Fréttablaðið - 11.04.2012, Page 22

Fréttablaðið - 11.04.2012, Page 22
KYNNING − AUGLÝSINGSumardekk MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 20122 Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Ívar Örn Hansen, ivarorn@365.is, s. 512-5429 Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal. RÓLA Í GARÐINN Slitinn hjólbarði getur nýst til ýmiss konar hluta þó að hann hafi tapað veggripinu. Til dæmis má binda í hann kaðal og hengja hann upp í tré og útbúa þannig einfalda rólu. Þá þekkist að nota gamla hjólbarða fyrir blómaker í garð- inum eða undir matjurtirnar og stór vinnu- og dráttarvéladekk eru ágætis sandkassar fyrir börn. Slitnir hjólbarðar hafa einnig verið endurnýttir til skógerðar eða þeir sniðnir til og saumaðir saman í mismun- andi ílát, körfur og tunnur. Í gegnum tíðina hefur mikið magn af dekkjum og felgum safnast saman hjá fólki í geymslum og bílskúrum um allt land. Síðustu tvö árin hefur Dekkjasalan starf- rækt umboðssölu þar sem fólk getur komið með dekkin og felgurnar, gert umboðssölusamning og starfs- menn sjá um söluna. Andvirði vör- unnar er svo lagt inn á reikning söluaðilans að frádregnum sölu- launum. Valdimar Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Dekkjasölunn- ar, segir þetta fyrirkomulag spara mikinn tíma og vinnu fyrir bæði seljendur og kaupendur. ,,Um leið aukast líkur á að vörurnar seljist og segja má að kaupendur séu mun betur tryggðir fyrir því að fá þær vörur í hendurnar sem þeir leita að, þegar horft er til gæða og verðs.“ Allar vörur yfirfarnar Hann segir starfsmenn Dekkjasöl- unnar leggja mikla áherslu á að fara vel yfir þær vörur sem berast í hús og að hafa allar lýsingar á heima- síðunni réttar. ,,Þannig sjáum við til þess að varan standist væntingar, sé örugg og í lagi,“ segir Valdimar. Hann segir allar felgur yfirfarn- ar og dekkin líka og þau mæld og verðlögð í samræmi við gæði. Felg- urnar eru allar settar á vél þar sem yfir farið er hvort þær séu skakkar eða á þeim aðrir áverkar sem gera þær ósöluhæfar. Þegar þessu ferli er lokið eru teknar myndir af vör- unni og hún sett inn á heimasíðu fyrirtækisins, www.dekkjasalan.is. Þar er hægt að skoða allar vörur og nánari lýsingar á þeim, til dæmis gerð, tegund, verð, dýpt munsturs og fleira. Vefurinn í stöðugri uppfærslu Valdimar segir mörg dæmi um að nýleg og góð vara sé í umboðssölu hjá þeim á mjög hagstæðu verði. Fyrsta skrefið við hagkvæm dekkja- kaup ætti því að vera að setja sig í samband við Dekkjasöluna. Fyrir- tækið býður einnig upp á ný dekk í flestum stærðum og gerðum á samkeppnishæfu verði. Heima- síða Dekkjasölunnar er uppfærð reglulega með nýjum vörum. Það þýðir að á hverjum morgni eru allar vörur til hjá Dekkjasölunni sem eru auglýstar á heimasíðunni. Vöru- hús Dekkjasölunnar er að Dals- hrauni 16 í Hafnarfirði og er opið frá kl. 8.00-18.00 virka daga og frá 10.00-16.00 á laugardögum. Sím- inn er 587-3757. Einnig er hægt að hafa samband gegnum tölvupóst á netfanginu dekkjasalan@dekkja- salan.is. Fyrsta skrefið er hjá Dekkja sölunni Dekkjasalan í Hafnarfirði er eina umboðssalan hérlendis með notuð dekk og felgur. Valdimar að yfirfara gæði dekkja og taka myndir fyrir heimasíðuna www.dekkjasalan.is MYND/STEFÁN Borgardekk Dekk í sögulegu ljósi Allt frá því að hjólið var fundið upp fyrir um það bil 5.500 árum hefur það smátt og smátt orðið ómissandi. Við notum það daglega án þess að velta því fyrir okkur hversu mikið notagildi það hefur. Nútímadekkið utan um hjólið gerir það töluvert þægilegra en áður að ferðast um á farartæki en það virkar sem stuðpúði milli yfirborðs og farartækis. Nútímadekk Fyrstu hjólin sem notuð voru undir nútíma- farartæki voru úr timbri. Slík hjól höfðu ekki mikla endingu svo að fundin var upp aðferð þar sem stálplata var hituð og formuð utan um hjólið. Þannig jókst endingin til muna en óþægindin sem fylgdu hörðum dekkjunum urðu ekkert minni. Ýmsar tilraunir voru gerðar til endurbóta, meðal annars með gúmmíi og leðri. Öll þau óþægindi sem fylgdu hörðum hjólum hröktu menn til þess að finna upp betri leið til að gera ferðina þægilegri og úr varð fyrsta uppblásna gúmmídekkið. 1844 Charles Goodyear fann upp aðferð til að búa til endingarbetra og sterkara gúmmí en áður hafði verið til. Með því að bræða saman brennistein og gúmmí jókst styrkur þess og ending. Áður höfðu gúmmídekk verið notuð en ending þeirra var í engri líkingu við uppfinningu Goodyear. Þau voru lin í hita og hörð í kulda og endingin léleg. 1846 Robert William Thomson fann upp fyrsta uppblásna dekkið sem dró úr högginu við akstur á holóttum og hörðum vegum. Hann átti þó í erfiðleikum með að verða sér úti um þunnt gúmmí og einbeitti sér því að fram- leiðslu óloftfylltra dekkja. 1880 Það var ekki fyrr en 44 árum eftir að Robert William Thomson hafði fundið upp loftfyllta dekkið en hætt svo við að það sneri aftur. Nú var það John Boyd Dunlop sem kom fram með þessa uppfinningu þegar hann reyndi að koma í veg fyrir höfuð- verk sem sonur hans fékk af því að hjóla á hörðum dekkjum um holótta vegi. Þannig hófst önnur tilraun með uppblásin dekk og árið 1888 fékk Dunlop einkaleyfi. Tveimur árum síðar var hann sviptur því sökum fyrri upp- finningar Thomsons. 1891 Michelin-bræðurnir finna upp loftfyllt dekk sem er hægt að fjarlægja. Þrír tímar fóru í að skipta um álímt dekk á reiðhjóli auk þess sem hjólið þurfti að bíða yfir nótt þar til límið þornaði. Það varð hvatinn að þessari uppfinningu sem markaði tímamót í notagildi dekkjanna. 1895 Michelin-bræðurnir kynna til sögunnar fyrstu loftfylltu dekkin fyrir bíla. André Michelin notar þau í Paris-Bordeaux-Parísar- rallýinu. Dekkjasalan er umboðssala fyrir notuð dekk. Þú kemur með dekkin til okkar og við seljum þau fyrir þig Dalshrauni 1 www.dekkjasalan.is 587 3757 MIKIL EFTIRSPURN ! 16

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.