Fréttablaðið - 11.04.2012, Qupperneq 13
MIÐVIKUDAGUR 11. apríl 2012 13
Við höfum nú búið við gjald-eyris höft frá nóvemberlokum
2008. Í upphafi bundum við vonir
við að hægt væri að leysa úr þeim
vanda á 3 til 12 mánuðum. Nú
þremur og hálfu ári síðar er ekk-
ert sem bendir til að það takist að
losna við höftin í fyrirsjáanlegri
framtíð.
Mikil krónueign erlendra aðila
hefur frá upphafi staðið afnáms-
ferlinu fyrir þrifum. Í aðdrag-
anda hruns sóttu erlendir aðilar
í að kaupa krónur til að njóta
þeirra ofurvaxta sem Seðlabank-
inn bauð í vanhugsaðri tilraun
til að halda aftur af innlendri
verðbólgu með því að halda
gengi krónunnar uppi. Eftir fall
Lehman-bankans í september
2008 vildu útlendingarnir allir
skipta krónunum sínum til baka.
Flóttinn var svo hraður að gengi
krónunnar féll ekki aðeins heldur
hrundi gjaldeyrismarkaðurinn og
viðskiptin námu staðar, því eng-
inn mótaðili var til staðar á hinni
hliðinni til þess að kaupa krónur.
Þannig hrundi krónan á undan
bönkunum og hundruð milljarða
af fé erlendra spákaupmanna
frusu inni. Það fé er hér enn.
Aflandskrónueignin var metin
um 470 milljarðar íslenskra
króna fyrir um ári síðan. Þjóðin
hefur ekki þann gjaldeyri hand-
bæran sem þarf til þess að leysa
þessa fjármuni út. Og sú stað-
reynd var meginástæðan til þess
að höftin voru sett.
Stefna um afnám í öngstræti
Til að leysa úr aflandskrónuvand-
anum var í stefnumörkun stjórn-
valda og Seðlabanka lögð höfuð-
áhersla á leið gjaldeyrisútboða,
til að leiða saman þá sem mögu-
lega gætu viljað koma með gjald-
eyri inn og þá sem vildu losna út
með krónueignir. Útboðin hafa
á undanförnum mánuðum verið
réttilega gagnrýnd fyrir að vera
seinvirk leið til lausnar á vandan-
um. Þrátt fyrir margar tilraunir,
hefur einungis náðst að minnka
aflandskrónustöðuna um ein-
hverja tugi milljarða í gjaldeyris-
útboðum Seðlabankans.
Þrýst hefur verið á lífeyris-
sjóði um þátttöku í útboðunum, en
þeir haft á því lítinn áhuga, enda
erlendar eignir þeirra verðmætar
og fáir fjárfestingarkostir í boði
fyrir þá hér á landi. Þvert á móti
er þörf á því fyrir lífeyrissjóð-
ina að auka á fjárfestingar þeirra
erlendis til að dreifa áhættu sjóð-
anna. Það er því alltaf skamm-
góður vermir að ætla lífeyris-
sjóðunum að flytja mikla peninga
heim, því þeir munu sækja fljótt
í að koma því fé aftur í ávöxtun
utan landsteinanna. Það er þeirra
hlutverk að ávaxta lífeyri lands-
manna með eins góðum hætti og
kostur er í raunverulegum hand-
bærum verðmætum, en ekki kasta
því fé í æfingar til að bjarga veik-
burða gjaldmiðli sem gætu hæg-
lega rýrt greiðslugetu lífeyrissjóð-
anna þegar til lengri tíma er litið.
Léleg þátttaka í síðasta gjald-
eyrisútboði Seðlabankans sýnir
þennan vanda í hnotskurn. Þátt-
takan í útboðinu var nær engin og
tilboð lífeyrissjóðanna bera þess
merki að þeir hafa ekki raunveru-
legan vilja til þátttöku í verk-
efninu á þessum forsendum, þótt
þeir taki þátt að nafninu til.
Vandinn hefur vaxið
En eins og það væri ekki nóg,
bætist við sú staðreynd að magn
þeirra krónueigna sem leysa
þarf út hefur farið vaxandi þar
sem komið hefur í ljós að þrotabú
gömlu bankanna eiga verulegar
krónueignir sem hinir erlendu
kröfuhafar þeirra vilja gjarnan
leysa til sín. Þessar eignir gætu
orðið á bilinu 500-700 milljarðar.
Með nýlegum lagabreytingum
voru þessar eignir felldar undir
höftin. Í stað þess að við séum að
fást við vanda sem nemur tæpum
30% af þjóðarframleiðslu getur
vandinn því orðið í kringum 60%
af þjóðarframleiðslu.
Það má því halda því fram með
nokkrum rétti að stefna Seðla-
bankans um afnám hafta sé
komin í algerar ógöngur. Lítill
árangur hefur verið af gjald-
eyrisútboðunum og á sama tíma
hefur heildarvandinn vegna
krónueignar erlendra aðila meira
en tvöfaldast. Sérfræðingar eru
sammála um að Seðlabanka-
stefnan muni ekki geta leitt til
afnáms hafta innan ásættanlegs
tíma. Þetta er bara eins og ausa
lekan togara með fingurbjörg.
