Fréttablaðið - 05.06.2012, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 05.06.2012, Blaðsíða 28
5. júní 2012 ÞRIÐJUDAGUR20 BAKÞANKAR Erlu Hlynsdóttur 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman FYRIR EFTIR FJÁRHÆTTUSPIL FYRIR BARNEIGNIR FJÁRHÆTTUSPIL EFTIR BARNEIGNIR LÁRÉTT 2. ló, 6. drykkur, 8. mas, 9. gilding, 11. eldsneyti, 12. kambur, 14. samband, 16. hæð, 17. fiskur, 18. skammst., 20. sjó, 21. sundfæri. LÓÐRÉTT 1. bumba, 3. umhverfis, 4. alls, 5. nögl, 7. verkfæri, 10. viður, 13. slag- brandur, 15. gagnsær, 16. keraldi, 19. einnig. LAUSN LÁRÉTT: 2. kusk, 6. öl, 8. mal, 9. mat, 11. mó, 12. burst, 14. félag, 16. ás, 17. áll, 18. möo, 20. sæ, 21. uggi. LÓÐRÉTT: 1. vömb, 3. um, 4. samtals, 5. kló, 7. laufsög, 10. tré, 13. slá, 15. glær, 16. ámu, 19. og. Hvað finnst þér? Er Roy Hodgson rétti maðurinn fyrir enska landsliðið? Tja! Við sjáum til með það! Er hann ekki mað- urinn í starfið? Persónulega finnst mér að það sé betri maður þarna úti! Einhver sem hefur náð góðum árangri. Sumir geta gert kraftaverk úr slökum leikmannahópum! Ætli enska knatt- spyrnusamband- ið vilji ráða mann sem hefur náð góðum árangri í Championship Manager! Þeir ættu samt að gera það! Ég vann úrvalsdeild- ina með Grimsby! Vannstu ekki líka HM með San Marino og meistaradeild- ina með Fylki? Jú, maður! Heldur betur! Rikki, ég heyrði að þið Anna væruð hætt saman. Jább. Það hlýtur að vera erfitt. Það erfiðasta er að finna eitthvað nýtt að gera með höndunum. Ertu fastur í varanlegu knúsi? Við vorum náttúrulega lengi saman. Þetta er starfsmaður fiskibúðarinnar að segja að þú hafir gleymt hattinum þínum þar. Ef ég fæ ás vinnum við! Ef við erum heppin fæ ég útborgað fyrir gjalddaga þessara reikninga. Launahæsti starfsmaður Facebook kom með nokkuð óvenjulega játningu þegar hún hélt nýverið ræðu fyrir útskriftarnema í Harvard: „Ég hef grátið í vinnunni. Ég hef sagt fólki að ég hafi grátið í vinnunni.“ SHERYL Sandberg er framkvæmdastjóri Facebook. Hún telur það gera sig mann- legri í augum samstarfsmanna sinna að þeir þekki bæði veikleika hennar og kosti, og að þeir geti þannig frekar fundið til samúðar með henni. Sandberg mælir sannar lega með því að gráta í vinnunni. En af hverju ættum við að hlusta á hana? Ein möguleg ástæða: Hún er með tuttugu sinnum hærri laun en Mark Zuckerberg. ÉG er líka með játningu. Ég hef grátið í vinnunni. Ég hef sagt fólki að ég hafi grátið í vinnunni. Einu viðbrögðin sem ég fékk voru undrandi og vandræða- legir karlmenn sem höfðu ekki hug- mynd um hvort eða hvernig þeir áttu að hughreysta mig. Í eitt skiptið vann ég við að skúra tröppur í bílastæðahúsi. Þangað mætti ég einu sinni í viku með skúringarfötuna. Það næsta sem ég gat kallað samstarfs- menn voru tveir karlmenn yfir sextugu sem sögðu mér gjarnan, rúmlega tvítugri, að ég þyrfti að drífa í að eignast börn áður en það væri of seint fyrir mig. ÞAR sem ég var, og er, á barneignar- aldri þá gerist margt ógurlega merki- legt í líkama mínum um það bil einu sinni í mánuði. Akkúrat þá get ég líka verið alveg ógurlega viðkvæm. Á þeim stundum verð ég ekki bara klökk yfir Aðþrengdum eiginkonum heldur bókstaflega fer að háskæla. ÞAÐ var á slíkum degi sem ég var að skúra inni í vaktherbergi hjá mönnunum þegar annar þeirra segir að honum finnist vond lykt af skúringasápunni sem ég notaði. Hann vissi ekki hvað hann átti í vændum. MÉR fannst þetta (auðvitað) hin mesta móðgun og niðurlæging, jafnvel þó ég réði engu um hvaða sápu yfirmenn mínir keyptu. Ég hélt áfram að skúra, færði til stóla og reyndi að ná kaffiblettum af gólfinu við eldavélina. Brátt byrjuðu tárin að streyma. Ég saug upp í nefið og þurrkaði tárin laumulega, en þeir sáu alveg hvað var í gangi. Litla skúringa- stelpan var að gráta. ELDRI mennirnir tveir horfðu vandræða- legir hvor á annan, ég greip af þeim orðið og sagði þeim að þetta væri allt í lagi. Ég væri bara svona pínulítið viðkvæm þennan daginn. Þeir störðu bara áfram, orðlausir. JÁ, ég hef grátið í vinnunni og ég barasta mæli ekkert sérstaklega með því. Grátið í vinnunni Miðviku dagur 2 3. maí 2012 | 1 0. tölu Meðal efnis í blaðinu: Mismunandi áform Farið yfir undirbúning íslensku bankanna fyrir innleiðingu kaupaukakerfis. Nauðasamningur framundan Styttist í slit Kaupþings banka. Markaðurinn kemur út á morgun! blað | 8 . árgan gur M ar ka ðu rin n ke m ur út á m or gu n!

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.