Fréttablaðið - 11.04.2012, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 11.04.2012, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 11. apríl 2012 13 Við höfum nú búið við gjald-eyris höft frá nóvemberlokum 2008. Í upphafi bundum við vonir við að hægt væri að leysa úr þeim vanda á 3 til 12 mánuðum. Nú þremur og hálfu ári síðar er ekk- ert sem bendir til að það takist að losna við höftin í fyrirsjáanlegri framtíð. Mikil krónueign erlendra aðila hefur frá upphafi staðið afnáms- ferlinu fyrir þrifum. Í aðdrag- anda hruns sóttu erlendir aðilar í að kaupa krónur til að njóta þeirra ofurvaxta sem Seðlabank- inn bauð í vanhugsaðri tilraun til að halda aftur af innlendri verðbólgu með því að halda gengi krónunnar uppi. Eftir fall Lehman-bankans í september 2008 vildu útlendingarnir allir skipta krónunum sínum til baka. Flóttinn var svo hraður að gengi krónunnar féll ekki aðeins heldur hrundi gjaldeyrismarkaðurinn og viðskiptin námu staðar, því eng- inn mótaðili var til staðar á hinni hliðinni til þess að kaupa krónur. Þannig hrundi krónan á undan bönkunum og hundruð milljarða af fé erlendra spákaupmanna frusu inni. Það fé er hér enn. Aflandskrónueignin var metin um 470 milljarðar íslenskra króna fyrir um ári síðan. Þjóðin hefur ekki þann gjaldeyri hand- bæran sem þarf til þess að leysa þessa fjármuni út. Og sú stað- reynd var meginástæðan til þess að höftin voru sett. Stefna um afnám í öngstræti Til að leysa úr aflandskrónuvand- anum var í stefnumörkun stjórn- valda og Seðlabanka lögð höfuð- áhersla á leið gjaldeyrisútboða, til að leiða saman þá sem mögu- lega gætu viljað koma með gjald- eyri inn og þá sem vildu losna út með krónueignir. Útboðin hafa á undanförnum mánuðum verið réttilega gagnrýnd fyrir að vera seinvirk leið til lausnar á vandan- um. Þrátt fyrir margar tilraunir, hefur einungis náðst að minnka aflandskrónustöðuna um ein- hverja tugi milljarða í gjaldeyris- útboðum Seðlabankans. Þrýst hefur verið á lífeyris- sjóði um þátttöku í útboðunum, en þeir haft á því lítinn áhuga, enda erlendar eignir þeirra verðmætar og fáir fjárfestingarkostir í boði fyrir þá hér á landi. Þvert á móti er þörf á því fyrir lífeyrissjóð- ina að auka á fjárfestingar þeirra erlendis til að dreifa áhættu sjóð- anna. Það er því alltaf skamm- góður vermir að ætla lífeyris- sjóðunum að flytja mikla peninga heim, því þeir munu sækja fljótt í að koma því fé aftur í ávöxtun utan landsteinanna. Það er þeirra hlutverk að ávaxta lífeyri lands- manna með eins góðum hætti og kostur er í raunverulegum hand- bærum verðmætum, en ekki kasta því fé í æfingar til að bjarga veik- burða gjaldmiðli sem gætu hæg- lega rýrt greiðslugetu lífeyrissjóð- anna þegar til lengri tíma er litið. Léleg þátttaka í síðasta gjald- eyrisútboði Seðlabankans sýnir þennan vanda í hnotskurn. Þátt- takan í útboðinu var nær engin og tilboð lífeyrissjóðanna bera þess merki að þeir hafa ekki raunveru- legan vilja til þátttöku í verk- efninu á þessum forsendum, þótt þeir taki þátt að nafninu til. Vandinn hefur vaxið En eins og það væri ekki nóg, bætist við sú staðreynd að magn þeirra krónueigna sem leysa þarf út hefur farið vaxandi þar sem komið hefur í ljós að þrotabú gömlu bankanna eiga verulegar krónueignir sem hinir erlendu kröfuhafar þeirra vilja gjarnan leysa til sín. Þessar eignir gætu orðið á bilinu 500-700 milljarðar. Með nýlegum lagabreytingum voru þessar eignir felldar undir höftin. Í stað þess að við séum að fást við vanda sem nemur tæpum 30% af þjóðarframleiðslu getur vandinn því orðið í kringum 60% af þjóðarframleiðslu. Það má því halda því fram með nokkrum rétti að stefna Seðla- bankans um afnám hafta sé komin í algerar ógöngur. Lítill árangur hefur verið af gjald- eyrisútboðunum og á sama tíma hefur heildarvandinn vegna krónueignar erlendra aðila meira en tvöfaldast. Sérfræðingar eru sammála um að