Fréttablaðið - 22.05.2012, Side 2
22. maí 2012 ÞRIÐJUDAGUR2
SPURNING DAGSINS
þrenns konar ídýfum
Grænmeti með
Farðu inn á gottimatinn.is til að fá alla uppskriftina
og hugmyndir að fleiri girnilegum réttum.
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
UMHVERFISMÁL Mistur sem legið
hefur yfir höfuðborgarsvæðinu
síðustu tvo daga er af völdum
svifryks sem berst frá ösku-
fallssvæði fyrir austan fjall, að
því er fram kemur í tilkynningu
Reykjavíkurborgar.
Reiknað var með að úrkoma
sem búið var að spá um sunnan-
og austanvert land í gærkvöldi
myndi hreinsa loftið og auka loft-
gæði í Reykjavík.
Klukkan eitt í gær mældist
styrkur svifryks 57,5 míkró-
grömm á rúmmetra á mæli-
stöðinni við Grensásveg í Reykja-
vík og meðaltal frá miðnætti var
140 míkrógrömm. Heilsuverndar-
mörk eru 50 míkrógrömm á rúm-
metra á sólarhring. - óká
Öskufok skýrir mistrið:
Svifryk mælist
yfir mörkum
Þórður, heldurðu að þetta
muni vara lengi?
„Þetta verður vonandi varanlegt í
sumar.“
Þórður Þórðarson þjálfar lið Skagamanna
sem er á toppi Pepsi-deildar karla, en
varamenn hafa skorað sigurmarkið í
síðustu þremur leikjum liðsins.
ÖRYGGISMÁL Öryggisbúnaður og
kunnátta í því að nota slíkan búnað
skipta sköpum þegar óvænt hættu-
ástand skapast á fjöllum. Það segir
Smári Sigurðsson, þaulvanur vél-
sleðamaður, en hann lenti í háska í
fjallaferð í síðustu viku.
Smári var á ferðinni uppi við
Kerlingu ofan við Eyjafjörð og
ekkert benti til þess að nokkuð væri
öðruvísi en venjulega þegar snjóflóð
fór af stað og rann á hann. Umsvifa-
laust sprengdi Smári út loftpúða
sem er í bakpokanum, en þegar allt
var um garð gengið var hann efst í
flóðinu og gat losað sig sjálfur.
„Menn hafa verið að þróa svona
útbúnað síðustu ár og notendum fer
alltaf fjölgandi,“ segir Smári.
Til að blása upp púðann þurfti
Smári að toga í handfang á bak-
pokanum. Hann segist hafa verið
fljótur að sprengja upp púðann
enda hafi hann verið búinn að
kynna sér búnaðinn. „Ég var
búinn að pæla í þessu og held að
það hafi skipt öllu máli, því að ég
hafði engan tíma til að hugsa mig
um. Ég veit svo ekki hvort púðinn
hafi einmitt bjargað mér, en hann
virkaði eins og hann átti að gera og
ég hafnaði mjög ofarlega í flóðinu.“
Smári bætir því við að annar
útbúnaður sé einnig mikilvægur,
til dæmis snjóflóðaýlar og stangir
og skóflur til leitar.
„Pokunum fer stöðugt fjölgandi
og næstum allir eru með ýli. Það
sem máli skiptir er hins vegar að
læra á tækið, því að það er enginn
tími til þess þegar komið er fram á
ögurstundu.“
„Tækjabúnaðurinn kemur ekki í
veg fyrir slysin, heldur lág markar
skaðann. Það er heldur ekki nóg
fyrir menn að kaupa allar heimsins
græjur ef þeir svo haga sér eins og
bjánar.“ - þj
Vélsleðamaðurinn Smári Sigurðsson slapp giftusamlega úr snjóflóði fyrir skemmstu:
Öryggisbúnaður og kunnátta skipta öllu
ÖRYGGIÐ Á ODDINN Öryggisútbúnaður
og undirbúningur komu sér vel þegar
Smári Sigurðsson lenti í snjóflóði í
hlíðum Kerlingar við Eyjafjörð. MYND/SMÁRI
SJÁVARÚTVEGUR Rannsóknir Haf-
rannsóknastofnunar sýna að brott-
kast á íslenskum skipum síðast-
liðin þrjú til fjögur ár er minna en
árin á undan.
