Fréttablaðið - 11.04.2012, Side 32
| 6 11. apríl 2012 | miðvikudagur
NÝSKÖPUN
Þórður Snær Júlíusson
thordur@frettabladid.is
A
rion banki mun kynna
Startup Reykjavík,
nýtt frumkvöðla setur
sitt, á Sprotaþingi Ís-
lands næstkomandi
föstudag. Setrið, sem er hluti af
Global Acceleration Network, er
sett á fót í samvinnu við Innovit
og Klak. Fyrirmynd þess er er-
lend og samkvæmt upplýsingum
frá bankanum hefur svona lagað
ekki verið gert á Íslandi áður.
Startup Reykjavík á að standa
yfir í þrjá mánuði yfir sumar-
tímann (frá byrjun júní og út
ágústmánuð). Umsóknarfrest-
ur til að taka þátt er til 7. maí
næstkomandi. Úr hópi umsækj-
enda verða valin tíu viðskipta-
teymi sem munu fá tvær millj-
ónir króna í hlutafé frá Arion
banka gegn allt að 6% hlutdeild
í fyrirtækinu. Yfir 20 leiðbein-
endur úr ólíkum áttum úr ís-
lensku viðskipta- og athafna-
lífi munu veita þjálfun á meðan
Startup Reykjavík stendur yfir.
Arion banki mun auk þess sjá
þeim sem munu taka þátt í verk-
efninu fyrir húsnæði á meðan
það stendur yfir. Á lokadegi þess
munu teymin síðan fá tækifæri
til að kynna sig fyrir fjárfestum.
Arion hefur skuldbundið sig til
að bjóða upp á verkefnið oftar
en einu sinni.
Einar Gunnar Guðmundsson,
sérfræðingur frumkvöðla- og ný-
sköpunarmála hjá Arion banka
og umsjónarmaður verkefnis-
ins, segir hugmyndina vera þá að
tengja betur einkafjármagn við
frumkvöðla. „Þetta eykur stuðn-
ings einkafjármagns við frum-
kvöðlaumhverfið og þar með
verður vistkerfi frumkvöðla mun
sterkara fyrir vikið. Verkefnið er
framlag okkar til að gera hluti
sem raunverulega skipta máli.“
Spurður um hvaða hag Arion
banki hafi af verkefninu nefnir
Einar Gunnar þrenns konar
ávinning.
„Í fyrsta lagi samræmist þetta
stefnu bankans um að vera fyrsti
valkostur hjá bæði frumkvöðlum
og fjárfestum. Í öðru lagi ætlar
Ætlar að fjárfesta í
frumkvöðlastarfsemi
Stóru bankarnir þrír bjóða allir upp á vettvang til að styðja við frumkvöðlastarf-
semi. Landsbankinn og Íslandsbanki hafa boðið upp á aðstöðu, styrki og ráðgjöf.
Arion ætlar nú að bjóða upp á að gerast meðfjárfestir í verkefnum.
AÐSTAÐA Bankarnir hafa meðal annars boðið frumkvöðlum upp á aðstöðu til að
vinna að hugmyndum sínum. Með Startup Reykjavík mun Arion fyrstur íslensku
bankanna bjóða upp á vettvang þar sem bankinn leggur fram fjármagn gegn hlutdeild í
frumkvöðlafyrirtækjum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Landsbankinn hefur það yfirlýsta markmið að vera
leiðandi aðili í að blása nýju lífi í íslenskt atvinnulíf og
hefur meðal annars lagt áherslu á nýsköpun í þeim
efnum.
Um mitt ár 2011 setti bankinn á fót Nýsköpunar-
þjónustu. Samkvæmt heimasíðu hennar er boðið upp á
ráðgjöf sem tengist starfsumhverfi fyrirtækjanna, leitast
er við að leiða saman aðila sem gagnast hver öðrum,
efla tengsl bankans við markaðinn og þróa þjónustu
hans með þarfir frumkvöðla í huga. Áður hafði bankinn
efnt til opinna funda á níu stöðum um land allt til að
leita að tækifærum til að fjármagna hugmyndir, með
höfuðáherslu á nýsköpun.
Bankinn gerist þó hvorki áhættufjárfestir né otar
lánum að ungum fyrirtækjum. Í svari Landsbankans
við fyrirspurn Markaðarins kemur fram að sú afstaða
byggi á þeirri sýn hans að lánsfé sé ekki það þolinmóða
fjármagn sem fyrirtæki á fyrstu stigum þarfnast. „Þó
býður Landsbankinn viðskiptavinum, sem eru með
góða viðskiptahugmynd og vilja vinna að nýsköpun,
upp á nýsköpunarlán, sem er skammtímafjármögnun,
allt að 750 þúsund krónur, og er á hagstæðari vaxta-
kjörum en hefðbundin yfirdráttarlán.“ Umrædd lán eru
meðal annars ætluð til kaupa á tækjum og hugbúnaði,
þátttöku á námskeiðum, kaupum á sérfræðiþjónustu
og þátttöku á vörusýningum. Landsbankinn hefur þegar
lánað út rúmlega sex milljónir króna undir þessum hatti
síðan nýsköpunarlánin voru fyrst auglýst og tæplega 60
aðilar hafa nýtt sér ráðgjafaviðtöl hjá nýsköpunarsér-
fræðingi bankans eða fyrirtækjasérfræðingum hans.
