Fréttablaðið - 11.04.2012, Síða 28
KYNNING − AUGLÝSINGSumardekk MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 20128
Við bjóðum alhliða hjólbarða-þjónustu og seljum dekk í öllum verðflokkum. Good-
year/Dunlop er flaggskipið okkar
en við höfum verið umboðsaðilar
þeirra á Íslandi í 60 ár,“ segir Eggert
Bjarki Eggertsson hjá hjólbarðaþjón-
ustu Kletts.
„Við erum einnig með ódýrari
vörumerki en gæðin haldast þó í
hendur við verðið. Viðskiptavin-
urinn fær meira fyrir peningana í
vandaðri merkjunum þar sem end-
ingartíminn, gæði og öryggi eru í
fyrirrúmi.”
Klettur selur allar stærðir hjól-
barða, allt frá minnstu hjólbörðum
á handtrillur, hjólbörur og mótor-
hjól, upp í stærstu vinnuvélar og
vörubíla. Aðstaðan í Klettagörðum
býður upp á fullkomið verkstæði til
að sinna allri vinnu og þjónustu við
viðskiptavini.
„Yfirleitt er nóg að mæta beint til
okkar án þess að panta tíma. Á verk-
stæðinu starfa fimm manns svo bið-
tími er í lágmarki. Vörubíla getum
við tekið í gegnumakstur gegnum
húsið og þurfa þeir þar af leiðandi
ekki að bakka út úr húsinu,“ útskýrir
Eggert.
Hann segir starfsmenn fyrirtæk-
isins vel þjálfaða enda hafi þeir verið
í bransanum í mörg ár.
„Hjólbarðadeild Kletts er byggð á
gömlum grunni. Sjálfur hef ég verið
í rúm 25 ár í bransanum svo við
erum ansi sjóaðir í þessum málum.“
Klettur er einnig heildsali með
hjólbarða og þjónustar hjólbarða-
verkstæði um allt land. Nánari
upplýsingar um vörur er að finna á
heimasíðunni www.klettur.is.
Viðskipta-
vinurinn fær
meira fyrir
peningana í vandaðri
merkjunum þar sem
endingartíminn, gæði og
öryggi eru í fyrirrúmi.
GoodYear/Dunlop-hjólbarðaþjónusta
Klettur – sala og þjónusta ehf. rekur hjólbarðaþjónustu að Klettagörðum 8-10 í Reykjavík. Fyrirtækið selur dekk í öllum verðflokkum og af öllum
stærðum og gerðum og fullkomið verkstæði til að sinna allri vinnu og þjónustu við viðskiptavini.
Eggert Bjarki Eggertsson og Halldór Jóhannsson hjá Kletti útvega viðskiptavinum allar gerðir hjólbarða. MYND/GVA