Fréttablaðið - 05.06.2012, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 05.06.2012, Blaðsíða 38
5. júní 2012 ÞRIÐJUDAGUR30 SUMARFRÍIÐ „Þegar við vorum að „skjóta“ í janúar hurfu búðirnar undir lokin. Við urðum að skilja eftir fimm tjöld og þau voru fyrst núna að koma undan vetrinum,“ segir Ingvar Þórðarson, einn af fram- leiðendum spennutryllisins Frosts sem verður frumsýndur í haust. Ýmislegt gekk á við tökur á Frosti uppi á Langjökli í janúar. Meðal annars þurfti tökuliðið að skilja eftir fimm tjöld, sem hvert kostar 150 þúsund krónur, vegna veðurs. „Þegar við vorum búin og ætluðum að taka allt niður eftir tökur hurfu tjöldin. Jökullinn gleypti þau,“ segir Ingvar. Hann er mjög ánægður með að þau séu núna komin í leitirnar, ekki bara vegna verðmætanna heldur líka vegna þess að mikilvægt er að skilja við náttúruna eins og hún var áður en tökurnar hófust. „Þetta snýst um að bera virðingu fyrir náttúrunni. Það er númer eitt, tvö og þrjú.“ Hellir, þar sem atriði í myndinni voru einnig tekin upp, er aftur á móti horfinn og hefur ekki fundist aftur þrátt fyrir að sumarið sé komið. „Jökullinn gæti sýnt hann aftur eftir hundrað ár eða bara aldrei. Þessir jöklar eru magnað fyrirbæri. Það getur hvað sem er leynst á þeim.“ - fb Langjökull gleypti tökustað Frosts ÁNÆGÐUR HJÁ TJÖLDUNUM Ingvar Þórðarson hjá tjöldunum sem fundust aftur, mörgum mánuðum eftir að tökum lauk. „Í sumar ætla ég að spila með hljómsveitinni úti um allar trissur og draga kærustuna í sjósund.“ Haraldur Ari Stefánsson, skemmtikraftur og meðlimur hljómsveitarinnar Retro Stefson. „Það eru komnar bókanir fyrir fjögur brúðkaup núna í sumar og við erum að fá fyrirspurnir lengra fram í tímann, til dæmis um eitt vetrarbrúðkaup í febrúar,“ segir Eva María Þórarinsdóttir, annar eigandi Pink Iceland, sem býður upp á brúðkaupsþjónustu fyrir samkynhneigða ferðamenn. Ferðaþjónustufyrirtækið Pink Iceland var stofnað af kærustuparinu Evu Maríu og Birnu Hrönn Björns- dóttur í mars árið 2011 og sérhæfir það sig í ferðum fyrir samkynhneigða. Fljótlega fór fyrirtækinu að berast beiðnir um skipulagningu á hinsegin brúð- kaupum. „Við ákváðum að anna þeirri eftirspurn og vorum allt í einu orðnar brúðkaupsskipuleggjendur og farnar að hafa áhyggjur af blómaskreytingum,“ segir Eva María og hlær. Eftirspurnin hefur verið mikil og þær hafa tekið að sér brúðkaup af öllum stærðargráðum. „Við höfum bæði verið með brúð- hjónin tvö ein og svo er stærsta brúðkaupið okkar núna í sumar 80 manna,“ segir Eva María en hún er lærður ferðamálafræðingur og með gráðu í við- burðastjórnun svo hún þekkir þennan bransa. Brúðkaupsgestir eru af öllum stærðum og gerðum og mikið til gagnkynhneigt fólk líka. „Við leggjum mikið upp úr því að hafa hinsegin brag á ferðunum okkar. Til dæmis deilum við ýmsum fróðleik um samfélag hinsegin fólks hérlendis og bendum á staði sem samkynhneigðir gætu haft áhuga á. Að sjálf- sögðu eru gagnkynhneigðir þó velkomnir í ferðirnar okkar líka,“ segir Eva María, en vinsælt hefur verið að gestir fari í ferðir á vegum Pink Iceland í kring- um brúðkaupin, jafnvel í boði brúðhjónanna. - trs Hinsegin brúðkaup á Íslandi PINK ICELAND Kærusturnar Eva María og Birna Hrönn eru farnar að bjóða upp á aðstoð við skipulagningu brúðkaups samkynhneigðra á Íslandi í gegnum fyrirtæki sitt Pink Iceland. MYND/ALISA KALYANOVA Ein þekktasta dauðarokkssveit heims, Entombed, spilar í þriðja sinn hér á landi á Gauknum laugar- dagskvöldið 9. júní. Gítarleikarinn Alexander Hellid hlakkar mikið til að stíga á svið á Íslandi á nýjan leik. „Þegar við vorum beðnir um að koma til Íslands í þriðja sinn var það of freistandi fyrir okkur til að hafna því,“ segir Alex eins og hann er kallaður. „Í þetta sinn verðum við fimm á sviðinu. Síðast var ég eini gítarleikarinn en núna getum við spilað fleiri lög, sem ætti að vera gaman fyrir tónleikagesti.“ Hin sænska Entombed gaf út sína níundu hljóðversplötu, Serpent Saints – The Ten Amendments, árið 2007 og hefur síðan þá verið dugleg við að spila úti um allan heim. „Við höfum ekki haft tíma til að taka upp nýja plötu en stefnum að því í sumar eða haust. Við viljum gefa út nýtt efni í janúar eða febrúar á næsta ári,“ segir Alex. Entombed var stofnuð árið 1987 og hét upphaflega Nihilist. Fyrsta platan kom út 1989 en eftir að sú næsta kom út var tónlistarstefnan death n’roll fest við hljómsveitina. „Við vildum ekki láta kalla tón- listina okkar þessu nafni. Sjálfum er mér alveg sama en þetta hljómar samt dálítið væmið. En nafnið festist við okkur eftir aðra plötuna vegna þess að við fórum að spila meira í anda hljómsveita sem eru í uppáhaldi hjá okkur eins og Kiss og Alice Cooper.“ Alex er einn tveggja með- lima Entombed sem hafa verið í sveitinni frá upphafi, eða í 25 ár. „Maður verður eiginlega hræddur að hugsa um að maður hefur verið í bandinu meira en hálfa ævina,“ segir hann. Spurður hvað sé best við að vera í Entombed nefnir hann sköpunarferlið. „Hvort sem það eru stuttermabolirnir sem við búum til, höldum góða tónleika eða gefum út plötu, þá skiptir sköpunin mestu máli fyrir mig.“ Tónleikarnir á Gauknum verða tvennir. Þeir fyrri verða fyrir alla aldurshópa og hefjast klukkan 17. Hinir hefjast kl. 21. Um upphitun sjá Sólstafir, Gone Postal, Reykja- vík! og Bootlegs. freyr@frettabladid.is ALEXANDER HELLID: HEF VERIÐ HÁLFA ÆVINA Í HLJÓMSVEITINNI Sænskir dauðarokkarar í þriðja skipti til landsins ENTOMBED Sænsku dauðarokkararnir eru á leiðinni til landsins í þriðja sinn. L A N D SM ÓT HESTAM AN N A N A T IO N AL HORSE SHOW O F IC E L A N D Landsmót hestamanna Reykjavík 2012 25.06 – 01.07 Ógleymanleg skemmtun. Bestu gæðingar landsins etja kappi og helstu kynbótastjörnur landsins koma fram. Troðfull dagskrá með landsþekktum skemmtikröftum, kvöldvökum og fjölskyldustemningu. Á keppnissvæðinu er glæsilegur barnagarður. Miðasala á www.landsmot.is Það styttist í ævintýrið!

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.