Fréttablaðið - 11.04.2012, Side 46

Fréttablaðið - 11.04.2012, Side 46
11. apríl 2012 MIÐVIKUDAGUR26 BESTI BITINN Í BÆNUM - getur m.a. hjálpað ef þú finnur fyrir: Sjúkraþjálfari framkvæmir göngugreiningu hjá Heilsulandi Aumum hælum Beinhimnubólgu Verkjum í iljum Þreytuverkjum og pirring í fótum Verkjum í hnjám Verkjum í baki eða mjöðmum Hásinavandamálum Sérfræðingar Heilsulands eru Ásmundur Arnarsson og Jónas Grani Garðarsson sjúkraþjálfarar GÖNGUGREINING KAUPTHING MANAGER SELECTION Société d'Investissement à Capital Variable 14, boulevard Royal – L-2449 LUXEMBOURG R.C.S. Luxembourg B 72.942 (the „Sicav“) ANNUAL GENERAL MEETING OF SHAREHOLDERS The Board of Directors is pleased to convene the shareholders of KAUPTHING MANAGER SELECTION to attend the annual general meeting to be held at the registered office of the Sicav on 30 April 2012 at 11.00 a.m. with the following agenda: 1. Report of the Board of Directors and of the Independent Auditor 2. Approval of the financial statements as at 31 December 2011 3. Allocation of the results 4. Discharge to the Directors 5. Renewal of the mandate of the Independent Auditor 6. Statutory elections 7. Miscellaneous The shareholders are advised that no quorum for the statutory general meeting is required and that decisions will be taken by simple majority of the votes cast. Proxies are available at the registered office of the Sicav. Shareholders, who wish to attend the annual general meeting, are requested to inform the Board of Directors (Fax nr: +352 49 924 2501 – ifs.fds@bdl.lu) at least five calendar days prior to the annual general meeting. „Snaps. Það eru tvö píanó inni á staðnum svo það er alltaf góð stemning. Svo skemmir ekki fyrir að staðurinn er við hliðina á mér, en ég mæli með öndinni.“ Anna Svava Knútsdóttir, leikari og hand- ritshöfundur. Tom Cruise er væntanlegur til landsins í júní með tökuliði stórmyndarinnar Oblivion. Þetta staðfesti Leifur B. Dagfinnsson, framleiðandi hjá framleiðslufyrirtækinu True North, í frétt á vef RÚV í gær. Tom Cruise verður fimmtugur 3. júlí næst- komandi og hyggst samkvæmt heimildum Fréttablaðsins halda upp á afmælið á Íslandi. Sömu heimildir herma að vinum Cruise og eigin konu hans, leikkonunnar Katie Holmes, verði boðið í veisluna. Í þeim hópi eru m.a. hjónin David og Victoria Beckham og Will og Jada Pinkett-Smith. True North heldur utan um tökulið Oblivion hér á landi, en tökur fara að mestu fram uppi á hálendi. Tom Cruise talaði um væntanlegt stór- afmæli í viðtali í bandaríska sjónvarpsþættin- um Extra í desember á síðasta ári. Þar sagðist hann staðráðinn í að halda upp á áfangann þrátt fyrir að þurfa eflaust að vinna á afmælisdaginn. „Við höldum upp á þetta einhvers staðar, þó að ég verði eflaust við tökur á afmælisdaginn,“ sagði hann. Ekki náðist í Leif hjá True North við vinnslu fréttarinnar. - afb Stórafmæli Tom Cruise á Íslandi STÓRAFMÆLI Á ÍSLANDI Tom Cruise er væntanlegur til landsins í júní og hyggst halda upp á fimm- tugsafmælið sitt hér á landi. Vinum Cruise ku vera boðið til veislunnar, en í þeim hópi eru m.a. hjónin David og Victoria Beckham. „Þetta verður nýtt og spennandi ævintýri fyrir okkur,“ segir Jörundur Ragnarsson leikari en hann hefur fengið inngöngu í Columbia-háskólann í New York og heldur utan í haust. Jörundur, sem er hvað þekktastur fyrir hlutverk sitt í Vakta-seríunum og nú síðast Heimsendi, ætlar í meistaranám í kvikmyndaleikstjórn og handrita- gerð, en hann hefur lengi langað til að spreyta sig fyrir aftan linsuna. „Ég fékk nasaþefinn af þessu ferli í vinnu minni með Ragnari Bragasyni og höf- undahópnum. Það var frábær reynsla að taka þátt í að móta hugmynd frá grunni og jafnt og þétt jókst áhugi minn á fleiri sviðum kvikmyndagerðar,“ segir Jörundur en námið er lágmark þrjú ár. Nám við kvikmyndadeild Columbia-háskólans er mjög eftirsótt og segir Jörundur að einungis sex prósent umsækjenda hafi fengið inngöngu. Leik- stjórarnir