Fréttablaðið - 05.06.2012, Blaðsíða 34
5. júní 2012 ÞRIÐJUDAGUR26
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI „Ég hef verið að spila
frammi hjá Start. Hjá FH var
ég í aðeins meira varnarhlut-
verki en hér get ég einbeitt mér
að vítateignum sem mér finnst ég
vera góður í,“ segir Matthías um
ástæðu þess hvers vegna svo vel
gangi hjá honum í markaskorun í
Noregi.
Matthías, sem ættaður er frá
Ísafirði, spilaði sem framherji upp
alla yngri flokka sem er sú staða
sem hann kann best við.
„Ég leitaðist eftir því að komast að
hjá félagi þar sem ég fengi að spila
sem framherji. Hjá FH höfðum við
fyrir tvo mjög góða framherja svo
ég vissi að ég fengi ekki að spila
þá stöðu mikið þar.“
Athygli vakti að Matthías og
Guðmundur Kristjánsson, leik-
maður Breiðabliks, skyldu fara
að láni til liðs í næstefstu deild í
Noregi. Frammistaða þeirra hefur
ekki farið framhjá áhugafólki um
knattspyrnu og menn hafa velt
fyrir sér styrkleika deildarinnar.
Komnir á gervigras
„KR, FH og þessi helstu lið myndu
pluma sig vel í þessari deild. En
þar sem þetta er atvinnumennska
eru menn yfirleitt í betri þjálfun.
Þá er umgjörðin flottari, blaða-
menn mættir á æfingar og svo-
leiðis. FH og KR gætu alveg unnið
þessi lið í bikarleikjum heima og
heiman en heilt yfir eru þessi
topplið hérna þó mjög góð lið.“
Start ætlar sér stóra hluti og
ekkert feimnismál að liðið ætlar
upp í efstu deild.
„Markmiðið hefur verið opin-
berað í fjölmiðlum, eiginlega bara
of oft. Við ætlum að vinna þessa
deild. Menn fara ekkert í graf götur
með það. Þetta er á réttri leið en
það er nóg eftir,“ segir Matthías en
bætir við að sorgardagur hafi verið
hjá félaginu í síðustu viku. Þá var
grasinu á leikvangi félagsins skipt
út fyrir gervigras.
„Þetta var einhver pólitísk
ákvörðun hér í Kristiansand því
það er víst svo dýrt fyrir félagið
að halda grasinu úti en það þarf
víst að borga okkur Gumma laun,“
segir Matthías glettinn og bætir
við að um besta gras í Noregi hafi
verið að ræða. Hann segist þó
orðinn vanur gervigrasinu.
„Það eru bara örfá lið í deildinni
sem spila á grasi og það sama er
uppi á teningnum í úrvalsdeild-
inni. Við erum búnir að væla lengi
yfir gervigrasinu hjá Stjörnunni
en það eru fleiri grasvellir á
Íslandi heldur en í Noregi,“ segir
Matthías sem segir þó alls ekki
hægt að kvarta yfir gervigrasinu
í Noregi.
„Flestallt sem ég hef spilað á
hingað til hefur verið mjög fínt.
Flestir leikvangarnir eru glænýir
og þeir eru duglegir að skipta um
gervigras,“ segir Matthías.
Matthías flutti til Noregs í
febrúar og hefur verið fjarri konu
og barni síðan, sem hann segir
hafa verið erfitt.
„Þú getur rétt ímyndað þér það.
En þau kíktu til mín í heimsókn
um daginn og flytja svo út til mín
í júlí. Maður lifir þetta af,“ sagði
Matthías.
Líf atvinnumannsins getur
verið einmanalegt og alls ekki
gefið að sama stemning myndist
í leikmannahópum eins og í
félögunum hér á landi. Matthías
ber þó liðsfélögum sínum hjá Start
vel söguna.
„Hópurinn er nánari en ég bjóst
við. Hann er lítill með mörgum
ungum strákum. Við höfum kynnst
vel og félagsskapurinn er góður,“
segir Matthías.
Vill komast í landsliðið
Matthías var ekki valinn í lands-
liðshóp Íslands fyrir leikina gegn
Frakklandi og Svíþjóð í síðasta
mánuði. Hann heyrði ekkert frá
Lars Lagerbäck í aðdraganda
leikjanna en telur reyndar að þeir
Guðmundur hafi ekki verið gjald-
gengir í leikina hvort eð var þar
sem leikið var í deildinni á sama
tíma.
„Við vorum búnir að sætta
okkur við að vera ekki í þessum
hóp og stefnum bara á næsta
leik. Markmiðið er að sjálfsögðu
alltaf að spila með landsliðinu,“
segir Matthías sem er kominn til
Íslands í tíu daga frí. Hann ætlar
sér að æfa með FH í fríinu, fái
hann leyfi, en Matthías fylgist vel
með gangi mála FH frá Noregi.
„Að sjálfsögðu. Við erum með
tippkeppni í gangi og horfum
á Pepsi-mörkin á kvöldin,“
segir Matthías sem leiðir í tipp-
keppninni, með naumindum þó.
Matthías verður í herbúðum
norska liðsins til áramóta. Þá
snýr hann aftur í Hafnarfjörðinn
en hann framlengdi við FH um eitt
ár áður en hann hélt í víking.
