Fréttablaðið - 05.06.2012, Blaðsíða 4
5. júní 2012 ÞRIÐJUDAGUR4
SJÁVARÚTVEGUR Skipafloti með-
lima Landssambands íslenskra
útvegsmanna (LÍÚ) liggur enn
við bryggjur landsins í mótmæla-
skyni við frumvörp til laga um
stjórn fiskveiða og veiðigjöld. For-
maður LÍÚ biður um lausn í sátt
við hagsmunaaðila og sérfræð-
inga, en sjávarútvegsráðherra
segir útvegsmenn hafa haft tæki-
færi til að koma sínum skoðunum
á framfæri.
„Ég kannast hvorki við að hafna
því að hitta útvegsmenn né ræða
við þá,“ segir Steingrímur J. Sig-
fússon og segir útvegsmenn hafa
haft fullan aðgang að ferlinu.
„Ég læt ekki stjórnast af þrýst-
ingi af þessu tagi og læt menn
hvorki njóta þess né gjalda þó þeir
fari út í aðgerðir sem mér finnst
sjálfum orka tvímælis.“
Um lögmæti aðgerðanna segir
Steingrímur að um það megi
deila. Forsætisráðherra sagði á
þingi í gær að þær brytu í bága
við lög. Í tilkynningu frá ASÍ er
tekið undir þau sjónarmið.
Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri LÍU, neitar að um
lögbrot sé að ræða.
„ASÍ vísar í lagagrein sem
fjallar um vinnustöðvun, sem
væri verkbann í okkar tilfelli. En
þetta er ekki verkbann eða vinnu-
stöðvun í skilningi laganna. Ef við
förum í verkbann, sem ég vona að
komi aldrei til, þá mun það snúa
að sjómönnum og starfsfólki, en
það er einmitt það sem við erum
að reyna að koma í veg fyrir. ASÍ
er að snúa hlutunum á hvolf. Ég
GENGIÐ 04.06.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
223,0504
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
129,46 130,08
199,27 200,23
160,97 161,87
21,661 21,787
21,164 21,288
17,876 17,980
1,6560 1,6656
195,62 196,78
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR
SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
Þvottur og bón fyrir allar gerðir bíla
Bíladagar þessu viku á Hópkaup.is
Bónstöð Íslands, Víkurhvarfi 4
(neðri hæð), Kópavogi.
Verð aðeins 2.990 kr. (fólksbíll),
3.300 kr. (jepplingur) og
3.600 kr. (jeppi).
HÓPKAUP.IS Í DAG
í krafti fjöldans
hópkaup.is
2.990 kr.
5.000 kr.
Verð
40%
Afsláttur
2.010 kr.
Afsláttur í kr.
GILDIR 24 TÍMA
Ranghermt var í frétt í helgarblaði
Fréttablaðsins um tilnefningar til
Grímuverðlaunanna að Afmælis veislan
hefði fengið flestar til nefningar. Hið
rétta er að Vesalingarnir hlutu flestar
tilnefningar, eða níu talsins. Er beðist
velvirðingar á rangfærslunum.
LEIÐRÉTT
ALÞINGI „Þær aðgerðir sem Landssamband
íslenskra útvegsmanna er að fara í núna,
sem að mínu viti eru ólöglegar, eru ekkert
annað en ósvífnar aðgerðir og eiga auðvitað
ekki að líðast.“ Þetta sagði Jóhanna Sigurðar-
dóttir forsætisráðherra á þingi í gær um þá
ákvörðun útgerðarmanna að halda fiskiskipa-
flota landsins í höfn næstu daga til að mótmæla
kvótafrumvörpum ríkisstjórnarinnar.
Jóhanna sagði aðgerðirnar brjóta gegn
lögum um stéttarfélög og vinnudeilur og væru
sprottnar af því að útgerðarmenn óttuðust að
ná ekki fram öllum sínum ýtrustu kröfum.
„Vegna þess að þegar sjálfstæðismenn og fram-
sóknarmenn stjórnuðu þá gátu þeir verið þar
inni á teppi og fengið það sem þeir vildu, en
þeir fá það ekki hjá þessari ríkisstjórn.“ Hún
sagði aðgerðirnar enn fremur fullkomlega
óþolandi, ógeðfelldar og kallaði þær ólöglega
„árás á Alþingi“.
Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins, varði aðgerðirnar og sagði eðlilegt að
útgerðarmenn tækju sér nokkra daga til að ráð-
færa sig við starfsfólk sitt um næstu skref. Allt
væri þetta gert í samráði við sjómenn.
Jóhanna efaðist um að ákveðið hefði verið að
ráðast í aðgerðirnar í fullri sátt við sjómenn og
landvinnslufólk. „Var leitað samráðs við það um
þessa aðgerð? Ég er ansi hrædd um að svo sé
ekki,“ sagði Jóhanna. Það væri bjargföst skoðun
hennar að um pólitískt verkfall væri að ræða
sem ætti ekki heima í lýðræðisþjóðfélagi. - sh
Jóhanna Sigurðardóttir harðorð um vinnustöðvun útgerðarmanna í umræðum á Alþingi:
Aðgerðir LÍÚ ólögleg og ósvífin árás á Alþingi
SAMRÁÐ Jóhanna Sigurðardóttir sagðist efast um að
samráð hefði verið haft við sjómenn og fiskverkafólk
vegna vinnustöðvunarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
27°
26°
14°
15°
17°
18°
15°
15°
23°
15°
26°
20°
32°
16°
18°
16°
17°Á MORGUN
víða 5-12 m/s,
hvassast V- og A-til.
FIMMTUDAGUR
3-10 m/s,
hvassast NV-til.
