Fréttablaðið - 05.06.2012, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 05.06.2012, Blaðsíða 32
24 5. júní 2012 ÞRIÐJUDAGUR ★★★ ★★ Tónleikar Hljómskálinn Listahátíð - Harpa Eldborg, 2. júní Þeir Hljómskálafélagar eru allt í öllu í opinbera poppinu þessi miss- erin. Þeir byrjuðu á sjónvarpsþátta- röð í haust. Hún var frábær og setti ný viðmið í tónlistarþáttagerð fyrir sjónvarp á Íslandi. Síðan gerðu þeir jólaþátt, páskaþátt og þátt um Íslensku tónlistarverðlaunin. Á laugardaginn settu þeir svo saman tónleikadagskrá fyrir Listahátíð sem var eina íslenska poppatriðið á dagskrá hátíðarinnar í ár. Öll þessi verkefni hafa þeir Sigtryggur Baldursson, Guð- mundur Kristinn Jónsson og Bragi Valdimar Skúlason leyst með miklum ágætum og tónleikarnir í Eldborg voru engin undantekning. Húshljómsveit Hljómskálans er viðhafnarútgáfa af Hjálmum, en á tónleikunum fengu þeir fjölmarga söngvara til að stíga á svið, meðal annarra Megas, Ágústu Evu, Valdi- mar og Egil Sæbjörnsson. Á dagskránni voru ný og gömul lög og nokkur þeirra laga sem sér- staklega hafa verið samin fyrir sjónvarpsþættina. Tónleikarnir fóru rólega af stað og í byrjun var hljómburðurinn í salnum slæmur, a.m.k. þar sem ég sat á ellefta bekk. Sérstaklega var bassasándið vont. Maður hafði smá áhyggjur af því að þetta yrði sundurklippt og fullt af kynningum þar sem tón leikunum var sjónvarpað beint, en þær áhyggjur voru óþarfar; tónleika- formið var tekið fram yfir sjón- varpsþáttaformið og tónlistin fékk að hljóma án truflana. Þegar leið á lagaðist sándið og tónlistaratriðin urðu sterkari. Á meðal toppanna voru lögin tvö sem Jimi Tenor flutti ásamt Hjálmum (það verður spennandi að heyra plötuna sem þeir eru að vinna að saman) og míní ópera Óttars Proppé, Röggu Gísla og Sigtryggs, sem samanstóð af lögum af Diskó- eyjunni og af plötunni Í sjöunda himni með Glámi og Skrámi. Mjög skemmtilegt. Það var líka frábært að heyra Magnús Þór Sigmundsson og Jónas Sigurðs- son taka smellinn Ef ég gæti hugsana minna og hápunkturinn var svo þegar Pálmi Gunnarsson söng kraftmikla útgáfu af laginu Hvers vegna varst‘ekki kyrr. Tón- leikunum lauk svo með því að Unn- steinn Manúel og Björn Jörundur sungu lagið Frelsið. Á heildina litið fín skemmtun. Trausti Júlíusson Niðurstaða: Listahátíðardagskrá Hljómskálans í Hörpu tókst prýðilega. Fínir Hljómskálafélagar HLJÓMSKÁLINN Sigtryggur Baldursson og Megas stigu báðir á svið í Hörpunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ EFTIR WES ANDERSON MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTABLAÐIÐ SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI IS. GLERAUGU SELD SÉR 5% BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS SNOW WHITE AND THE... KL. 5.20 - 8 - 10.40 12 SNOW WHITE AND THE... LÚXUS KL. 5.20 - 8 - 10.40 12 MIB 3 3D KL. 3.30 - 5.30 - 8 - 10.30 10 MIB 3 2D KL. 5.30 - 8 - 10.30 10 THE DICTATOR KL. 3.30 - 6 - 8 - 10 12 LORAX - ÍSLENSKT TAL 2D KL. 3.30 L SNOW WHITE AND THE... KL. 5.45 - 8 - 10.15 12 MIB 3 3D KL. 8 - 10 10 THE DICTATOR KL. 6 12 MOONRISE KINGDOM ÓTEXTUÐ KL. 5.50 - 8 - 10.10 L SNOW WHITE AND THE HUNTSMAN KL. 6 - 9 12 MIB 3 3D KL. 6 - 9 10 GRIMMD:SÖGUR AF EINELTI KL. 5.45 10 SVARTUR Á LEIK KL. 10.40 16 ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ GILDA EKKI Í BORGARBÍÓI SNOW WHITE 4, 7, 10(P) MEN IN BLACK 3 3D 5.45, 8, 10.15 THE FIVE-YEAR ENGAGEMENT 5, 8, 10.25 LORAX 3D - ISL TAL 4 LAUGARÁSBÍÓ SýningartímarÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR þriðjudagstilboð þriðjudagstilboð þriðjudagstilboð þriðjudagstilboð POWERSÝNI NG KL. 10 www.laugarasbio.is -bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar 5% EGILSHÖLL 16 16 V I P 1212 12 12 12 L 10 10 10 10 12 12 ÁLFABAKKA 12 L 10 AKUREYRI 16 16 16 YFIR 50 ÞÚS. BÍÓGESTIR ! Total film Variety 16 16 KRINGLUNNI 12 12 10 MÖGNUÐ SPENNUMYND FRÁ LEIKSTJÓRA V FOR VENDETTA KEFLAVÍK 16 16 12 JOHN CUSACK ER EDGAR ALLAN POE EMPIRE EMPIRE JOHNNY DEPP FRÁ MEISTARA TIM BURTON ISÁ SAMBIO.