Brottkast þorsks var 659 tonn
árið 2010, eða 0,43% aflönduðum
afla, og er það næstlægsta hlutfall
tímabilið 2001-2010. Brottkast ýsu
var 727 tonn, eða 1,17% af lönd-
uðum afla 2010, og er það einnig
næstlægsta brottkastshlutfall ýsu.
Meðalbrottkast þorsks 2001-
2010 í öll veiðarfæri var 0,90%
af lönduðum afla, eða 1.680 tonn,
en brottkast ýsu 2,02%, eða 1.488
tonn. - shá
0,90% af þorski hent:
Brottkast á fiski
fer minnkandi
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu stöðvaði kanna-
bisræktun á þremur stöðum í
umdæminu fyrir helgina.
„Sú stærsta var í Hafnarfirði
en í húsi þar var að finna um 180
kannabisplöntur. Á sama stað
var lagt hald á ýmsan búnað sem
tengdist starfseminni, meðal
annars fjölmarga gróðurhúsa-
lampa,“ segir í tilkynningu lög-
reglu, en ræktunin var falin í
100 fermetra rými í kjallara
hússins. „Karl um þrítugt var
yfirheyrður í þágu rannsóknar-
innar en sá reyndi að komast
undan á hlaupum þegar lögregl-
an bankaði upp á.“ - óká
Kannabisræktun stöðvuð:
Sá lögreglu og
tók til fótanna
Gripu veggjakrotara
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
greip um helgina erlendan ferða-
mann við þá iðju að krota á hurðir
og veggi. Í síma mannsins fundust
myndir af mörgum skemmdar-
verkanna. Málið er í rannsókn, að
sögn lögreglu.
LÖGREGLUMÁL
SVÍÞJÓÐ Stærsta dagblað Rúss-
lands, Komsomolskaja Pravda,
fullyrðir að herleyniþjónusta
Svíþjóðar,
Must, taki þátt
í starfsemi
stjórnarand-
stöðunnar í
Rússlandi.
Sænskir
fjölmiðlar
greina frá því
að rússneska
blaðið segi
upplýsingarnar
meðal annars byggðar á samtali
Carls Bildt, utanríkisráðherra
Svíþjóðar, Alex Navalnyj
stjórnarandstöðuleiðtoga og
sænsks diplómats. Samtalið er
sagt hafa verið hlerað í sendiráði
Svíþjóðar í Moskvu.
Á vef Dagens Nyheter segir að
rússneskir fjölmiðlar, sem stýrt
er af yfirvöldum, hafi hafið
herferð gegn sænskum
stjórnarerind rekum í desember
2011. -ibs
Rússneskt stórblað:
Samtal Carls
Bildt hlerað
CARL BILDT
SJÁVARÚTVEGUR „Ég hef ekkert
heyrt um þetta mál og sannast
sagna hljómar þetta eins og
áróður,“ segir Svavar Svavarsson,
markaðsstjóri HB Granda, um full-
yrðingar hvalfriðunarsamtaka um
að þeim hafi tekist að útiloka sölu
á sjávarfangi frá fyrir tækinu á
Ólympíu leikunum í London í sumar.
Hvalfriðunarsamtökin Whale
and Dolphin Conservation Society
(WDCS) halda því fram á heima-
síðu sinni að fyrir þeirra tilstilli
muni enginn fiskur frá HB Granda
verða seldur til íþróttafólks, starfs-
manna, eða áhorfenda á Ólympíu-
leikunum.
Samtökin byggja undir tíðindin
með því að greina frá því að David
Stubbs, sem fer fyrir sjálfbærni-
verkefni leikanna, hafi staðfest
þetta. Fréttaveitan Fishnewseu. com
fjallaði jafnframt um málið í gær.
Svavar segir að fiskur frá HB
Granda fari mikið til á „fish&chips-
markaðinn“ (fiskur og franskar), í
Bretlandi. Sölustaðir fyrir þennan
rétt í London séu um tíu þúsund
talsins og margir hverjir smáir
sjálfstæðir atvinnurekendur.
