Fréttablaðið - 22.05.2012, Side 1

Fréttablaðið - 22.05.2012, Side 1
veðrið í dag MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* Sími: 512 5000 *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012 Þriðjudagur skoðun 12 2 SÉRBLÖÐ í Fréttablaðinu Fólk Pitsa 22. maí 2012 118. tölublað 12. árgangur PITSURÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2012 KynningarblaðSpagettípitsa, hráfæðispitsa, Happspitsa, fyrsta pitsan, eldbakaðar pitsur. V eitingastaðurinn Eldofninn er lítill og vinalegur pitsu-staður, staðsettur í Grímsbæ við Bústaðaveginn. Þar er boðið upp á girnilegar eldbakaðar pitsur eftir ítalskri forskrift. „Þetta er lítill fjölskyldustaður, rekinn af okkur hjónunum og strákunum okkar og svo að sjálfsögðu erum við með frá-bært aðstoðarfólk,” segir Eva Karls-dóttir sem er eigandi ásamt manni sínum Ellert A. Ingimundarsyni leikara. Fyrsta flokks hráefni Hráefni er ekki bara hráefni, eru einkennisorð sem höfð eru að leiðar ljósi hjá Eldofninum og því er það valið af kostgæfni. „Hrá-efnið skiptir öllu máli, til dæmis er enginn sykur notaður í pitsu-sósuna heldur plómutómatar sem eru náttúrulega sætir, en sósan er löguð daglega ásamt deiginu. Best geymda leyndarmál Eldofnsins er svo hvítlauks- og eldofnsolíurnar sem einnig eru gerðar á staðnum.“ Hakkið, sem er án allra íblönd-unarefna, kemur frá Kjöthöllinni og er steikt á staðnum, kletta salatið er frá Hveratúni og basilíkan kemur beint frá bónda. „Basil er órjúfan-legur partur af Margarítu special, rauð sósan, mozzarella- sneiðar, ólífuolía og basillauf, sem sagt rauður, hvítur og grænn, sem eru litir ítalska fánans.“ Eldofn og kaffi frá ÍtalíuÁrið 2008 fóru þau hjónin til Ítalíu og ætluðu að finna el-dofn og skoða ítalska pitsustaði. „Við fórum í sex verksmiðjur að skoða ofna áður en við ákváðum að kaupa ofninn okkar og að sjálfsögðu borðuðum við svo pitsur í öll mál.Eldof i útbúið fyrsta f lokks eldbakaðar pitsur og veitt viðskiptavininum óskipta athygli í leiðinni áhyggju-laust.“ Eldofninn selur einnig sérinn-flutt kaffi frá Ítalíu sem þau hjónin fundu fyrir tilviljun á ferðalagi sínu. „Við ætluðum bara að taka nokkur kíló af kaffi með heim og rákumst inn í fjölskyldufyrirtækið Italcaffé í Ceperana í La Spezia héraðinu. Þeir vildu endilega að við myndum selja kaffið þeirra á Íslandi. Okkur leist vel á og slógum bara til.“ Sífellt fleiri kúnnar koma núorðið á Eldofninn eingöngu til þess að kaupa sér kaffi eða baunir til að taka með heim. Ánægður viðskiptavinur besta auglýsingin Hjá Eldofninum er mikið lagt upp úr því að veita góða þjónustu og já-kvætt og persónulegt viðmót haft að leiðarljósi í öllum samskiptum við kúnnann. „Hingað koma reglulega nýir viðskiptavinir eingöngu vegna góðrar umfjöllunar frá öðrum, þannig að ánægður viðskiptavinur er besta auglýsingin,“ segir Eva stolt af orðspori Eldofnsins. Tilboð og opnunartímarÝmis tilboð eru í gangi á Eld-ofninum. „Við erum með hádegis-tilboð á virkum dögum; pitsa með tveimur áleggstegundum og súper-dós og svo er tíu prósent afsláttur þegar fólk sækir.“ Ekki er boðið upp á heimsend-ingu nema um stórar pantanir sé að ræða. Eldofninn er opinn frá klukkan 11.30 t i l 21 þriðjudaga t i l fimmtudaga og til 22 á föstudögum. Á laugar-dögum er opið frá 17-22 og á sunnudögum frá 17-21 en á má Hráefnið skiptir öllu máli Pitsustaðurinn Eldofninn í Grímsbæ við Bústaðaveg er vel falið leyndarmál í miðju íbúðahverfi sem býður upp á vinalegt andrúmsloft og eldbakaðar pitsur í hæsta gæðaflokki. Mikið er lagt upp úr persónulegri og góðri þjónustu. MIKILL MUNUR Ellisif segir fólk oftast missa heyrnina smátt og smátt og ekki gera sér grein fyrir því hve