Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.04.2012, Qupperneq 15

Fréttablaðið - 11.04.2012, Qupperneq 15
Er prentverkið Svansmerkt? www.visir.is Sími: 512 5000 | Miðvikudagur 11. apríl 2012 | 7. tölublað | 8. árgangur ➜ Húsasmiðjan hefur fækkað starfsfólki um helming. ➜ Himinhár leigu- kostnaður var að sliga fyrir- tækið. ➜ Forstjórinn segir mikil tækifæri liggja í kaupum Bygma. Húsasmiðjan fékk ekki krónu frá FSÍ Þorsteinn Már: Förum eftir reglum við skuldabréfaútgáfu Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, segir Samherja hafa farið í „einu og öllu“ eftir reglum og gjaldeyrislögum í starfsemi sinni, þar á meðal við skuldabréfakaup dótturfélags Samherja á Spáni af móðurfélaginu. Félagið keypti bréfin í lok febrúar fyrir 2,4 milljarða króna. „Við tókum þátt í útboði Seðlabankans og unnum að þessum málum með okkar viðskiptabanka, sem síðan upp- lýsti Seðlabankann um allar hliðar málsins,“ segir Þorsteinn Már. Hann er gestur í nýjasta þætti Klinksins, þætti um efnahagsmál og viðskipti, á viðskiptavef Vísis. Í honum fer Þorsteinn ítar- lega yfir starfsemi Samherja og áhrif breytinga á stjórn fiskveiða á sjávarútveginn í heild. - MH Iceland Express tapaði tæpum þremur milljörðum króna Iceland Express tapaði um 2,7 milljörðum króna í fyrra, samkvæmt upplýsingum Markaðarins. Fé- lagið hefur ekki birt ársreikning sinn fyrir árið 2011. Markaðurinn greindi frá því í mars að Eignar- haldsfélagið Fengur, eigandi Iceland Express, hefði afskrifað hlutafé í Iceland Express upp á rúmlega tvo milljarða króna í lok síðasta árs. Fengur skilaði ársreikningi sínum fyrir árið 2010 28. mars síðastliðinn. Einu eignir þess félags sam- kvæmt honum voru Iceland Express og breska flug- félagið Astraeus, sem fór í slitameðferð í fyrra- haust. Vegna hlutdeildar í afkomu dótturfélaga sinna tapaði Fengur 1,5 milljörðum króna á árinu 2010 og eignarhlutir félagsins í þeim rýrnuðu úr því að vera 3,3 milljarða króna virði í árslok 2009 í að vera 486 milljóna króna virði í lok þess árs. Í áritun endurskoðanda Fengs er vakin athygli á, án þess að gera fyrirvara við, að atburðir sem áttu sér stað eftir reikningsskil hafi valdið „því að rekstrarhæfi félagsins sé brostið nema til komi nýtt eigið fé eða skuldum verði breytt í eigið fé“. Samkvæmt upp- lýsingum Markaðarins eru allar skuldir Fengs við Nupur Holding SA í Lúxemborg, sem á allt hlutafé þess í gegnum dótturfélagið Academy S.a.r.l. Eig- andi Nupur Holding er Pálmi Haraldsson. - ÞSJ

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.