ÉR MIÐA ÞTRYGGÐU GÍ DAÓ ÍÞRIÐJUDAGSB L L SELFOSS 10 16 „Ætli þetta hafi ekki verið í fæð- ingu í 25 ár,“ segir læknirinn og lagasmiðurinn Arnar Ástráðsson sem hefur gefið út sína fyrstu plötu, State of Mind. Á henni eru tíu dans- lög og rómantísk lög eftir Arnar. „Síðan ég var krakki hef ég verið að semja. En það var ekki fyrr en ég kom lagi í Söngvakeppni Sjón- varpsins í fyrra að hjólin fóru að snúast fyrir mér,“ segir Arnar. Þá söng Erna Hrönn Ólafsdóttir lag hans Ástin mín eina og syngur hún einmitt líka á nýju plötunni ásamt Hjálmfríði Þöll Friðriksdóttur og Trine Jepsen, sem er þekkt dönsk söngkona. Roland Hartwell spilar á fiðlu og Arnar á píanó. Arnar hefur starfað sem læknir í Danmörku með hléum í fimm- tán ár og vinnur hann á heila- og taugaskurðdeild Ríkisspítalans í Kaupmannahöfn. Nokkuð algengt er að læknar semji tónlist í frí- stundum sínum. Nýjasta dæmið er Helgi Júlíus son sem gaf út hina vel heppnuðu reggíplötu Kominn heim í janúar þar sem Valdimar Guðmundsson var gestasöngvari. „Þetta er kannski einhver flótti frá hörðum raunveruleikanum í starfinu,“ segir Arnar, spurður út tónlistariðkun lækna. „Það hafa margir læknar verið tónlistarmenn eða tónskáld í gegnum tíðina,“ segir hann og nefnir Sigvalda Kaldalóns sem gott dæmi. „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á tónlist. Ég ætlaði kannski frekar að verða tónlistar- maður en svo var öruggari atvinnu- vegur að fara í læknisfræðina.“ Í mestu uppáhaldi hjá honum eru Sasha, Robert Miles, Bítlarnir, ABBA og Sigur Rós. State of Mind verður dreift af Warner Music í Skandinavíu en Arctic Rock gefur plötuna út hér- lendis. - fb Flótti frá hörðum raunveruleika FYRSTA PLATAN Arnar Ástráðsson hefur gefið út sína fyrstu plötu, State of Mind. MYND/VALDIMAR SVERRISSON MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS Miðasala: 412 7711 www.bioparadis.is / midi.is Hluti af Europa Cinemas ÞRIÐJUDAGUR: TYRANNOSAUR 18:00, 20:00, 22:00 I AM SLAVE 18:00, 20:00 CORIOLANUS 20:00, 22:10 JANE EYRE 17:30 IRON SKY 20:00, 22:00 SVARTUR Á LEIK (ENG. SUBS) 17:40, 22:00 ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ: 950 kr. miðinn!TYRANNOSAUR ****-The Guardian ****-Roger Ebert 6. JÚNÍ: SUMARTÍÐ (L’Heure d’été) eftir OLIVIER ASSAYS!SKEMMD EPLI ****-Morgunblaðið FJÖLMENNUM Á MA-HÁTÍÐ Árleg MA-hátíð verður haldin í Íþróttahöllinni á Akureyri laugardaginn 16. júní Miðapantanir á www.bautinn.muna.is til 13. júní en tekið verður við greiðslu og miðar afhentir í Höllinni 15. og 16. júní klukkan 13.00-17.00. Miðaverð er 10.800 kr. og 6.300 kr. fyrir eins árs stúdenta. Húsið verður opnað klukkan 18.00. Fordrykkur hefst kl.18.00 og borðhald kl. 19.00. Hljómsveitin Í svörtum fötum leikur fyrir dansi. Miðar á dansleik verða seldir við innganginn eftir klukkan 23.00, verð 4.000 kr. Afmælisárgangar eru hvattir til að fjölmenna. Samkvæmisklæðnaður. 25 ára júbílantar MA – stúdentar 1987 ma1987.muna.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.