4
7 4
4
5
8
7
7
10
3
7
7
10
5
8
3
7
4
5
4
9
7
5
4
4
8
8
6
6
6
9
9
KÆLING Eftir
síðustu viku er gott
að kæla sig aðeins
niður. Mætti þó
vera mildara N- og
A-til þar sem hitinn
verður frá 3 stigum
yfi r miðjan daginn
og líklegt að það
snjói til fjalla.
Nokkur væta í
kortunum, sérstak-
lega N- og A- til,
en skúrir eða lítils
háttar rigning víða
annars staðar.
Snjólaug
Ólafsdóttir
veður-
fréttamaður
DÓMSMÁL Mál Baldurs Guðlaugs-
sonar fyrrverandi ráðuneytis-
stjóra hefur
verið kært til
Mannréttinda-
dómstóls Evr-
ópu. Þetta kom
fram á RÚV í
gær.
Baldur var
dæmdur í
tveggja ára
fangelsi fyrir
innherjasvik
í febrúar og hefur þegar hafið
afplánun.
Mannréttindadómstóllinn tekur
nú málið til athugunar, en líklegt
er að ákvörðun um áframhaldið
liggi fyrir um mitt næsta ár. - þeb
Fyrrum ráðuneytisstjóri:
Til mannrétt-
indadómstólsins
BALDUR
GUÐLAUGSSON
NÍGERÍA, AP Óttast er að margir
íbúar í Lagos, höfuðborg Nígeríu,
hafi látist þegar flugvél hrapaði
þar á sunnudag.
Um borð í vélinni voru 153
manns og létu þeir allir lífið.
Björgunarfólk hefur leitað í
rústunum og síðdegis í gær voru
lík 48 manns fundin.
Flugstjórar vélarinnar töluðu
um vélartruflanir stuttu áður en
vélin hrapaði í aðflugi að flug-
vellinum í Lagos. Þetta er versta
flugslys í Nígeríu í tvo áratugi. - gb
Björgunarstörf í Nígeríu:
Talið að margir
íbúar séu látnir
RÚSSLAND, AP Vladimir Pútín Rúss-
landsforseti segist vilja innleiða
lög um mótmæli að evrópskri
fyrir mynd.
Mannrétt-
indasamtök og
stjórnmála-
menn í Evrópu-
ríkjum hafa
gagnrýnt Pútín
og Rússa fyrir
það hvernig
tekið er á mót-
mælum í land-
inu. Nú eru í
undirbúningi í þinginu lög sem
myndu hækka hámarkssektir
fyrir ósamþykkt mótmæli gríðar-
lega mikið.
Pútín sagði í ræðu í gær að mót-
mæli væru eðlileg, en að Rússland
ætti að taka upp lög margra Evr-
ópuríkja til að taka á þeim. - þeb
Pútín Rússlandsforseti:
Vill setja lög
um mótmæli
VLADIMIR PÚTÍN
HEILBRIGÐISMÁL Heimilis læknar
eru of fáir og ekki fást hæfir
umsækjendur í stöður sem eru
auglýstar.
Þetta kemur fram í leiðara eftir
Þórarin Ingólfsson, formann félags
íslenskra heimilislækna, í nýjasta
tölublaði Læknablaðsins. Hann
segir heilbrigðisyfirvöld verða að
viðurkenna að kerfið hvíli á þekk-
ingargrunni læknisfræðinnar, og
við lækna eigi að hafa samráð um
breytingar eins og þær sem gerðar
hafi verið undanfarin ár.
Þá hafa ekki verið gerðir samn-
ingar við sérgreinalækna á stofum
og því hafi kostnaður sjúklinga
aukist. „Þess eru mörg dæmi að
fólk biðst undan tilvísun til sér-
fræðings vegna kostnaðar. Slíkt er
óásættanlegt.“ - þeb
Leiðari Læknablaðsins:
Fást ekki hæfir
heimilislæknar
Enginn sáttatónn og
skip enn við bryggju
Sjávarútvegsráðherra segir aðgerðir LÍÚ ekki koma til með að hafa áhrif. Hann
hafi aldrei hafnað því að ræða við útvegsmenn. Framkvæmdastjóri LÍÚ neitar
að um lögbrot sé að ræða og kallar eftir því að málið verði leyst í breiðri sátt.
BUNDNIR VIÐ BRYGGJU Togarar lágu bundnir við bryggju í Vestmannaeyjum í gær
eins og annars staðar á landinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON
held að þau ættu frekar að koma
við hlið okkar í þessu máli til að
verja hagsmuni launafólks.“
Steingrímur segir frum-
vörpunum alls ekki stefnt gegn
hagsmunum launafólks. „Málið
snýst fyrst og fremst um sam-
eign á auðlindinni og að eðlilegt
afgjald sé greitt af henni.“
Aðspurður um frekari aðgerðir
af hendi LÍÚ segir Friðrik að sú
ákvörðun bíði seinni tíma.
Hann segir útgerðarmenn vilja
að lög um stjórn fiskveiða verði
unnin í samstöðu atvinnugrein-
arinnar, stjórnmálaflokkanna og
sérfræðinga, „á vandaðan og yfir-
vegaðan hátt“. thorgils@frettabladid.is
Fjölmenni var á fundi landverkafólks og sjómanna í Vestmannaeyjum í gær og
var þar samþykkt harðorð ályktun gegn fiskveiðifrumvörpum stjórnvalda. Þau
séu „klárlega aðför að kjörum sjómanna og landverkafólks“ að mati fundarins
og „skapi glundroða og óeiningu meðal þjóðarinnar“. Skoraði fundurinn á
stjórnvöld að sækja Eyjar heim til að heyra sjónarmið Eyjamanna.
„Skapar glundroða og óeiningu“