Fréttablaðið - 11.04.2012, Side 21

Fréttablaðið - 11.04.2012, Side 21
SUMARDEKK MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2012 Kynningarblað Söluaðilar, umboðsaðilar og verkstæði. Nú þegar er allt vitlaust að gera, enda vita fastir við-skiptavinir Vöku að það margborgar sig að vera snemma á ferðinni til að tryggja sér bestu notuðu sumardekkin,“ segir Rúnar Grétarsson, framkvæmdastjóri Vöku, en þar er hægt að gera veru- lega góð kaup á notuðum sumar- dekkjum fyrir allar tegundir bíla. „Margir bíleigendur fjárfesta í splunkunýjum vetrardekkjum að hausti til og reyna að spara sér sumardekkjakaup að vori með því að keyra áfram á vetrardekkjunum. Það er hins vegar afleitur sparnað- ur því vetrardekk slitna mjög hratt yfir sumartímann og súrt að sjá góð vetrardekk slitna úr hófi fram og rýra endingu sína fyrir næsta vetur,“ segir Rúnar. Steinar Már Gunnsteinsson, deildarstjóri dekkjasviðs Vöku, segir heilsársdekk ekki alltaf góðan kost hérlendis. „Íslensk veðrátta og ástand vega sveiflast mjög á milli árstíða. Því henta sömu dekk engan veginn árið um kring, og af og frá að þau standi sig jafn vel í fimmtán stiga frosti um hávetur og í tuttugu stiga hita á góðum sumardegi,“ útskýr- ir Steinar og bætir við: „Fínskorin vetrardekk slitna einfaldlega mun hraðar og hafa ekki sömu eigin- leika og sumardekk fyrir íslenskan sumarakstur.“ Rúnar bendir á að notuð sumar- dekk séu sérlega vænn kostur fyrir þá sem ætla sér ekki að eiga bílinn sinn lengi. „Notuð sumardekk eru búbót fyrir alla bíleigendur. Sem dæmi kostar algeng stærð á notuðu dekki 5.900 krónur, en í samanburði kost- ar nýtt dekk af ódýrri gerð um 13 þúsund krónur. Því getur munað um helmingi á verði í sumum til- vikum,“ útskýrir Rúnar. Að sögn Steinars er mest um hálfslitin dekk í góðu ásigkomu- lagi hjá Vöku en einnig lítið slitin dekk og dýra merkjavöru eins og dekk frá Continental og Michelin, sem geta verið allt að fimmfalt dýr- ari ný út úr búð. „Eðlilega seljast bestu sumar- dekkin hratt og vinsælustu stærð- irnar klárast vanalega um mán- aðamótin apríl/maí. Við reynum þó alltaf að eiga nokkra umganga af algengustu stærðum yfir sumar- tímann,“ segir Steinar. Vaka rekur bifreiðaverkstæði og alhliða dekkjaþjónustu fyrir allar tegundir bíla. Ásamt úrvali not- aðra dekkja má einnig finna fjöl- breytt úrval nýrra dekkja á afar hagstæðu verði. „Til að lágmarka biðtíma er best að panta tíma á www.vakahf.is eða í síma 567 6700, en einnig geta menn komið a staðinn og skoðað úrvalið. Við finnum hagstæðustu lausnina sem til er á þeim tíma,“ segir Rúnar. Vaka hf. er í Skútuvogi 8 í Reykjavík og á Smiðjuvegi 28 í Kópavogi. Sími 567 6700. Sjá nánar á www.vakahf.is. Notuð sumardekk – góður kostur Hjá Vöku er hægt að komast hjá miklum útgjöldum með kaupum á notuðum sumardekkjum. Bestu dekkin rjúka út með ört hækkandi sumarsól og í Vöku gildir hið margkveðna að fyrstir koma, fyrstir fá. Vaka selur einnig ný sumardekk á góðu verði. Rúnar Grétarsson, framkvæmdastjóri Vöku, og Steinar Már Gunnsteinsson, deildarstjóri dekkjasviðs, með góð og notuð sumardekk á milli sín. MYND/VALLI NOTAÐ OG NÝTT HJÁ VÖKU Vaka rekur dekkjaverkstæði og hjólbarðasölu á tveimur stöðum á höfuðborgarsvæðinu: í Skútuvogi 8 í Reykjavík og á Smiðjuvegi 28 í Kópavogi. Á báðum stöðum er ríkulegt úrval dekkja í öllum gæðaflokkum. „Það vita ekki allir af Vöku í Kópavogi, en hún er á einkar góðum stað og sker sig aðeins úr í götunni neðan við Bónus og Byko,“ segir Róbert Hannesson, verkstæðisstjóri hjá Vöku á Smiðjuveginum. Róbert rak um árabil verkstæðið Hjólkó á Smiðjuvegi 26, en fyrirtækin sameinuðust undir merki Vöku árið 2010. „Hjá Vöku í Kópavogi er aðeins meiri áhersla á dýrari vörumerki í nýjum dekkjum, en við mætum í raun óskum viðskiptavina um hvað sem er. Margir biðja um eitthvað alveg sérstakt undir bíla sína og því mikið um sérpantanir, og ávallt stuttur afhendingartími og afbragðs þjónusta,“ segir Róbert. Hjá Vöku á Smiðjuvegi er einnig boðið upp á þvott og bón, og rekið dekkjahótel þar sem viðskiptavinir geta geymt dekkjaumganga sína á milli árstíða. „Seinna á árinu stendur svo til að auka enn þjónustuna og bjóða upp á einfaldar bifreiða- viðgerðir á Smiðjuveginum,“ upplýsir Róbert. Tímapantanir hjá Vöku má gera á www.vakahf.is og í síma 567 6700. Róbert Hannesson er verkstæðis- stjóri hjá Vöku í Kópavogi. OPIÐ: Virka daga 8.00-18.00 og laugard. 10.00-14.00 Skútuvogi 8, 104 Reykjavík og Smiðjuvegi 28, 200 Kópavogi S. 567 6700 / vakahf@vakahf.is / www.vakahf.is BifreiðaflutningarVarahlutir Dekkjaþjónusta Bifreiðaverkstæði Skútuvogi 8 og Smiðjuvegi 28 Opið á laugardögum frá kl. 10-14. Bókaðu tíma á vakahf.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.