Fréttablaðið - 11.04.2012, Qupperneq 48
DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 VÍSIR
Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Mest lesið
FRÉTTIR AF FÓLKI
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.
Ferðaskrifstofa
Save the Children á Íslandi
Mest stolið um páskana
Kvikmyndin Contraband, sem kom
út í Bandaríkjunum í upphafi árs,
er ein vinsælasta mynd ólöglegu
deilisíðunnar The Pirate Bay. Eftir
að hafa verið þar efst á lista yfir
mest sóttu myndirnar um páska-
helgina er hún nú komin niður í
það þriðja. Myndin, sem er endur-
gerð Baltasars Kormáks á íslensku
myndinni Reykjavík
Rotterdam, skartar
þeim Mark Wahlberg
og Kate Beckinsale
í aðalhlutverkum.
Hún hefur fengið
góðar viðtökur vestan-
hafs og greinilegt að
fólk alls staðar
að úr heiminum
hefur áhuga
á að horfa á
hana, þó ekki
séu allir til í að
greiða fyrir
áhorfið.
Kolfinna í ítalska Vogue
Fyrirsætan Kolfinna Kristófers-
dóttir kemur fyrir í myndaþætti
fyrir ítalska Vogue sem nefnist
Because the Night. Ljósmyndarinn
Steven Meisel myndaði þáttinn
en hann myndaði meðal annars
Madonnu fyrir bók hennar Sex
sem kom út árið 1992. Meisel
stundaði nám við Parsons the New
School for Design og hefur áður
unnið með tískuhúsum á borð við
Versace, Valentino, Dolce & Gabb-
ana og Calvin Klein. Vogue.it birti á
síðu sinni myndband frá tökunum
og er andrúmsloftið
draumkennt og svo-
lítið drungalegt. Ferill
Kolfinnu virðist því
vera á hraðri upp-
leið, en stúlkan vakti
einnig mikla athygli
fyrir frammistöðu sína
á tískuvikun-
um í byrjun
ársins.
- trs, sm
1 Virðast ráðast á hvaða hunda
sem er
2 Kate Winslet kom við á
Íslandi
3 Kattardráp í Grafarvogi: Eigandi
læðunnar gagnrýnir yfirvöld
4 Tvö flugmóðurskip á
Persaflóa
5 Þóra stofnar kosningasjóð