illa það heyrir fyrr en það fær h k ALLUR ER VARINN GÓÐUR Það er gaman að fá lit en sólbruni skemmir húðina og veldur hrukkum. Því er óæskilegt að svindla á sólarvörninni. Gætið þess að bera hana á ber svæði áður en farið er út í sólina og setja nýtt lag ef arið er í vatn. Að bera á sig sólarvörn er fyrirbyggjandi aðgerð. Það er of seint a taka h na upp þegar húðin er orðin rauð. Ellisif Katrín Björnsdóttir út skrifaðist úr námi sem heyrnarfræ ingur frá háskólanum í Gautaborg fyrir tíu árum. Fimm árum síðar stofnaði hún fyrir tækið Heyrn sem staðsett er í Hlíðar-smáranum. „Það hefur margt breyst á þessum tíma þá sérstakl iðh f Fyrst voru allir að keppast við að hafa þá sem minnsta en í dag er meira hugsað út í notagildi og hvað sé hægt gera með þeim.“ Spurð hvað sé skemmtilegast við starfið segir Ellisif það vera að fá að TVÖFÖLD TÍMAMÓTHEYRN KYNNIR Ellisif Katrí Björnsdóttir fagnar tíu ára útskriftarafmæli sem heyrnarfræðingur auk fimm ára starfsafmælis Heyrnar sem hún á og rekur. ted PATSY - létt fylltur og glæsilegur í D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 9.680,- NÝKOMINN - sumarlegur Laugavegi 178 - Sími: 551 3366 Þú mætir - við mælum og aðstoðum www.misty.is Opið frá 10-18 virka daga. 10-14 laugardaga Boston leður svart, hvítt st. 35-48 rautt st. 36-42 blátt st. 36-47 Roma Rúskinn lj.blátt d.blátt 36-42 Monako leður svart, hvítt rúskinn og microfib. st. 36-46 Paris leður svart, hvítt, blátt m/microfib og rúskinnssóla Verð: 11.900 kr. Verð: 10.900 kr. Verð: 6.990 kr. Opið virka daga í sumar frá kl. 9 -18 • Stórhöfða 25 • 569 3 100 • e irberg.is Rafskutlur hagkvæmur ferðamáti NÝR MATSEÐILL FYLGIR BLAÐINU Í DAG. NÝR MATSEÐILL FYLGIR BLAÐINU Í DAG Sumartilboð Fosshótela! SJÁ NÁNAR Á FOSSHOTEL.IS EX PO • w w w .e xp o. is Syrgir Robin Gibb Ladda langar að semja nýtt lag til heiðurs Bee Gees. popp 30 SJÁVARÚTVEGUR Atvinnuveganefnd mun afgreiða frumvarp sjávarút- vegsráðherra um veiðigjald í dag. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins eru gerðar á því umtals- verðar breytingar. Þar ber hæst að lagt er til að veiðigjald verði lækkað til muna frá því sem er í frumvarpinu. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins var ákveðið að bregðast við ýmsum athugasemdum, ekki síst er varða skuldsetningu sjávar- útvegsfyrirtækja. Umfangsmesta breytingin er þó lækkun veiði- gjaldsins. Unnið hefur verið að breyting- unum bæði á vettvangi nefndar- innar og landbúnaðar- og sjávar- útvegsráðuneytisins. Haft hefur verið samráð við fjölmarga sér- fræðinga, meðal annarra Daða Má Kristófersson, dósent við Háskóla Íslands. Hann skrifaði, ásamt Stefáni B. Gunnlaugssyni lektor við Háskólann á Akureyri, greinar gerð um frumvarpið þar sem kom fram að sjávarútvegur gæti ekki staðið undir því veiði- gjaldi sem frumvarpið lagði til. Atvinnuveganefnd fól þeim að reikna áhrif þess að sérstakt veiði- gjald yrði lækkað um helming. Niðurstaða Daða Más og Stefáns var að svo mildari útgáfa hefði nokkur áhrif á getu fyrirtækjanna til að greiða upp skuldir. „Okkar mat er að flest stærstu sjávarútvegsfyrirtækin ráði vel við þessa útfærslu,“ segir í greinar gerðinni. Ekki liggur nákvæmlega fyrir hver upphæð veiði gjaldsins verður eftir breytingarnar. Heimildir Fréttablaðsins herma þó að það gæti skilað allt að 14 til 15 milljörðum í ríkissjóð. Enn hefur þó ekki verið tekin ákvörðun um málið og unnið er að því að sam- eina sjónarmið úr skýrslu sér- fræðinganna og hugmyndir ríkis- stjórnarinnar um gjaldheimtu. Ljóst er þó að verði þetta að veruleika er um umtalsverða hækkun á veiðigjaldi að ræða. Fiskveiðiárið 2010 til 2011 skilaði veiðigjald 2,7 milljörðum í