Seðlabanka- stefnan muni ekki geta leitt til afnáms hafta innan ásættanlegs tíma. Þetta er bara eins og ausa lekan togara með fingurbjörg. Það er fræðilega mögulegt, en tekur afskaplega langan tíma og árangur er háður því að lek- inn inn sé minni en austursgeta fingurbjargarinnar. Á meðan bíða allir … Að öðru óbreyttu stefnir í að þjóðin þrasi um óraunhæf ævintýri á borð við einhliða upptöku Kanadadoll- ars enn um sinn og engin raunhæf lausn verði til. Við getum þá beðið og vonað að einhvern hvalreka beri á fjörurnar, s.s. að olía finnist á Drekasvæðinu, sæstrengur til Bretlands skili gríðarmiklum arði af orkuauðlindum landsins eða eitthvað annað verði til sem skili þeim gjaldeyri sem nauðsynlegur er til þess að kaupa út hina erlendu spákaupmenn. Sú bið gæti tekið ár og áratugi. Á meðan myndi íslenskt atvinnulíf bíða hrikalegt tjón, eins og ég rakti í fyrstu grein minni um þessi mál. Það liggur fyrir að einfaldasta leiðin til afnáms hafta er með aðild að ESB og undirbúningi upp- töku evru. Vandinn við þá leið er annars vegar sá að ekki hefur náðst að byggja nægilega góða samstöðu um hana og að afnáms- ferli á þeim grunni getur heldur ekki hafist fyrir en eftir að aðild að ESB hefur verið samþykkt í þjóðaratkvæði. Þjóðaratkvæða- greiðslan getur fyrst farið fram eftir tvö ár. Að óbreyttu verður því ekkert gert sem máli skiptir í afnámi hafta, fyrr en í fyrsta lagi seint á árinu 2014. Ef aðild verður hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu, höfum við engin svör. Það er algerlega óásættanlegt að halda fleyinu stefnulausu svo lengi. Þetta er slæmt fyrir okkur sem viljum aðild að ESB, en enn verra fyrir áhugamenn um fram- tíð Íslands utan ESB. Þeir geta ekki verið þekktir að því að hafa enga trúverðuga stefnu um gengis- og peningamál til næstu ára, sem gerir afnám hafta mögulegt. Er okkur sama þótt við töpum sam- keppnishæfum fyrirtækjum, íslenskt atvinnulíf molni og við fáum enga erlenda fjárfestingu? Það er óhjákvæmilegt að hugsa stefnu um afnám hafta upp á nýtt. Um hugmyndir í þá veru fjalla ég í síðustu greininni í þessum flokki. Að ausa fley með fingurbjörg – veikleikar núverandi stefnu um afnám hafta Gjaldeyrishöft Árni Páll Árnason þingmaður Það er algerlega óásættanlegt að halda fleyinu stefnulausu svo lengi. Þetta er slæmt fyrir okkur sem viljum aðild að ESB, en enn verra fyrir áhugamenn um framtíð Íslands utan ESB. Þeir geta ekki verið þekktir að því að hafa enga trúverðuga stefnu um gengis- og peninga- mál til næstu ára, sem gerir afnám hafta mögulegt. Arður í orku framtíðar ÁRSFUNDUR LANDSVIRKJUNAR Silfurbergi, Hörpu Fimmtudagur 12. apríl 2012 kl. 14-16 Aukin eftirspurn eftir raforku úr endurnýjanlegum orkugjöfum skapar margvísleg tækifæri sem Landsvirkjun hefur að undanförnu unnið við að greina. Niðurstöðurnar gefa til kynna áhugaverð tækifæri með aukinni orkuvinnslu innan núverandi kerfis, uppbyggingu fjölbreytts iðnaðar og útflutningi um sæstreng. > Hver er sérstaða Íslands á alþjóðlegum raforkumörkuðum? > Hver yrðu áhrif sæstrengs á íslenskt samfélag? > Hverjir eru fjármögnunarmöguleikar Landsvirkjunar við breyttar markaðsaðstæður? Landsvirkjun býður öllum til kynningar og opinnar umræðu um þau tækifæri sem fyrirtækið stendur frammi fyrir og árangur ársins 2011. Oddný G. Harðardóttir fjármálaráðherra Ávarp Bryndís Hlöðversdóttir stjórnarformaður Ábyrgir stjórnarhættir Hörður Arnarson forstjóri Árangur og áskoranir Rafnar Lárusson framkvæmdastjóri fjármálasviðs Rekstrarniðurstöður 2011 Spurningar og umræður Fundarstjóri er Ragna Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar. Allir velkomnir Skráning: landsvirkjun.is/skraning Markmið opinna funda Lands virkjunar er að stuðla að gagnsærri og faglegri umræðu um málefni tengd starfsemi fyrirtækisins, sem er í eigu íslensku þjóðarinnar.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.