Það er fræðilega mögulegt, en
tekur afskaplega langan tíma
og árangur er háður því að lek-
inn inn sé minni en austursgeta
fingurbjargarinnar.
Á meðan bíða allir …
Að öðru óbreyttu stefnir í að þjóðin
þrasi um óraunhæf ævintýri á borð
við einhliða upptöku Kanadadoll-
ars enn um sinn og engin raunhæf
lausn verði til. Við getum þá beðið
og vonað að einhvern hvalreka
beri á fjörurnar, s.s. að olía finnist
á Drekasvæðinu, sæstrengur til
Bretlands skili gríðarmiklum arði
af orkuauðlindum landsins eða
eitthvað annað verði til sem skili
þeim gjaldeyri sem nauðsynlegur
er til þess að kaupa út hina erlendu
spákaupmenn. Sú bið gæti tekið
ár og áratugi. Á meðan myndi
íslenskt atvinnulíf bíða hrikalegt
tjón, eins og ég rakti í fyrstu grein
minni um þessi mál.
Það liggur fyrir að einfaldasta
leiðin til afnáms hafta er með
aðild að ESB og undirbúningi upp-
töku evru. Vandinn við þá leið
er annars vegar sá að ekki hefur
náðst að byggja nægilega góða
samstöðu um hana og að afnáms-
ferli á þeim grunni getur heldur
ekki hafist fyrir en eftir að aðild
að ESB hefur verið samþykkt í
þjóðaratkvæði. Þjóðaratkvæða-
greiðslan getur fyrst farið fram
eftir tvö ár. Að óbreyttu verður
því ekkert gert sem máli skiptir í
afnámi hafta, fyrr en í fyrsta lagi
seint á árinu 2014. Ef aðild verður
hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu,
höfum við engin svör.
Það er algerlega óásættanlegt
að halda fleyinu stefnulausu svo
lengi. Þetta er slæmt fyrir okkur
sem viljum aðild að ESB, en enn
verra fyrir áhugamenn um fram-
tíð Íslands utan ESB. Þeir geta
ekki verið þekktir að því að hafa
enga trúverðuga stefnu um gengis-
og peningamál til næstu ára, sem
gerir afnám hafta mögulegt. Er
okkur sama þótt við töpum sam-
keppnishæfum fyrirtækjum,
íslenskt atvinnulíf molni og við
fáum enga erlenda fjárfestingu?
Það er óhjákvæmilegt að hugsa
stefnu um afnám hafta upp á nýtt.
Um hugmyndir í þá veru fjalla ég í
síðustu greininni í þessum flokki.
Að ausa fley með fingurbjörg –
veikleikar núverandi stefnu um afnám hafta
Gjaldeyrishöft
Árni Páll
Árnason
þingmaður
Það er algerlega óásættanlegt að halda
fleyinu stefnulausu svo lengi. Þetta er
slæmt fyrir okkur sem viljum aðild að
ESB, en enn verra fyrir áhugamenn um framtíð
Íslands utan ESB. Þeir geta ekki verið þekktir að því að
hafa enga trúverðuga stefnu um gengis- og peninga-
mál til næstu ára, sem gerir afnám hafta mögulegt.
Arður í orku framtíðar
ÁRSFUNDUR LANDSVIRKJUNAR
Silfurbergi, Hörpu
Fimmtudagur 12. apríl 2012 kl. 14-16
Aukin eftirspurn eftir raforku úr endurnýjanlegum
orkugjöfum skapar margvísleg tækifæri sem
Landsvirkjun hefur að undanförnu unnið við að
greina. Niðurstöðurnar gefa til kynna áhugaverð
tækifæri með aukinni orkuvinnslu innan núverandi
kerfis, uppbyggingu fjölbreytts iðnaðar og útflutningi
um sæstreng.
> Hver er sérstaða Íslands á alþjóðlegum
raforkumörkuðum?
> Hver yrðu áhrif sæstrengs á íslenskt samfélag?
> Hverjir eru fjármögnunarmöguleikar
Landsvirkjunar við breyttar markaðsaðstæður?
Landsvirkjun býður öllum til kynningar og opinnar
umræðu um þau tækifæri sem fyrirtækið stendur
frammi fyrir og árangur ársins 2011.
Oddný G. Harðardóttir
fjármálaráðherra
Ávarp
Bryndís Hlöðversdóttir
stjórnarformaður
Ábyrgir stjórnarhættir
Hörður Arnarson
forstjóri
Árangur og áskoranir
Rafnar Lárusson
framkvæmdastjóri fjármálasviðs
Rekstrarniðurstöður 2011
Spurningar og umræður
Fundarstjóri er Ragna Árnadóttir,
aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar.
Allir velkomnir
Skráning:
landsvirkjun.is/skraning
Markmið opinna funda Lands virkjunar er
að stuðla að gagnsærri og faglegri umræðu
um málefni tengd starfsemi fyrirtækisins,
sem er í eigu íslensku þjóðarinnar.