Fréttablaðið - 11.04.2012, Síða 16
FRÉTTASKÝRING
Magnús Þorlákur Lúðvíksson
magnusl@frettabladid.is
V
iðskiptabankarnir fjór-
ir hafa allir hækkað
vexti á óverðtryggðum
fasteignalánum sínum
nýverið í kjölfar stýri-
vaxtahækkunar Seðlabankans
í mars. Allir hafa bankarn-
ir hækkað vexti á lánum með
breytilegum vöxtum og þá hafa
Arion banki og Landsbankinn
einnig hækkað vexti á lánum
með fasta vexti fyrstu ár láns-
tímans. Íslandsbanki mun lík-
lega gera það sama á næstunni.
Óverðtryggð fasteignalán
hafa aðeins staðið neytendum
til boða um skamma hríð en
þau hafa notið talsverðra vin-
sælda frá því að bankarnir hófu
fyrst að bjóða upp á valkostinn
í haust. Ólíkt því sem lántak-
endur verðtryggðra lána eiga
að venjast er þess að vænta að
vextir á óverðtryggðu lánun-
um, og þar með greiðslubyrði
þeirra, sveiflist nokkuð á tíma-
bilinu.
Í svari Kristjáns Kristjáns-
sonar, upplýsingaful ltrúa
Landsbankans, við fyrir spurn
Markaðarins kemur fram að
ákvörðun bankans um að
hækka vexti um síðustu mán-
aðamót hafi verið tekin með
hliðsjón af 0,25 prósentustiga
hækkun Seðlabankans á stýri-
vöxtum í mars. Þá líti bankinn
til fleiri þátta við vaxtaákvarð-
anir sínar, þar á meðal þróunar
langtímavaxta á markaði.
Í sama streng tekur Haraldur
Guðni Eiðsson hjá Arion banka.
„Ástæðan er fyrst og fremst sú
að vextir hafa farið hækkandi í
landinu sem og verðbólga. Ekki
varð hjá því komist að endur-
spegla þá þróun í þessum kjör-
um. En rétt er að taka fram að
þetta á aðeins við um ný lán,
það er, þegar tekin lán eru
áfram með fasta 6,45% vexti,“
segir Haraldur Guðni.
Þá má samkvæmt upplýsing-
um frá Íslandsbanka búast við
því að vextir á óverðtryggðum
fastvaxtalánum bankans verði
hækkaðir á næstu vikum í ljósi
hækkandi vaxtastigs á markaði.
Viðskiptabankarnir fjór-
ir, Arion banki, Íslandsbanki,
Landsbanki og MP banki, hófu
allir að bjóða óverðtryggð fast-
eignalán á síðasta ári. Allir
nema Arion banki bjóða upp
á óverðtryggð lán með breyti-
legum vöxtum en auk þess
bjóða allir nema MP banki upp
á óverðtryggð lán með föst-
um vöxtum fyrstu ár lánstím-
ans, ýmist í þrjú eða fimm ár,
og endurskoðunarákvæði í lok
þess tíma.
Frá því að bankarnir hófu að
bjóða óverðtryggð fasteignalán
hefur meirihluti og jafnvel mik-
ill meirihluti lántakenda kosið
að taka óverðtryggð lán. Óverð-
tryggðu fastvaxtalánin hafa
verið vinsælust en nokkur fjöldi
hefur fremur kosið óverðtryggð
lán með breytilegum vöxtum.
Íbúðalánasjóður býður enn
sem komið er ekki upp á óverð-
tryggð lán en áformar að hefja
slíkar lánveitingar á síðari
hluta þessa árs.
Fréttablaðið birti þann 20.
mars síðastliðinn fréttaskýr-
ingu um óverðtryggð fast-
eignalán þar sem rætt var við
Jón Finnbogason, aðstoðarfram-
kvæmdastjóra viðskiptabanka-
sviðs hjá Íslandsbanka. Jón lagði
áherslu á að enginn einn valkost-
ur væri bestur þegar tegund af
íbúða láni væri valin. Til margs
þyrfti að líta og val hvers og
eins réðist af þolgæði gagnvart
áhættu, væntingum um þróun
verðbólgu og vaxta og svo fram-
vegis.
Þá kom fram í fréttaskýr-
ingunni að stilla mætti upp
saman burði á verðtryggðum
og óverðtryggðum fasteigna-
lánum á eftirfarandi hátt. Þeir
sem taka óverðtryggð lán þurfa
að greiða nokkru meira á mán-
uði og taka á sig meiri áhættu
vegna vaxtaþróunar en á móti
lækkar höfuðstóll lánsins jafnt
og þétt og áhætta vegna þróun-
ar verðbólgu er minni. Þeir sem
hins vegar taka verðtryggð lán
greiða nokkru minna á mánuði
og þurfa ekki að hafa áhyggjur
af þróun vaxta. Þeir þurfa á móti
að sætta sig við mun hægari
eignamyndun og áhættu vegna
þróunar verðbólgu. Það ber að
taka fram að nokkur tengsl eru
á milli þróunar vaxta og verð-
bólgu.
