Fréttablaðið - 11.04.2012, Side 11

Fréttablaðið - 11.04.2012, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 11. apríl 2012 11 arionbanki.is – 444 7000 Föstudaginn 13. apríl kl. 9-13 í Arion banka, Borgartúni 19. Dagskrá: Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson opnar þingið Joachim Krohn-Høegh, framkvæmdastjóri Argentum í Noregi Argentum er einn stærsti áhættufjárfestingarsjóður Noregs með um 150 milljarða króna eignasafn. Torkel Ystgaard, aðstoðarframkvæmdastjóri SIVA SIVA er norska nýsköpunarmiðstöðin en hún rekur 44 iðnaðargarða og er hluthafi í 145 sprotafyrirtækjum. Svana Helen Björnsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins Framtíð nýsköpunar og sprotafyrirtækja á Íslandi. Einar Gunnar Guðmundsson, Arion banka Stuðningur og framlag Arion banka til nýsköpunar á Íslandi. Sprotaþing Íslands (Seed Forum Iceland) hefur um árabil verið einn helsti vettvangur íslenskra sprotafyrirtækja til að kynna sig fyrir fjárfestum og íslensku athafnalífi. Á þessu Sprotaþingi munu átta fyrirtæki kynna starf- semi sína , þar af fimm íslensk, tvö norsk og eitt sænskt/breskt fyrirtæki . Með stuðningi sínum vill Arion banki undirstrika mikilvægi fyrirtækja- og verðmætasköpunar fyrir íslenskt samfélag. Fleiri en 100 sprotafyrirtæki hafa kynnt sig fyrir fjárfestum á Sprotaþingi frá því að fyrsta þingið var haldið árið 2005. Sprotaþing Íslands í samstarfi við Arion banka Skráning á www.seedforum.is LÖGREGLUMÁL Magne Dyb, skipstjóri á norska línuveiðiskipinu Ny Argo, segist ekki hafa vitað að hann hafi verið á línuveiðum á bann- svæði. Þetta kom fram í viðtali norska útvarpsins við hann í gærmorgun. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær stóð Landhelgisgæslan skipið að meintum ólög- legum veiðum í Skeiðarárdjúpi, nærri 30 sjó- mílum suður af Ingólfshöfða, í fyrradag. Var skipstjóranum skipað að sigla til hafnar og kom skipið til Vestmannaeyja í fyrrakvöld og yfirheyrði lögreglan skipverjana þegar í stað. Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum vonast til að hægt verði að dómtaka málið á næstu dögum. Sektin getur numið allt að fjórum milljónum króna. Óvíst er hvort skipstjórinn bíði eftir dómnum því útgerð skipsins getur lagt fram tryggingu vegna sektarinnar. Eftir það getur skipið lagt úr höfn. Ny Argo ætlaði aðallega að veiða löngu á svæðinu, en samkvæmt reglugerð um vernd- un kóralsvæða úti af Suður- og Suðvesturlandi er bannað að veiða annað en uppsjávarfisk á svæðinu. Bæði skipstjórinn og útgerðarmaður skipsins segjast hafa skoðað heimasíðu sjávarútvegs- ráðuneytisins og Fiskistofu áður en haldið var á miðin, og ekki getað fundið neitt um bannið. Skipstjóri norska línuveiðiskipsins, sem staðið var að ólöglegum veiðum, ber fyrir sig þekkingarleysi : Segist ekki hafa vitað af veiðibanni á kóralsvæði Í VESTMANNAEYUM Norska skipið Ny Argo, sem staðið var að ólöglegum veiðum í Skeiðarárdjúpi, kom til Vest- mannaeyja í gærkvöldi. MYND/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON VIÐSKIPTI Stórfyrirtækið Sony gerir ráð fyrir því að tapa sex og hálfum milljarði Bandaríkja- dala, eða 840 milljörðum króna, á þessu ári en fyrirtækið sendi frá sér viðvörun þessa efnis í gær. Áður var gert ráð fyrir þriggja milljarða dollara, eða 390 millj- arða króna tapi. Raftækjarisinn á í miklum erfiðleikum en hann hefur skilað tapi undanfarin þrjú ár. Gert er ráð fyrir að Sony reki 10 þúsund starfsmenn á árinu til þess að mæta tapinu og minnki umfang sitt til muna. Stóra vandamálið hefur verið sjónvarpstækjafram- leiðslan en tap hefur verið á þeim rekstri síðustu átta ár. Viðvörun frá raftækjarisa: Sony tapar um 840 milljörðum LEIKJATÖLVA Sony framleiðir meðal annars PSP-leikjatölvurnar. TÆKNI Maðurinn sem fann upp Commodore 64-tölvurnar, Jack Tramiel, er látinn. Hann lést 8. apríl síðastliðinn, 83 ára að aldri. Í umfjöllun um Tramiel á danska viðskiptavefnum epn.dk segir að hann sé ef til vill ekki jafn þekktur og Bill Gates, Steve Jobs eða Michael Dell en áhrif hans í tölvuheiminum hafi ef til vill ekki verið minni. Markmið hans var að framleiða tölvur sem allir gætu eignast og það tókst honum því Commodore-tölvurn- ar voru á sínum tíma vinsælustu tölvur í heimi. - jhh Bjó til eina vinsælustu tölvuna: Upphafsmaður Commodore- tölvanna látinn SJÁVARÚTVEGSMÁL Stjórnir Far- manna- og fiskimannasambands Íslands og Félags skipstjórnar- manna mótmæla harðlega fram- komnum kvótafrumvörpum ríkis- stjórnarinnar. Í sameiginlegri ályktun stjórnanna segir að frumvörpin séu unnin án alls samráðs við atvinnugreinina og verði þau að lögum muni þau auka ósætti innan greinarinnar með ófyrir- sjáanlegum afleiðingum. Þá muni kjör sjómanna versna verulega og leigubrask aukast. - sh Kvótafrumvörpin gagnrýnd: Sjómenn á móti frumvörpunum LÖGREGLUMÁL Brotist var inn í þrjá sumarbústaði í umdæmi lög- reglunnar í Borgarfirði í vikunni. Bústaðirnir eru á Dagverðar- nesi og Indriðastöðum í Skorra- dal og á Borgum í Stafholtstung- um, skammt frá Gljúfurá, að því er fram kemur á Skessuhorni.is. Einhverjar skemmdir voru unnar á bústöðunum. Úr einum bústaðn- um var stolið flatskjá og verkfær- um úr öðrum. Þá var brotist inn í gamla sölu- skálann í Botni í Hvalfirði. Það mál er upplýst, en þar voru unnar skemmdir. Unnið er að rannsókn málsins. - kh Innbrot í sumarbústaði: Stolið og spillt í Borgarfirði

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.