Ísold Uggadóttir og Hafsteinn Sigurðsson hafa bæði lokið þessu námi við skólann. Jörundur var kallaður í viðtal í febrúar og fór það fram á Skype sem að hans sögn gekk ekki alveg að óskum. „Ég fékk vitlausar upplýsingar um tímamis- muninn og var því hálf óundirbúinn fyrir framan tölvuna í viðtalinu. Það bætti ekki á stressið og ég var viss um að ég væri búinn að klúðra þessu,“ segir Jörundur sem fékk svo þær gleðifregnir fyrir stuttu að hann hefði komist inn. Jörundur er í sambúð með leikkonunni Dóru Jóhannsdóttur og saman eiga þau einn son. Jörund- ur á von á því að mæðginin fari út til hans í lok árs. „Stærsti þröskuldurinn er að fjármagna námið en það er dýrt að læra í Bandaríkjunum. Ég er samt vongóður og bjartsýnn og hlakka til að prófa að búa í New York þar sem skapandi orka blómstrar.“ - áp Lærir leikstjórn í New York KVEÐUR Í BILI Jörundur Ragnarsson leikari er kominn inn í meistaranám í kvikmyndaleikstjórn og handritagerð í Columbia-háskólanum í New York og fer út í haust. „Við lifum á tónlistinni. Það er pottþétt draumur hvers tónlistar- manns,“ segir Ragnar Þórhallsson, annar söngvara hljómsveitarinnar Of Monsters and Men. Platan My Head Is an Animal með Of Monsters and Men hefur selst í um 55 þúsund eintökum frá því að hún kom út í Bandaríkjunum 3. apríl, samkvæmt vefritinu Hits Daily Double. Til að setja töluna í samhengi þá greinir Reuters frá því að nýjasta plata Madonnu hafi selst í 46 þúsund eintökum á sama tíma- bili, en hún kom út viku á undan plötu Of Monsters and Men. My Head Is an Animal situr nú í þriðja sæti vinsældalista Itunes ásamt því að vera ofarlega á sölulistum vef- verslunarinnar Amazon.com. „Þetta hljómar allt mjög vel, en maður skilur samt ekki alveg hvað þessar tölur þýða, þetta er svo ótrúlegt,“ segir Ragnar. Hann var staddur í rútu í grennd við Albany í New York-ríki, ásamt öðrum með- limum hljómsveitarinnar, þegar Fréttablaðið hafði samband. Söng- konan Nanna Bryndís Hilmars- dóttir segir góða stemningu í hljóm- sveitinni. „Við vorum orðin rosalega þreytt eftir tónleikana í New York en í gær fengum við dagsfrí sem við eyddum uppi á hótelherbergi og sváfum,“ segir hún, en hljómsveitin hefur verið á ferðalagi um Banda- ríkin frá 13. mars. Uppselt hefur verið á alla 19 tón- leikana og innt eftir því hvort þau finni sjálf fyrir þessum miklu vin- sældum svarar Ragnar því játandi. „Þetta er allt mjög óraunverulegt. Við erum beðin um eiginhandar- áritanir og spilum fyrir fullu húsi öll kvöld. Maður þarf að stoppa reglulega til þess að klípa sig í handlegginn,“ segir hann. Of Monsters and Men heldur til Evrópu í lok mánaðarins en fær sex daga frí á Íslandi áður og að sögn Ragnars og Nönnu hlakka þau öll mikið til þess að komast heim. „Ég hlakka til þess að borða eitthvað annað en hamborgara,“ segir Nanna Bryndís og Ragnar samsinnir því. „Ég hlakka til þess að borða ýsu og kartöflur og mömmumat. Hér er voða fátt í boði þegar maður borð- ar seint að nóttu til og á hálfgerðum hlaupum.“ sara@frettabladid.is atlifannar@frettabladid.is RAGNAR ÞÓRHALLSSON: ÞETTA ER ALLT MJÖG ÓRAUNVERULEGT Of Monsters and Men selur 55 þúsund plötur á viku ÓTRÚLEG VELGENGNI Hljómsveitin Of Monsters and Men nýtur talsverðra vinsælda í Bandaríkjunum um þessar mundir. Hljómsveitin kom á dögunum fram í þættinum Hoppus On Music á sjónvarpsstöðinni Fuse, þar sem þessi mynd er tekin. NORDIPHOTOS/GETTY Bandarískir notendur Twitter-samskiptasíðunnar hafa verið einstaklega duglegir við að minnast á Of Monsters and Men í tístum sínum undanfarna daga. Hundruð færslna um hljómsveitina birtast á hverjum degi og flestir dásama plötuna My Head Is an Animal. Leik- konan Lea Michele, sem er þekktust fyrir hlutverk sitt í þáttunum Glee, tísti um Of Monsters and Men á dögunum og sagðist hafa hlustað á hljómsveitina alla leiðina í vinnuna, á tökustað Glee. GLEE-STJARNA Í AÐDÁENDAHÓPNUM

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.