Fróðleiksmolinn
| 2 11. apríl 2012 | miðvikudagur
Dagatal viðskiptalífsins
MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL
➜ Talningar úr Þjóðskrá
➜ Efnahagur Seðlabankans - hagtölur SÍ
➜ Markaðsupplýsingar Lánamála ríkisins
➜ Íslenski raforkumarkaðurinn - málþing fyrri hluti
FIMMTUDAGUR 12. APRÍL
➜ Erlend staða Seðlabankans - hagtölur SÍ
➜ Ársfundur VIRK starfsendurhæfingarsjóðs
➜ Íslenski raforkumarkaðurinn - málþing seinni hluti
➜ Útboð ríkisvíxla
➜ Ársfundur Landsvirkjunar
FÖSTUDAGUR 13. APRÍL
➜ Trúfélagsbreytingar
➜ Fiskafli í mars 2012 - Hagstofan
➜ Greiðslumiðlun - hagtölur SÍ
➜ Smásöluvísitala RSV
➜ Útboð ríkisbréfa
➜ Evrópufundaröð Alþjóðamálastofnunar
MÁNUDAGUR 16. APRÍL
➜ Tryggingafélög - hagtölur SÍ
ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL
➜ Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu
➜ Atvinnuleysi í mars 2012
➜ Gjaldeyrisforði og tengdir liðir - hagtölur SÍ
Allar markaðsupplýsingar eru aðgengilegar á
dagatal viðskiptalífsins
Mánaðarleg raforkunotkun og álframleiðlsa
Frá árinu 2002 til 2012 hefur mánaðarleg framleiðsla á áli í tonnum mælt
aukist um tæp 200% en á sama tímabili hefur stórnotkun raforku í gígvatt-
stundum aukist um 155%. Með stækkun álvera og tilkomu Alco Reyðaráls
árið 2007 jókst framleiðsla á áli verulega og eins raforkunotkun til stóriðju.
Á myndinni sést að framleiðsla á áli í tonnum hefur aukist umfram raforku-
notkun til stórnotenda.
Almenn raforkunotkun er ástíðabundin eins og myndin sýnir. Mest er notk-
unin í desember og janúar ár hvert en minnst yfir sumartímann. Frá árinu
2002 til 2012 hefur almenn notkun í gígavattstundum aukist mánaðarlega um
30%. Gróflega áætlað nota vélasalir Google um 400 gígavattstundir á ári sem
samsvarar til mánaðarnotkunar í almennri notkun á Íslandi.
* Almenn raforkunotkun: Sá sem kaupir raforku til eigin nota, en er ekki stórnotandi.
* Stórnotkun: Notandi sem notar á einum stað a.m.k. 14 MW afl með árlegum nýtingar-
tíma í 8000 stundir eða meira.
Fjöldi nýskráðra bíla eftir mánuðum
2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012
250
200
150
100
50
0%
■ Framleiðsla á áli
■ Raforkunotkun - Almenn notkun
■ Raforkunotkun - Stórnotkun
3.500
3.000
2.500
2.000
1.500
1.000
500
0
1995 2000 2005 2010
HEIMILD: HAGSTOFA ÍSLANDS SKOÐA NÁNAR: http://data.is/HESEcs
HEIMILD: HAGSTOFA ÍSLANDS SKOÐA NÁNAR: http://data.is/Inqy69
SJÓNVARPFRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN LÍFIÐÚTVARP
- oft á dag
ÞAÐ ERU ENGIN HÖFT
Í VIÐSKIPTUNUM Á VÍSI
Stýrivextirnir bíta á
óverðtryggðu lánin
Viðskiptabankarnir hafa allir hækkað vexti óverðtryggðra lána í kjölfar stýrivaxta-
hækkunar í mars. Tveir bankar hafa hækkað vexti óverðtryggðra lána með föstum
vöxtum í nokkur ár og sá þriðji mun líklega brátt gera það sama.
FASTEIGNIR Meiri hluti nýrra lántakenda fasteignalána hjá viðskiptabönkunum hefur tekið óverðtryggð lán síðustu misseri.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VEXTIR ÓVERÐTRYGGÐRA FASTEIGNALÁNA BANKANNA
Banki Lán með breytilegum vöxtum Lán með föstum vöxtum
Arion banki - 6,95% en voru 6,45%
Íslandsbanki 5,65% en voru 5,40% 6,20% í 3 ár - óbreyttir en líklegir til að hækka
Landsbanki 6,15% en voru 5,90% 6,65 í 3 ár og 6,85% í 5 ár - voru 6,40% og 6,60%
MP banki 5,65% en voru 5,40% -