„Mér fannst það sanngjarnt
gagnvart þeim enda hafa þeir
sinnt mér vel.“ kolbeinntumi@365.is
MARAÞONHLAUP Frjálsíþróttasambands Íslands fer fram á fjórum stöðum á landinu í kvöld. Hlaupið er í
Reykjavík, á Akureyri, á Ísafirði og á Egilsstöðum en ræsing er klukkan 18. Um boðhlaupskeppni er að ræða þar
sem sjö hlauparar skipa eitt lið en markmiðið með hlaupinu er að afla fjár fyrir Ólympíuhóp Íslands í frjálsum
íþróttum.
Þetta var einhver
pólitísk ákvörðun hér í
Kristiansand en það þarf víst
að borga okkur Gumma laun.
MATTHÍAS VILHJÁLMSSON
LEIKMAÐUR START
Besti grasvöllur Noregs eyðilagður
Matthías Vilhjálmsson hefur farið á kostum það sem af er tímabili með Start í Noregi. Matthías, sem er í
láni hjá norska liðinu frá FH, hefur skorað sjö mörk í tíu leikjum Start sem situr í öðru sæti deildarinnar
þegar fjögurra vikna frí er farið í hönd. Ekkert annað en sæti í efstu deild kemur til greina hjá félaginu.
LÍÐUR BEST Á GRASINU Matthías grætur gamla grasið á Kristiansand-leikvanginum sem var á dögunum skipt út fyrir gervigras.
Hann er þó farinn að sætta sig við að spila á gervigrasi eins og er algengt í Noregi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Ráðist var á knattspyrnu-
manninn Joey Barton fyrir utan
skemmtistað í Liverpool í gær.
Lögreglan hefur tvo menn á þrí-
tugsaldri í haldi vegna árásar-
innar.
Í yfirlýsingu frá lögreglunni í
Liverpool segir að 29 ára karl-
maður hafi fengið áverka í and-
litið fyrir utan skemmtistað í
miðbæ Liverpool. Tveir 21 árs
karlmenn hafi verið handteknir og
séu í gæslu lögreglunnar.
Queens Park Rangers, vinnu-
veitandi Barton, sendi sömuleiðis
frá sér yfirlýsingu í morgun. Þar
segir meðal annars:
„Joey Barton lenti í atviki í
miðbæ Liverpool í morgunsárið.
Barton var á leið sinni heim ásamt
kærustu sinni þegar tveir menn
hófu að syngja niðrandi söngva
og slógu Barton. Lögreglan mætti
strax á svæðið og handtók einn
mann. Barton ákvað að leggja
ekki fram kæru og yfirgaf svæðið
skömmu síðar. Félagið mun ekki
tjá sig frekar um málið.“
Barton notaði að sjálfsögðu
Twitter til þess að tjá sig um
málið. Þar sagðist hann ekki ætla
að kæra þar sem lögreglan hefði
þarfari hlutum að sinna. Hann
þakkaði henni einnig hjartanlega
fyrir fagmannleg vinnubrögð.
- ktd
Vandræðin elta Barton:
Barton barinn í
Liverpool
JOEY BARTON Alltaf í vandræðum og
látum. NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Swansea er enn í stjóra-
leit en eins og kunnugt er hætti
Brendan Rodgers hjá félaginu til
þess að taka við Liverpool. Nú er
Daninn Michael Laudrup orðaður
við félagið.
Swansea var upprunalega í
viðræðum við Graeme Jones,
aðstoðar þjálfara Wigan, en
ekkert varð úr þeim viðræðum.
Aðrir sem hafa verið orðaðir
við starfið eru Ian Holloway, Gus
Poyet og Jose Ramon Sandoval,
þjálfari Rayo Vallecano.
Nafn Laudrup er nýtt í
umræðunni en hann þjálfaði
síðast lið Mallorca á Spáni og
hefur verið orðaður við mörg lið
síðustu misseri.
Umboðsmaður Laudrup segist
ekkert hafa heyrt frá Swansea
en enskir fjölmiðlar telja sig hafa
heimildir fyrir því að Swansea sé
spennt fyrir Laudrup. - hbg
Michael Laudrup:
Orðaður við
Swansea
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
– einfalt og ódýrt
50% AFSLÁTTUR
AF NICOTINELL
TROPICAL FRUIT
204 STK. 2MG OG 4MG - TILBOÐIÐ GILDIR TIL 9. JÚNÍ
Spöngin 577 3500 • Hólagarður 577 2600 • Skeifan 517 0417 • Garðatorg 565 1321 • Setberg 555 2306 • Akureyri 461 3920
50%
AFSLÁT
TUR
KO
M
IÐ
A
FT
UR
!
Hádegisfundur ÍSÍ 6. júní í
E-sal íþr.miðst. í Laugardal
ÍSÍ býður upp á hádegisfund um próteinbætiefni og
notkun þeirra hjá 18 ára drengjum. Unnur Björk Arnfjörð fer yfir
rannsókn sína þessa efnis frá kl. 12-13.
Öllum opið án endurgjalds.
Sjá einnig á www.isi.is