32

Fréttablaðið - 14.03.2012, Síða 32
24 14. mars 2012 MIÐVIKUDAGUR Tónlist ★★★★ ★ Kveldúlfur Myrra Rós Hæg og angurvær Myrra Rós Þrastardóttir fór ekki að spila á hljóðfæri fyrr en hún var orðin tvítug. Þá keypti hún sér gítar, byrjaði að læra á hann og fór svo að semja lög. Hún vakti fyrst athygli sem hluti af félagsskapnum Trúbatrixur og hún hefur verið dugleg að spila á tónleikum undanfarin ár, bæði undir þeirra hatti og á eigin vegum. Kveldúlfur er hennar fyrsta plata. Myrra var greinilega ekki að flýta sér að koma henni út. Platan var tekin upp á löngum tíma, á nokkrum stöðum og með aðstoð fjölmargra tónlistarmanna, m.a. meðlima Hjálma, KK sem spilar á kassagítar í titillaginu og Ryan Karazija sem bakraddar í laginu Sail on. Kveldúlfur lætur frekar lítið yfir sér við fyrstu kynni, en við frekari spilun koma gæði þessara laga og útsetninga í ljós. Það eru níu lög á plötunni og öll góð. Best er Myrra í rólegustu og angurværustu lögunum, t.d. Sail On, Við og við tvö, River og Láru lagi sem er mitt uppáhaldslag á plötunni. Lögin Milo, Kveldúlfur og Animal, sem eru aðeins hraðari, gefa þeim samt lítið eftir. Myrra er fín söngkona og greinilega ágætur lagasmiður. Hún semur lögin á Kveldúlfi ásamt bassaleikaranum Andrési Lárussyni. Textarnir, sem Myrra semur ein, eru líka fínir, en þeir eru ýmist á ensku eða íslensku. Það er góð leið til þess að ná beint til íslenskra hlustenda (íslenskir textar snerta okkur oft meira), án þess að loka á hlustendur úti í hinum stóra heimi. Á heildina litið er Kveldúlfur mjög fín plata. Fyrsta ómissandi íslenska poppplatan á árinu 2012. Trausti Júlíusson Niðurstaða: Fyrsta plata Myrru Rósar er gæðagripur. Matthew Eisman myndaði hóp ungra íslenskra tónlist- armanna á Íslandi í janúar. Hann getur vel hugsað sér að endurtaka leikinn. „Andrúmsloftið í myndatökunum var mjög skemmtilegt og óþving- að. Við spiluðum á hljóðfæri, borð- uðum kex og fífluðumst hvert í öðru,“ segir bandaríski ljósmynd- arinn Matthew Eisman. Hann segist vel geta hugsað sér að mynda fleiri íslenskar hljóm- sveitir eftir að hafa myndað nokkrar slíkar af yngri kynslóð- inni hér á landi í janúar. „Það eru margir fleiri íslenskir tónlistar- menn sem mig langar að tengjast og ljósmynda í kjölfarið. Það væri frábært að geta haldið áfram með þetta verkefni,“ segir hann. Eisman sérhæfir sig í að mynda hljómsveitir og tónlistarmenn og hafa myndir hans birst í The New York Times, SPIN, Brooklyn Vegan og víðar. Hann starfrækir vefsíðuna Musicinfocus.net, sem er ein sú vinsælasta í New York fyrir tónlistarljósmyndir. Íslensku hljómsveitunum, þar á meðal Sykri, Jeff Who?, Valdimar, Borko og Mammút, kynntist hann á Iceland Airwaves í fyrra þegar hann var að mynda hátíðina. Í framhaldinu ákvað hann að kynnast þeim betur í von um að geta náð af þeim and- litsmyndum. „Ég er ánægður með hve íslenska tónlistarsenan er lítil og náin. Hljómsveitirnar forðast að herma hver eftir annarri og í staðinn vilja þær skapa eitthvað nýtt og öðru- vísi. Þetta umhverfi býr líka til vinalega samkeppni sem hvetur hljómsveitirnar til að verða betri.