Fréttablaðið - 11.04.2012, Side 18
| 4 11. apríl 2012 | miðvikudagur
VIÐTAL
Þórður Snær Júlíusson
thordur@frettabladid.is
S
igurður Arnar Sigurðsson, sem hefur
verið forstjóri Húsasmiðjunnar frá því
snemma árs 2010, segir síðustu ár hafa
verið rússíbanareið. „Þegar ég var kall-
aður að þessu verkefni í ársbyrjun 2010
taldi ég að það myndi líklega taka um þrjú ár að
reisa rekstur Húsasmiðjunnar við. Velta félags-
ins hafði minnkað um 37% og við sáum að rekst-
urinn var ekki að standa undir þeim samdrætti.
Við stjórnendur fyrirtækisins réðumst því í að
gera miklar breytingar á rekstrinum. Það fyrsta
sem við gerðum var að ráðast í mjög stóra mark-
aðskönnun til að kanna hvað það væri sem fólki
líkaði við okkar vörumerki og hvað ekki. Við
bjuggum síðan til áætlun út frá þeim niðurstöð-
um. Á sama tíma var ljóst að það þurfti að skera
mikið niður.“
Yfirtökur juku skuldir
Skuldir Húsasmiðjunnar hækkuðu mikið síðustu
árin fyrir hrun, að mestu leyti vegna skuldsettra
yfirtakna á fyrirtækinu. Eftir að Húsasmiðjan
lenti í eigu kröfuhafa sinna var alls 11,2 millj-
örðum króna breytt í nýtt hlutafé. Sigurður segir
að kostnaðarlega séð hafi rekstur fyrirtækisins
verið allt of þungur. „Húsasmiðjan fer í gegnum
tvær skuldsettar yfirtökur á árunum 2004 og
2005. Þær gerðu það að verkum að skuldir fyrir-
tækisins margfölduðust. Mér telst til að skuld-
ir í árslok 2003 hafi verið rétt um 550 milljónir
króna. Í árslok 2004 voru þær komnar upp í fimm
milljarða króna. Í árslok 2005 voru þær komnar
upp í 7,7 milljarða króna. Þetta eru skuldir sem
eru tilkomnar út af þessum yfirtökum og höfðu
lítið með rekstur eða starfsfólk Húsasmiðjunn-
ar að gera. Þegar gengið hrundi síðan í efna-
hagshruninu þá uxu þessar skuldir enn meira
og fyrirtækið lenti í þeirri stöðu að vera komið
með óviðráðanlega skuldastöðu.“
Himinhár leigukostnaður
Samhliða hækkun skulda hrundi bygginga-
vörumarkaðurinn og fastur kostnaður á borð
við leigu, sem var að hluta tengd gengi erlendra
gjaldmiðla, rauk upp. Þetta leiddi til þess að
Húsasmiðjan tapaði alls 1,3 milljörðum króna
frá byrjun árs 2009 og fram á rúmt mitt ár 2011.
Að sögn Sigurðar þurfti að skera niður á öllum
sviðum til að snúa þessari þróun við. „Frá árinu
2008 höfum við fækkað starfsfólki um tæplega
50% og að auki hafa starfsmenn tekið á sig launa-
lækkun. Við höfum velt við öllum steinum til að
lækka hjá okkur kostnað. Við reyndum að skera
niður breytilega kostnaðinn eins og við mögu-
lega gátum og réðumst síðan markvisst á fasta
kostnaðinn. Stærsti hluti hans var leigukostn-
aður, sem var algjörlega að sliga fyrirtækið.“
Áætlaður leigukostnaður Húsasmiðjunnar á
árinu 2011 var rúmlega milljarður króna, sem
var um 8% af veltu fyrirtækisins. Til að átta
sig á því hversu mikið leigukostnaðurinn hafði
hækkað sem hlutfall af veltu þá var hann um
4% árið 2007. Sigurður segir að nánast útilokað
sé að reka smásölufyrirtæki með svona háum
leigukostnaði. „Við höfum ráðist í það í tveimur
lotum að endursemja við alla okkar leigusala og
fá þá að borðinu til að gera fyrirtækið rekstrar-
hæft. Við teljum okkur vera komna með viðun-
andi stöðu eftir þær samningslotur.“
Bygma keypti
Bygma gekk frá kaupum á Húsasmiðjunni í des-
ember 2011. Kaupverðið var um 800 milljónir
króna auk þess sem keðjan tók yfir um 2,5 millj-
arða króna skuld. Í kjölfarið var stofnað nýtt
félag utan um rekstur, skuldir og skuldbinding-
ar fyrirtækisins.
Húsasmiðjan varð síðan formlega hluti af
Búin að vera rússíbana
FORSTJÓRINN „Húsasmiðjan fer í gengum tvær skuldsettar yfirtökur á árunum 2004 og 2005. Þær gerðu það að verkum að skuldir fyrirtækisins margfölduðust. Mér telst til að s
voru þær komnar upp í fimm milljarða króna. Í árslok 2005 voru þær komnar upp í 7,7 milljarða króna. Þetta eru skuldir sem eru tilkomnar út af þessum yfirtökum og höfðu lít
Sigurðsson.
