Fréttablaðið - 11.04.2012, Síða 21
SUMARDEKK
MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2012 Kynningarblað Söluaðilar, umboðsaðilar og verkstæði.
Nú þegar er allt vitlaust að gera, enda vita fastir við-skiptavinir Vöku að það
margborgar sig að vera snemma
á ferðinni til að tryggja sér bestu
notuðu sumardekkin,“ segir Rúnar
Grétarsson, framkvæmdastjóri
Vöku, en þar er hægt að gera veru-
lega góð kaup á notuðum sumar-
dekkjum fyrir allar tegundir bíla.
„Margir bíleigendur fjárfesta
í splunkunýjum vetrardekkjum
að hausti til og reyna að spara sér
sumardekkjakaup að vori með því
að keyra áfram á vetrardekkjunum.
Það er hins vegar afleitur sparnað-
ur því vetrardekk slitna mjög hratt
yfir sumartímann og súrt að sjá
góð vetrardekk slitna úr hófi fram
og rýra endingu sína fyrir næsta
vetur,“ segir Rúnar.
Steinar Már Gunnsteinsson,
deildarstjóri dekkjasviðs Vöku,
segir heilsársdekk ekki alltaf góðan
kost hérlendis.
„Íslensk veðrátta og ástand vega
sveiflast mjög á milli árstíða. Því
henta sömu dekk engan veginn
árið um kring, og af og frá að þau
standi sig jafn vel í fimmtán stiga
frosti um hávetur og í tuttugu stiga
hita á góðum sumardegi,“ útskýr-
ir Steinar og bætir við: „Fínskorin
vetrardekk slitna einfaldlega mun
hraðar og hafa ekki sömu eigin-
leika og sumardekk fyrir íslenskan
sumarakstur.“
Rúnar bendir á að notuð sumar-
dekk séu sérlega vænn kostur fyrir
þá sem ætla sér ekki að eiga bílinn
sinn lengi.
„Notuð sumardekk eru búbót
fyrir alla bíleigendur. Sem dæmi
kostar algeng stærð á notuðu dekki
5.900 krónur, en í samanburði kost-
ar nýtt dekk af ódýrri gerð um 13
þúsund krónur. Því getur munað
um helmingi á verði í sumum til-
vikum,“ útskýrir Rúnar.
Að sögn Steinars er mest um
hálfslitin dekk í góðu ásigkomu-
lagi hjá Vöku en einnig lítið slitin
dekk og dýra merkjavöru eins og
dekk frá Continental og Michelin,
sem geta verið allt að fimmfalt dýr-
ari ný út úr búð.
„Eðlilega seljast bestu sumar-
dekkin hratt og vinsælustu stærð-
irnar klárast vanalega um mán-
aðamótin apríl/maí. Við reynum
þó alltaf að eiga nokkra umganga
af algengustu stærðum yfir sumar-
tímann,“ segir Steinar.
Vaka rekur bifreiðaverkstæði og
alhliða dekkjaþjónustu fyrir allar
tegundir bíla. Ásamt úrvali not-
aðra dekkja má einnig finna fjöl-
breytt úrval nýrra dekkja á afar
hagstæðu verði.
„Til að lágmarka biðtíma er best
að panta tíma á www.vakahf.is eða í
síma 567 6700, en einnig geta menn
komið a staðinn og skoðað úrvalið.
Við finnum hagstæðustu lausnina
sem til er á þeim tíma,“ segir Rúnar.
Vaka hf. er í Skútuvogi 8 í Reykjavík og
á Smiðjuvegi 28 í Kópavogi. Sími
567 6700. Sjá nánar á www.vakahf.is.
Notuð sumardekk –
góður kostur
Hjá Vöku er hægt að komast hjá miklum útgjöldum með kaupum á notuðum
sumardekkjum. Bestu dekkin rjúka út með ört hækkandi sumarsól og í Vöku gildir hið
margkveðna að fyrstir koma, fyrstir fá. Vaka selur einnig ný sumardekk á góðu verði.
Rúnar Grétarsson, framkvæmdastjóri Vöku, og Steinar Már Gunnsteinsson, deildarstjóri dekkjasviðs, með góð og notuð sumardekk á
milli sín. MYND/VALLI
NOTAÐ OG NÝTT HJÁ VÖKU
Vaka rekur dekkjaverkstæði og hjólbarðasölu
á tveimur stöðum á höfuðborgarsvæðinu: í
Skútuvogi 8 í Reykjavík og á Smiðjuvegi 28 í
Kópavogi. Á báðum stöðum er ríkulegt úrval
dekkja í öllum gæðaflokkum.
„Það vita ekki allir af Vöku í Kópavogi, en hún
er á einkar góðum stað og sker sig aðeins
úr í götunni neðan við Bónus og Byko,“ segir
Róbert Hannesson, verkstæðisstjóri hjá Vöku á
Smiðjuveginum.
Róbert rak um árabil verkstæðið Hjólkó á
Smiðjuvegi 26, en fyrirtækin sameinuðust undir merki
Vöku árið 2010.
„Hjá Vöku í Kópavogi er aðeins meiri áhersla á dýrari
vörumerki í nýjum dekkjum, en við mætum
í raun óskum viðskiptavina um hvað sem er.
Margir biðja um eitthvað alveg sérstakt undir
bíla sína og því mikið um sérpantanir, og ávallt
stuttur afhendingartími og afbragðs þjónusta,“
segir Róbert.
Hjá Vöku á Smiðjuvegi er einnig boðið upp á
þvott og bón, og rekið dekkjahótel þar sem
viðskiptavinir geta geymt dekkjaumganga sína
á milli árstíða.
„Seinna á árinu stendur svo til að auka enn
þjónustuna og bjóða upp á einfaldar bifreiða-
viðgerðir á Smiðjuveginum,“ upplýsir Róbert.
Tímapantanir hjá Vöku má gera á www.vakahf.is og í
síma 567 6700.
Róbert Hannesson
er verkstæðis-
stjóri hjá Vöku í
Kópavogi.
OPIÐ:
Virka daga 8.00-18.00 og laugard. 10.00-14.00
Skútuvogi 8, 104 Reykjavík og
Smiðjuvegi 28, 200 Kópavogi
S. 567 6700 / vakahf@vakahf.is / www.vakahf.is
BifreiðaflutningarVarahlutir
Dekkjaþjónusta Bifreiðaverkstæði
Skútuvogi 8 og
Smiðjuvegi 28
Opið á
laugardögum
frá kl. 10-14.
Bókaðu tíma á
vakahf.is