“ Aðspurður segir Eisman að myndatökurnar á Íslandi hafi gengið framar vonum. „Ég vildi hafa nóg fyrir stafni á meðan á stuttri dvöl minni á Íslandi stóð og vildi mynda eins mikið og ég gat. Ég hafði samband við allar hljóm- sveitirnar sem ég þekkti og vonaði það besta. Ég bjóst við að einhverj- ar myndu samþykkja að taka þátt og aðrar ekki en þær sögðu allar „já“. Ég vissi að ég hefði úr nægum efnivið að moða og þannig fékk ég hugmyndina að þessari myndaröð,“ segir Eisman. freyr@frettabladid.is Vill halda áfram að mynda íslenska tónlistarmenn TÓK ANDLITSMYNDIR Matthew Eisman tók fjöldann allan af andlitsmyndum hér á landi, meðal annars af tónlistarmanninum Borko. MYND/MATTHEW EISMAN Bandaríska leikkonan Jes- sica Biel upplýsti lesendur W Magazine að hún hafi aldrei átt samleið með stúlkum og vildi heldur leika sér við stráka þegar hún var barn. „Fyrsta kvikmyndin sem ég man eftir að hafa horft á var The Goonies. Ég átti aldrei samleið með öðrum stelpum og fannst þess vegna heillandi að horfa á „stráka- myndir“. Stelpur voru hræddar við að fara inn í hella, þær voru hræðslu- púkar og ég var það ekki. Ég var hrifin af hugmyndinni að vera hluti af strákagengi og ramba fram á holur fulla af snákum,“ sagði leikkonan í vitaðlinu. Vildi vera í strákahóp UTANGÁTTA Jessica Biel vildi vera í strákahóp þegar hún var ung. NORDICPHOTOS/GETTY MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS CAFÉ/BAR, opið 17-23 / www.bioparadis.is / midi.is Hluti af Europa Cinemas MIÐVIKUDAGUR: BLACK’S GAME (SVARTUR Á LEIK) 17:40, 20:00, 22:20 BLIKKIÐ 18:00 MACHINE GUN PREACHER 17:30, 22:00 THE SKIN I LIVE IN 22:20 GAIA 20:00 SLÓÐAVINIR 20:00 THE DESCENDANTS 20:00, 22:20 MY WEEK WITH MARILYN 18:00 ÍSL. TEXTI ENG. SUBS “MOVES LIKE A SNAKE ON SPEED” -TWITCHFILM SVARTUR Á LEIK (BLACK’S GAME) ENGLISH SUBTITLES BLIKKIÐ SAGA MELAVALLARINS SKÓLANEMAR: 25% afsláttur gegn framvísun skírteinis! Sami afsláttur fyrir öryrkja og eldri borgara. FT FBL MBL DV PRESSAN.IS KVIKMYNDIR.IS TOPPMYNDIN Á ÍSLANDI 30.000 MANNS Þ.