ríkis- sjóð og áætlanir gera ráð fyrir 4,5 milljörðum á yfirstandandi fiskveiðiári. Sé litið til nýkynntrar fjárfest- ingaáætlunar ríkis stjórnarinnar ætlar stjórnin sér að ná inn 17 milljörðum í veiðigjöld á næsta ári og 40 til 50 á næstu þremur árum. Þó er gerður fyrirvari um sam- þykkt frumvarpsins um veiðigjöld. Heimildir Fréttablaðsins herma að verði ný útfærsla veiðigjalda samþykkt muni þessi upphæð lækka nokkuð. Ljóst sé hins vegar að stjórnin bindi saman tekjur af veiðigjaldi og útgjöld í fjárfest- ingaáætluninni. - kóp Veruleg lækkun á veiðigjaldi Frumvarp um veiðigjald verður tekið úr nefnd í dag. Lagt til að veiðigjald lækki mikið frá upphaflegu frumvarpi. Felur þó í sér mikla hækkun og gæti skilað á annan tug milljarða á ári. Tillit tekið til skulda. HLÝNAR N-TIL Í dag verður SV-læg átt, víða 5-10 m/s. Lægir heldur V-til með deginum. Rigning SA-til og skúrir eða súld SV- og V- til. Hiti 7-17 stig hlýjast N-lands. VEÐUR 4 8 15 9 10 12 BÍLL SEM BOÐAR SUMAR Æfingar standa nú yfir af fullum krafti hjá Brúðubílnum, sem mun leggja land undir hjól í júní. Þetta er 32. ár hins sívinsæla farandleikhúss Helgu Steffensen. „Ef þið sjáið Brúðubílinn á ferð um bæinn þá vitið þið að sumarið er komið,“ sagði apinn Lilli við ljósmyndara Fréttablaðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR milljarða gæti ríkið fengið í sinn hlut af veiðigjaldinu eftir breytingarnar, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.14-15 LÍFEYRISMÁL Alþýðusamband Íslands (ASÍ) undirbýr málaferli á hendur ríkinu vegna fjársýslu- skatts sem lagður er á lífeyris- sjóði og banka. Gylfi Arnbjörns- son, forseti ASÍ, metur það svo að með skattlagningunni sé lífeyris- þegum í almennum lífeyris- sjóðum og lífeyrissjóðum opin- berra starfsmanna mismunað. Skattlagningin komi verr niður á þeim sem eiga réttindi í almennum lífeyris sjóðum en þeim sem greitt hafa í opinbera sjóði sem ríki og sveitarfélög ábyrgjast. „Þetta er að mati okkar hjá ASÍ brot á jafnræðisreglu,“ sagði Gylfi á fundi um lífeyrismál á Grand hóteli í gær. Þórey S. Þórðardóttir, fram- kvæmdastjóri Landssamtaka líf- eyrissjóða, sagði á fundinum að tekist hafi verið á um það í stjórnum margra sjóða hvort skerða þurfi lífeyrisréttindi frekar en gert hefur verið. - bj / sjá síðu 4 Alþýðusamband Íslands undirbýr málaferli á hendur ríkinu vegna fjársýsluskatts: Telja lífeyrisþegum mismunað Þetta er að mati okkar hjá ASÍ brot á jafnræðisreglu. GYLFI ARNBJÖRNSSON FORSETI ASÍ Þrjár helgar í röð Formaður íslenska Chelsea-klúbbsins fór þrjár helgar í röð á leiki með Lundúnarliðinu. popp 30 BANDARÍKIN Landhelgisgæslan í Kaliforníuríki fann 160 fljótandi böggla fulla af maríjúana við strendur Dana Point, um 20 kílómetra frá Orange County, á sunnudag. Talið er að efnin vegi allt að fjórum tonnum og götuvirði þeirra nemi um 3,6 milljónum dollara, eða um 460 milljónum íslenskra króna. Ekki liggur fyrir hvernig bögglarnir enduðu í sjónum, en greint er frá því í fjölmiðlum vestanhafs að þegar slíkt gerist séu smyglarar oftast að reyna að losna undan yfirvöldum með því að létta bátana. Talsmaður landamærayfir- valda í Kaliforníu sagði í samtali við fjölmiðla í Orange County að óvenjulegt væri að finna svona magn af fíkniefnum í sjónum án þess að smyglbátur sé sjáan- legur. Notast þurfti við þrjú stór hafnarskip til að veiða bögglana úr sjónum og flytja þá til lands. Enginn hefur enn verið hand- tekinn vegna málsins. - sv Fíkniefni við Kaliforníuströnd: Fjögur tonn af fljótandi grasi Enn tapa Framarar Selfoss skellti Fram en Stjarnan lagði Grindavík í Pepsi-deild karla. sport 26

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.