Fréttablaðið - 11.04.2012, Side 19
DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGI
SÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS
Taka 12 Kg · Hljóðlát
Stórt op > auðvelt að hlaða
Sparneytin amerísk tæki.
<Þvottvélin tekur
heitt og kalt vatn Afkastamikill
þurrkari >
Þvottavél Þurrkari12 kg
Amerísk
gæðavara
Amerísk
gæðavara
25 frábær fermingartilboð
sendum frítt úr vefverslun
www.lindesign.is
Vertu vinurSími 551 2070
Opið mán.-fös. 10-18.
Lokað á laugard. 7. apríl
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Hugsaðu vel um fæturna
Í hálfa öld hafa miljónir manna um allan heim notað
BIRKENSTOCK sér til heilsubótar. Hvað um þig?
Teg: „ Annapolis“ Fótlaga skór
úr leðri með vönduðu innleggi.
Stærðir: 36 - 42 Verð: 28.900.-
Það er frábært að geta sameinað hagfræðina og reynsluna úr fjár-málageiranum við ævintýrin úr
ferðaheiminum,“ segir Björk Kristjáns-
dóttir, en hún hafði leitt hópa ferða-
fólks upp jökla og niður ár, verið í björg-
unarsveit, útskrifast sem hagfræðing-
ur og starfað sem þjónustufulltrúi á
fyrirtækjasviði í banka, þegar hún var
fengin til að hjálpa til við undirbúning
nýs gistiheimilis á Laugaveginum fyrir
þremur árum.
„Ég varð atvinnulaus eftir bankahrun-
ið og var fengin til að hjálpa til í bók-
haldinu. Hlutirnir undu upp á sig og þeg-
ar við opnuðum Reykjavík Backpackers
í júní 2009 varð ég framkvæmdastjóri
fyrirtækisins,“ segir Björk og finnst ekki
erfitt að vera bundin við skrifborðið.
„Nei, ég var búin að vera dugleg að
ganga á fjöll og ferðast bæði innanlands
og utan. Svo fótbrotnaði ég í fjallgöngu
árið 2009 og þurfti að vera þrjá mánuði í
gifsi hvort sem var. Svo varð ég ólétt og
eignaðist strák sem er rúmlega eins árs
í dag en nú er á áætlun að ganga mig í
form aftur. Annars er bara svo æðislega
gaman í vinnunni að ég hef engan tíma
haft til að velta því fyrir mér hvort ég sé
að missa af einhverju,“ segir Björk hlæj-
andi en Reykjavík Backpackers hefur
vaxið hratt og breyst frá því að vera
eingöngu gistiheimili, í ferðaskrifstofu,
upplýsingamiðstöð og bar.
„Við eigum núna allt húsið og opn-
uðum hér á síðasta ári Tourist Info og
barinn. Við seljum líka ferðir héðan um
allt land og til Grænlands og höfum
nóg að gera. Ferðamannatraffíkin í ár
er þegar komin á skrið eftir veturinn
og hefur þést síðustu vikurnar. Það er
frábært að komið sé svona mikið líf í
ferðaþjónustuna þetta snemma,“ segir
Björk enda sé landið gott heim að sækja
á þessum tíma.
„Þetta er góður tími til jökla- og fjalla-
ferða. Eftir því sem ég sjálf ferðast meira
til útlanda, þeim mun æðislegra finnst
mér Ísland, sérstaklega á vorin og sumr-
in. Þá tími ég ekki að fara neitt annað.“
HAGFRÆÐINGUR
OG FERÐAFUGL
DRAUMASTARFIÐ Björk Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Reykjavík Back-
packers, sameinar áhugamálin í vinnunni.
GAMAN Í VINNUNNI
Björk Kristjánsdóttir,
framkvæmdastjóri
Reykjavík Backpackers,
segir vorið góðan tíma
til að ferðast um Ísland.
MYND/GVA
MUNIÐ HJÁLMINN
Nú er að hefjast reiðhjólatímabil hjá börnum og ung-
lingum. Mikilvægt er að nota hjálm og að hann sé
prófaður af viðurkenndri stofnun og merktur með
CE-merki. Hann skal vera léttur og með loftopum og
hafa stillanlegt hökuband og spennu sem auðvelt er
að opna og loka.