Fréttablaðið - 11.04.2012, Síða 20

Fréttablaðið - 11.04.2012, Síða 20
FÓLK|FERÐIR DANSpúl 20+ Langar þig að dansa og koma þér í gott líkamlegt form? Framundan er fjölbreytt og skemmitlegt 6 vikna dans og púl námskeið fyrir 20 ára og eldri. Áhersla á alhliða líkamsþjálfun, samhæfingu, jazzdans og dansgleði. Tímabil: 16. apríl – 23. maí Tímar á mánudögum kl. 19:40 og miðvikudögum kl. 20:20 Kennarar: Arna Sif Gunnarsdóttir og Una Björg Bjarnadóttir. Verð 16.500 kr. Frír aðgangur að tækjasal JSB meðan á námskeiði stendur Skráning er hafin í síma 581 3730 og á jsb@jsb.is Vornámskeið hjá DANSSTUDIO JSB Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 • jsb@jsb.is • www.jsb.is Nýtt námskeið hefst 16. apríl! H N O T S K Ó G U R g ra f í s k h ö n n u n Þú velur og draumasófinn þinn er klár GERÐ (yfir 90 mismunandi útfærslur) STÆRÐ (engin takmörk) ÁKLÆÐI (yfir 2000 tegundir) Sófinn þinn útfærður eftir þínum óskum Íslensk framleiðsla Mósel 30% afsláttur af völdum sófum H Ú S G Ö G N Basel Patti verslun | Dugguvogi 2, 104 Reykjavík | Sími: 557 9510 | Netfang: patti@patti.is | vefsíða: patti.is Verslun okkar er opin: Virka daga kl. 9-18 Laugardaga kl.11-16 Sunnudaga lokað FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is s 512 5473 Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is s 512 5432 Upplifunin er frábær og allir alsælir og ánægðir á flækingsfætinum,“ segir Sigríður Kristinsdóttir, eigandi Ferða- klúbbsins Flækjufótar, sem hún stofnaði í félagi við vinkonu sína, Helgu Jóhannsdóttur, sumarið 1994. Ferðaklúbburinn hefur að markmiði að ferðast með hreyfihamlaða. Sigríður á hreyfihamlaðan son og segist upphaflega hafa kynnst ferðaglöðum og fötl- uðum einstaklingum í gegnum hann. „Þá uppgötvaði ég að þrátt fyrir mikinn ferðahug einstaklinga sem bundnir eru við hjólastól höfðu þeir nánast enga möguleika til hópferða, hvorki hér innanlands né utan. Ég vildi því gefa þeim raunhæfan kost á að ferðast um land sitt og út fyrir landsteinana saman,“ segir Sigríður. Fyrsta ferð Flækjufótar var farin norður Kjöl og til Egilsstaða 1994, en í þá ferð fóru fimmtán manns í hjólastólum. Þeir voru teknir úr stólum sínum og bornir inn í rút- una, en hjólastólarnir settir í kerru. „Í kjölfarið kynntist ég rútubílstjóra sem var til í að setja lyftu í rútuna sína og það breytti öllu fyrir þá hreyfihömluðu sem gátu loks ferðast um landið í hjólastólum sínum,“ segir Sigríður. Ferðaklúbburinn Flækjufótur hefur frá stofnun farið árvisst á flæking með hreyfi- hamlaða og stundum tvær til þrjár ferðir á ári. „Frá fyrstu tíð höfum við ferðast með fullan bíl og farið ótroðnar slóðir. Þar má telja ferðir upp á Látrabjarg, inn að Öskju, í Kverkfjöll, upp á jökla og yfir Sprengisand. Hvarvetna höfum við mætt mikilli velvild og einstökum móttökum þar sem allt hefur verið lagað að þörfum fatlaðra eins og hægt hefur verið á stuttum tíma.“ Á nýliðnum árum hefur Flækjufótur aðallega flækst til útlanda. Farið var með Norrænu og öll Norðurlöndin heimsótt, og einnig farið til Færeyja, Þýskalands og Ítalíu. Í september stendur til að fara til Týról í Austurríki og skoða Alpana eftir því sem hægt er að komast með hjólastóla í kláfum. „Við ætlum í sannkallaða alparósaferð og eigum enn fáein laus sæti. Í ferðirnar fara að lágmarki 25 manns og að hámarki 35, því einstaklingar í hjólastól þurfa aðstoðarmann með sér. Allt er það unnið í sjálfboðavinnu enda meiri háttar gefandi og gaman að geta látið draumana rætast,“ segir Sigríður. Ferðaklúbburinn Flækjufótur er á Face- book undir Flækjufótur Ferðaklúbbur. Hafa má samband við Sigríði í síma 898 2468. ALLIR VEGIR FÆRIR FERÐAGLEÐI Ferðaklúbburinn Flækjufótur fer ótroðnar slóðir með ferðalanga sem þrá að ferðast um heiminn en komast ekki um hann hjálparlaust. HUGSJÓNAKONA Sigríður Kristinsdóttir er eigandi Ferðaklúbbsins Flækjufótar. Öllum er velkomið að ferðast með klúbbnum. MYND/VALLI LÁTRABJARG Mikil upplifun var fyrir ferðafólkið að kynnast hrikalegri náttúrunni og fuglalífinu í Látrabjargi. MYND/REYNIR KRISTÓFERSSON SVEITASÆLA Í Vigur í Ísafjarðardjúpi var hjólastólunum komið fyrir uppi á gömlum heyvagni og ferðalöngunum ekið um eyjuna í traktor. MYND/REYNIR KRISTÓFERSSON ÆVINTÝRI „Ég vildi gefa hreyfihömluðum raunhæfan kost á að ferðast um landið sitt og út fyrir landsteinana saman.“

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.