Landsbankinn er einnig meginbakhjarl og samstarfs-
aðili Atvinnu- og nýsköpunarhelga Innovit. Alls hafa
fjórar slíkar verið haldnar það sem af er vetri, yfir 200
þátttakendur hafa tekið þátt í þeim og sem stendur er
unnið að framgangi meira en 50 viðskiptahugmynda.
Næsta nýsköpunarhelgi verður haldin á Akranesi 27. apríl
næstkomandi. Bankinn er líka styrktaraðili Gulleggsins,
frumkvöðlakeppni Innovits.
Þá rekur bankinn Samfélagssjóð sem veitir nýsköpun-
arstyrki upp á samtals 15 milljónir króna til að gefa frum-
kvöðlum tækifæri til að þróa nýja viðskiptahugmynd,
eldri viðskiptahugmynd á nýju markaðssvæði eða nýja
vöru og þjónustu. Hann hefur einnig skrifað undir sam-
starfssamning við Svanna – lánatryggingasjóð kvenna,
sem er í eigu tveggja ráðuneyta og Reykjavíkurborgar,
um að veita konum í atvinnurekstri lán sem sjóðurinn
og bankinn ábyrgjast sameiginlega til helminga. Lands-
bankinn stofnaði einnig Þróunarsjóð ásamt iðnaðarráðu-
neytinu til að lengja ferðamannatímabilið á Íslandi.
Sjóðurinn, sem styrkir þróun verkefna sem hægt er að
sinna utan háannatíma í ferðaþjónustu, á um 70 millj-
ónir króna sem úthlutað verður í tveimur úthlutunum.
LANDSBANKINN ÆTLAR AÐ VERA LEIÐANDI
Samkvæmt upplýsingum frá Íslandsbanka hefur hann lagt áherslu á að
styrkja frumkvöðlaverkefni sem leggja áherslu á endurnýjanlega orku og
sjálfbæran sjávarútveg, enda hefur bankinn byggt upp sérþekkingu á sviði
jarðvarma og sjávarútvegs. Markmið styrkjanna er að hvetja til nýsköpunar
og þróunar á þessum tveimur sviðum.
Á þessum grunni veitti Íslandsbanki sprotafyrirtækinu GÍRÓ þriggja
milljóna króna styrk til að þróa aðferð og smíða mælitæki sem getur allt
í senn mælt hita, þrýsting, stefnu og halla borhola við allt að 400°C. Slíkt
tæki er ekki til á markaðnum sem stendur. Þá styrki bankinn menntastofn-
anir innan íslenska sjávarklasans um fimm milljónir króna. Í svari bankans
við fyrirspurn Markaðarins segir að styrkurinn hafi verið ætlaður til „að efla
samstarf um námsframboð og marka stefnu og framkvæmdaáætlun um
hvernig laða megi ungt fólk að menntun á þessu sviði“.
Íslandsbanki opnaði einnig viðskiptasetrið Kvosina í samstarfi við
Nýsköpunarmiðstöð Íslands í húsnæði bankans við Lækjargötu árið 2009.
Þar fá einstaklingar og hópar aðstöðu til að vinna að viðskiptahugmyndum
og stofna fyrirtæki undir faglegri umsjón sérfræðinga Impru á Nýsköp-
unarmiðstöð. Alls hafa um 80 fyrirtæki nýtt sér þessa aðstöðu frá stofnun
Kvosarinnar.
Þá hafa Íslandsbanki, Félag kvenna í atvinnurekstri og Opni háskólinn
við Háskólann í Reykjavík staðið fyrir námskeiði fyrir frumkvöðla og
frumkvöðlasamkeppni fyrir konur. Bankinn greiddi þar helming nám-
skeiðsgjaldsins. Á námskeiðinu fengu þátttakendur m.a. kennslu í stofnun
fyrirtækja, stefnumótun, markaðsgreiningu, fjármálum og samningatækni.
Þetta skilaði 30 viðskiptaáætlunum og tóku þær fimm sem metnar voru
bestar þátt í keppni um bestu áætlunina. Höfundur bestu áætlunarinnar,
Volki, hlaut svo tveggja milljóna króna styrk frá Íslandsbanka.
LEGGUR ÁHERSLU Á ORKU OG SJÁVARÚTVEG
Arion sér að vera virkt tannhjól
í því að auka verðmætasköpun á
Íslandi. Í þriðja lagi vonumst við
síðar til að þetta skili okkur, til
lengri tíma, fleiri og betri við-
skiptavinum. Þetta er langhlaup,
ekki spretthlaup.“
Global Accelerator Network er
net rekið af Techstars í Banda-
ríkjunum sem nær víða um heim.
Einar Gunnar segir aðgengi ís-
lenskra frumkvöðla að netinu
opna ýmsa möguleika fyrir ís-
lenska frumkvöðla. „Það opnar
möguleikann á því að vera ann-
ars vegar að hitta sambærileg
fyrirtæki sem eru að vinna að
svipuðum hlutum og frumkvöðl-
arnir sjálfir, meðal annars með
samstarf í huga, og hins vegar
upp á að hitta og kynna sig fyrir
erlendum fjárfestum.“