Þ., FRÉTTATÍMINN H.V.A., FRÉTTABLAÐIÐ SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.ISGLERAUGU SELD SÉR 5% THE VOW KL. 5.40 - 8 - 10.20 L SVARTUR Á LEIK KL. 5.30 - 8 - 10.30 16 SVARTUR Á LEIK LÚXUS KL. 5.30 - 10.30 16 TÖFRATENINGURINN KL. 3.40 L THIS MEANS WAR KL. 8 - 10.15 14 STAR WARS EPISODE 1 3D ÓTEXTUÐ KL. 5 10 SAFE HOUSE KL. 5.40 - 8 - 10.30 16 SKRÍMSLI Í PARÍS 3D KL. 3.40 L ALVIN OG ÍKORNARNIR 3 KL. 3.40 L BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS SVARTHÖFÐI.IS FRÉTTABLAÐIÐ THE VOW KL. 5.40 - 8 - 10.20 L SVARTUR Á LEIK KL. 5.30 - 8 - 10.30 16 SAFE HOUSE KL. 10.15 16 GHOST RIDER 3D ÓTEXTUÐ KL. 5.40 12 THIS MEANS WAR KL. 8 - 10.15 14 LISTAMAÐURINN KL. 5.45 - 8 L FRÁBÆR FJÖLSKYLDUMYND MEÐ ÍSLENSKU TALI THE VOW KL. 6 - 8 - 10 L SVARTUR Á LEIK KL. 6 - 8 - 10 16 HVAÐ EF SÍÐUSTU FIMM ÁR ÆVI ÞINNAR HYRFU Á EINU AUGNABLIKI? BYGGÐ Á SANNSÖGULEGUM ATBURÐUM. 10 EGILSHÖLL 12 16 L 7 7 FYRSTA STÓRMYND ÁRSINS. SÝND Í 2D OG 3D MÖGNUÐ ÆVINTÝRAMYND Í 3D ÁLFABAKKA 10 7 7 7 12 V I P 16 16 L JOHN CARTER kl. 5:20 - 8 - 10:40 3D JOHN CARTER kl. 10:10 2D JOHN CARTER Luxus VIP kl. 5:20 - 8 - 10:40 2D THE WOMAN IN BLACK kl. 8 - 10:10 2D JOURNEY 2 : THE MYSTERIOUS ISLAND kl. 5:50 - 8 2D A FEW BEST MEN kl. 8 - 10:30 2D HUGO Með texta kl. 5:30 - 8 2D CONTRABAND kl. 10:10 2D STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN M/ ísl. Tali kl. 5:50 2D 10 10 7 7 16 KRINGLUNNI JOHN CARTER kl. 5:20 - 8 - 10:40 3D THE WOMAN IN BLACK kl. 8 - 10:10 2D JOURNEY 2 : THE MYSTERIOUS ISLAND 3D kl. 5:50 - 8 3D HUGO Með texta kl. 10:10 2D EXTREMLY LOUD AND INCREDIBLY CLOSE M/ ísl. Tali kl. 5:20 3D KEFLAVÍK 7 12 16 JOHN CARTER kl. 8 3D SVARTUR Á LEIK kl. 10:40 2D A FEW BEST MEN kl. 8 - 10:10 2D AKUREYRI 7 7 12 16 JOHN CARTER kl. 8 3D JOURNEY 2: THE MYSTERIOUS ISLAND kl. 6 3D THE WOMAN IN BLACK kl. 10:40 2D A FEW BEST MEN kl. 8 - 10:20 2D PLEASANT SURPRISE - C.B, JOBLO.COM EXPLOSIVE – J.D.A, MOVIE FANATIC “PURE MAGIC” – H.K, AIN’T IT COOL NEWS “VISUALLY STUNNING” – K.S, FOX TV JOHN CARTER kl. 5:10 - 8 - 10:10 3D THE WOMAN IN BLACK kl. 8 - 10:10 2D JOURNEY 2: THE MYSTERIOUS ISLAND kl. 5:50 - 8 3D FRÍÐA OG DÝRIÐ m/ísl tali kl. 6 3D HUGO kl. 5:20 2D A FEW BEST MEN kl. 10:10 2D blurb.com Frá höfundi Death at a Funeral.Frábær gamanmynd með sótsvörtum húmor FRÁBÆR ÆVINTÝRAMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA VANESSA HUDGENS, MICHAEL CAINE OG DWAYNE „THE ROCK“ JOHNSON TRYGGJA ÓSTÖÐVANDI BÍÓSKEMMTUN MÖGNUÐ ÞRÍVÍDD Toppmyndin á Íslandi og vinsælasta myndin í heiminum í dag Time Movieline Myndin sem hefur setið síðustu 3 vikur á toppnum í Bretlandi og notið gríðarlega vinsælda í USA. Ein besta draugamynd síðari ára JOHN CARTER 3D 7 og 10.15 SVARTUR Á LEIK 5.50, 8 og 10.15 SAFE HOUSE 8 og 10.20 THE IRON LADY 5.50 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar V.J.V. - Svarthöfði.is C.B. - JOBLO.COM MÖGNUÐ ÆVINTÝRA MYND Í 3D H.S.K. - MBL FT DV MBL FBL www.laugarasbio.is -bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar 5%

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.