Húsasmiðjan hefur gengið í gegnum
mikinn ólgusjó á síðustu árum.
Fyrirtækið hefur farið frá því að vera
rótgróið fjölskyldufyrirtæki, stofnað
árið 1956, í að vera orðið formlegur
hluti af dönsku byggingavörukeðj-
unni Bygma. Í millitíðinni gekk það
í gegnum tvær skuldsettar yfirtökur
sem skiluðu því undir yfirráð banka.
Þegar langt var liðið á söluferli Húsasmiðjunnar, og farið var að glitta í sam-
komulag við Bygma, hljóp snurða á þráðinn. Ríkisskattstjóri tilkynnti fyrir-
tækinu að það skuldaði yfir 700 milljónir króna í skatta sem rekja mátti aftur
til þeirra skuldsettu yfirtakna sem fyrrum eigendur Húsasmiðjunnar höfðu
ráðist í. Vaxtagjöld þessara lána höfðu verið dregin frá tekjum og því ekki verið
hluti af skattstofni. Þetta taldi embætti Ríkisskattstjóra að væri ekki löglegt.
Sigurður segir þetta hafa sett söluferlið í mikið uppnám og hafa verið gríðar-
lega erfitt. „Það kom bréf frá Ríkisskattstjóra rétt fyrir síðustu áramót til okkar
eins og margra annarra fyrirtækja þar sem verið var að setja fram túlkun sem
gekk þvert á ráðleggingar sérfræðinga. Við fengum í kjölfarið sendan reikning
upp á rúmar 700 milljónir króna. Það er alveg ljóst að þetta setti mjög mikið
strik í reikninginn í öllu söluferlinu og setti kaupendur í óvissu. Svona mál eru
þess eðlis að það þarf að kæra úrskurðinn og það getur tekið langan tíma að
fá niðurstöðu. Það frestar samt ekki greiðsluskyldunni heldur þarf að borga
strax. Því var eina leiðin fyrir okkur að taka þetta mál í raun út fyrir sviga.“
Með því að taka málið út fyrir sviga var ákveðið að setja rekstur Húsasmiðj-
unnar á nýja kennitölu en láta söluandvirði fyrirtækisins sitja eftir á þeirri
gömlu til að mæta skattaskuldinni. Að sögn Sigurðar stóð aldrei til að skipta
um kennitölu fyrr en bréf Ríkisskattstjóra barst. „Áætlunin snerist alltaf um að
selja fyrirtækið eins og það var en vegna þessarar óvissu sem kom upp var
ákveðið að fara þessa leið.“
Vorið 2011 réðst Samkeppniseftirlitið í margháttaðar aðgerðir, meðal
annars húsleit og símhleranir, vegna gruns um að Húsasmiðjan og tveir sam-
keppnisaðilar hennar hefðu gerst sek um samkeppnislagabrot. Sigurður segir
málið enn í skoðun hjá eftirlitinu og beðið sé niðurstöðu þess.
„Við töldum okkar vera búna að taka mjög vel á okkar verkferlum strax og
ég kom að fyrirtækinu og teljum að okkar hlutur í þessu máli sé minni en efni
og umfang sagði til um í upphafi. Menn reiddu hátt til höggs. Eins og þetta
snýr að okkur þá teljum við að þetta snúist fyrst og fremst um framkvæmd
verðkannana sem við höfum gert hjá okkar samkeppnisaðilum. En við tókum
það að sjálfsögðu mjög alvarlega þegar húsleit átti sér stað og hertum enn
frekar á framkvæmd þessara kannana þannig að við teljum okkur vera að
vinna í samræmi við lög og reglur og höfum alltaf lagt áherslu á það.“
Hann segir bæði þessi mál, rannsókn Samkeppniseftirlitsins og endurálagn-
ingu Ríkisskattstjóra, eðlilega vera óþægileg fyrir fyrirtæki sem er að reyna að
skapa sér nýtt upphaf. „Auðvitað er þetta óþægilegt. En það er búið að taka
frá peninga til að greiða skattaskuldina og sektir ef einhverjar verða. Það er
búið að fara í gegnum alla vinnuferla og við teljum okkur vera að vinna að
fullu í samræmi við lög og reglur. Við verðum bara að klára þessi fortíðarmál,
horfa fram á veginn og einbeita okkur að því að takast á við þá samkeppni
sem er fram undan á markaðinum.“
ÞURFTUM AÐ TAKA MÁLIN ÚT FYRIR SVIGA
FORMLEGT Húsasmiðjan varð formlega hluti af Bygma í lok mars síðastliðins. H
Sigurður Arnar og Peter Christiansen, eigandi og stjórnarformaður Bygma, við þ