Fréttablaðið - 11.04.2012, Side 10
11. apríl 2012 MIÐVIKUDAGUR10
DÓMSMÁL Dómari við breskan
dómstól, High Court, átelur bresku
efnahagsbrotalögregluna Serious
Fraud Office (SFO) harðlega fyrir
að geta ekki lagt fram nein gögn
sem legið hafi til grundvallar hús-
leitum hjá auðkýfingnum Vincent
Tchenguiz í mars í fyrra.
Aðgerðirnar sem SFO réðst í
í mars í fyrra voru gríðarlega
umfangsmiklar og beindust að
bræðrunum Robert og Vincent
Tchenguiz og Kaupþingi og lána-
viðskiptum þeirra á milli. 135
manns tóku þátt í þeim og níu voru
handteknir, þeirra á meðal Sigurð-
ur Einarsson, Ármann Þorvalds-
son og aðrir íslenskir fyrrverandi
starfsmenn Kaupþings.
Í febrúar síðastliðnum neyddist
SFO til að senda frá sér þriggja
blaðsíðna skriflega afsökunar-
beiðni til Vincents Tchenguiz og
viðurkenna að aðgerðirnar hefðu
grundvallast á röngum upplýsing-
um. Á sama tíma lýsti SFO því yfir
að rannsóknin mundi halda áfram.
Fyrir dómi í síðustu viku fór
SFO fram á sex vikna frest til
viðbótar til að sýna fram á það
á hverju málið grundvallaðist,
að því er segir í breska blaðinu
Financial Times.
Dómarinn, Sir John Thomas,
sagði að það væri með öllu óviðun-
andi að SFO hefði enn ekki skilað
af sér þessum rökstuðningi. Eina
skýringin væri „alger vanhæfni“.
„Ég hef aldrei kynnst öðru eins,“
bætti hann við, samkvæmt Fin-
ancial Times. Hann veitti þó frest
til loka apríl.
SFO afsakaði sig með því að
nákvæmar upplýsingar um upp-
haf og aðdraganda rannsókn-
arinnar væru einfaldlega ekki
lengur til staðar hjá embættinu.
Margir af upphaflegum rannsak-
endum væru hættir störfum hjá
stofnuninni og sumir jafnvel flutt-
ir úr landi.
Vincent Tchenguiz sagði
óskiljan legt að SFO hygðist halda
áfram rannsókninni á málefn-
um hans í ljósi alls þessa. „Þegar
ég var í skóla hélt ég því gjarn-
an fram að hundurinn hefði étið
heimaverkefnin mín. Það er allt
í lagi fyrir skólastrák, en frekar
aumt af opinberum eftirlitsaðila,“
er haft eftir honum.
Tchenguiz telur aðgerðirnar
hafa skaðað sig og starfsemi sína
og hefur höfðað hundrað milljóna
punda skaðabótamál vegna þess,
jafnvirði um 20 milljarða króna.
stigur@frettabladid.is
MBA kynningarfundur
12. apríl kl. 16:00 í stofu 101 á Háskólatorgi
MBA-námið í Háskóla Íslands:
• Eflir persónulega færni og leiðtogahæfileika á sviði rekstrar og stjórnunar
• Byggir á mikilli reynslu og tengslum við íslenskt atvinnulíf
• Ýtir undir frumkvæði, færni og forystueiginleika nemenda
Námið er tveggja ára metnaðarfullt meistaranám fyrir stjórnendur og er
skipulagt samhliða starfi. Að öllu jöfnu er kennt á föstudögum og laugardögum
aðra hvora helgi. Umsóknarfrestur er 5. júní.
Skoraðu á þig og taktu skrefið
www.mba.is
Ársfundur Kjalar
lífeyrissjóðs
Kjölur lífeyrissjóður boðar hér með til ársfundar
sjóðsins. Fundurinn verður haldinn á Grand Hótel,
Sigtúni 38 í Reykjavík, fimmtudaginn 26. apríl
2012 kl. 17.00.
Allir sjóðsfélagar og rétthafar eiga rétt á setu
á ársfundinum.
Dagskrá:
1. Almenn ársfundarstörf samkvæmt
samþykktum sjóðsins.
2. Tillaga stjórnar um samruna
við Söfnunarsjóð lífeyrisréttinda.
3. Önnur mál löglega upp borin.
Ársfundargögn er hægt að nálgast á vefsíðu
sjóðsins, www.landsbankinn.is/ls/kjolur og hjá
Verðbréfa- og lífeyrisráðgjöf Landsbankans,
Austurstræti 11.
Reykjavík, 11. apríl 2012
Virðingarfyllst,
stjórn Kjalar lífeyrissjóðs
AÐAL-
FUNDUR
VM 1 4 . a p r í l 2 0 1 2 a ð G r a n d H ó t e l í R e y k j a v í k
DAGSKRÁ:
Kl. 13.00. Setning aðalfundar og kosning fundarstjóra
Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins
Reikningar félagsins og sjóða
Umræður um skýrslu og reikninga
Kjör endurskoðenda, E&Y
Reglugerða- og lagabreytingar
Ákvörðun stjórnarlauna
Lýst kjöri stjórnar og varastjórnar VM í stjórnarkjöri 2012
Kjör í nefndir og stjórnir sjóða
Kjör í fulltrúaráð
Kynning á uppbyggingu orlofssvæðis
á Laugarvatni
Önnur mál
Boðið verður upp á léttar
veitingar að fundi loknum
Heimir & Kolla vakna með þér í bítið
Fréttir, fróðleikur og frábær tónlist alla virka morgna kl. 6.50 – 9.00
Dómari segir SFO
algjörlega vanhæfa
Breskur dómari segist forviða á því hvað breska efnahagsbrotalögreglan á erfitt
með að reiða fram gögn til stuðnings húsleitum hjá Kaupþingi og Tchenguiz-
bræðrum í fyrra. SFO segir djúpt á gögnunum vegna mikillar starfsmannaveltu.
VINCENT TCHENGUIZ Hann hefur farið
fram á 20 milljarða íslenskra króna í
skaðabætur vegna málsins.
SIGURÐUR OG ÁRMANN Sigurður Ein-
arsson, fyrrverandi stjórnarformaður
Kaupþings, og Ármann Þorvaldsson,
forstjóri Kaupþings Singer & Fried-
lander, voru handteknir vegna málsins
í fyrra.