„Þetta finnst mér frekar langsótt,
satt best að segja,“ segir Svavar
WDCS hafa unnið markvisst
gegn HB Granda í Bretlandi um
árabil. Ástæðan er tengsl fyrir-
tækisins við Hval hf. sem er
stærsti einstaki hluthafinn í HB
Granda með fjörutíu prósent hluta-
fjár í gegnum dótturfyrirtæki sitt
Vogun. Svavar segir að þrátt fyrir
starf WDCS hafi það ekki haft
merkjanleg áhrif á sölu á fiskmeti
frá fyrirtækinu í Bretlandi.
Síðast náðu WDCS eyrum
almennings í herferð sem var sér-
staklega beint til sölumanna fisks
og franska í september síðast-
liðnum. Yfirlýst markmið sam-
takanna er að höggva skörð í
útflutning HB Granda til landsins
og þrýsta með því á að hval veiðum
verði alfarið hætt. Þá bentu
Grandamenn á að eignartengsl
HB Granda og Hvals hf. hafi legið
ljós fyrir í tvo áratugi og það hafi
helstu viðskiptavinir fyrirtækisins
vitað án þess að það hefði áhrif á
viðskiptasambönd.
WDCS útskýra ekki í frétt
sinni hvernig banninu verður
framfylgt, en fréttin verður ekki
skilin öðruvísi en að um sölu fisk-
metis á Ólympíuleikvanginum
og í Ólympíu þorpinu sé að ræða.
Keppni fer reyndar fram víðs
vegar um borgina og um England
í nokkrum greinum.
Fréttablaðinu hafði ekki borist
svar við fyrirspurn um málið
frá fjölmiðlaskrifstofu Ólympíu-
leikanna þegar blaðið fór í
prentun. svavar@frettabladid.is
Segjast hafa lokað á
sölu fisks frá Granda
Hvalfriðunarsamtök fullyrða að þau hafi komið í veg fyrir sölu á fiski frá HB
Granda á Ólympíuleikunum í London í sumar. Forsvarsmenn HB Granda koma
af fjöllum. Samtökin hafa lengi barist gegn Granda vegna tengsla við Hval hf.
JEMEN Um hundrað manns létust og
um 230 særðust í sjálfsvígsspreng-
juárás í Sanaa, höfuðborg Jemen, í
gær. Sprengjan varð á heræfingu
fyrir skrúðgöngu um miðjan dag
og hefur al-Kaída lýst ábyrgðinni
á hendur sér.
Yfirvöld í landinu segja að
ódæðismaðurinn hafi verið
klæddur í hermannabúning og hafi
því blandað sér vel inn í mann-
fjöldann. Hann sprengdi sjálfan
sig í loft upp í hópi hermanna á
al-Sabin torginu í Sanaa og var
sprengjan mjög öflug.
Heimildarmaður breska ríkisút-
varpsins BBC innan al-Kaída stað-
festi við fréttastofu að maðurinn
hefði verið meðlimur samtakanna.
„Þetta er fjöldamorð. Það eru
hrúgur af líkamspörtum, út limum
og höfðum. Þetta er ótrúlegt,“
sagði hermaður í samtali við AFP
fréttastofuna laust eftir atvikið.
Þetta er blóðugasta sprengju-
árás í borginni síðan Abdrabbuh
Mansour Hadi var kosinn forseti
í febrúar síðastliðnum.
Stjórnarherinn í Jemen hóf
sókn gegn íslömskum uppreisnar-
mönnum fyrir tíu dögum síðan,
þegar meira en 30 hermenn
andstöðunnar féllu. - sv
Hundrað manns létust í öflugri sprengjuárás í Sanaa, höfuðborg Jemen, í gær:
Blóðbað á skrúðgönguæfingu
HUNDRUÐ SÆRÐIR Alvarlega særður lögreglumaður liggur þungt haldinn á einu af
sjúkrahúsum Sanaa eftir árásina í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
GLÆSILEGT MANNVIRKI Fullyrt er að fiskmeti frá HB Granda verði ekki selt á svæðum sem falla undir bresku Ólympíunefndina.
NORDICPHOTOS/AFP