Fréttablaðið - 05.06.2012, Blaðsíða 20
KYNNING − AUGLÝSINGMalbikun ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 20122
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000
Umsjónarmenn auglýsinga: Sverrir Birgir Sverrisson sverribs@365.is
s. 512 5432. Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Malbiki fylgir kitlandi frelsistil-
finning. Að bruna laus úr öllum
viðjum kallar á viðeigandi tón-
list í eyrun, hvort sem það er
óbeislað rokk eða tregafyllri
söngvar sem valda geðshrær-
ingu. Hér rifjast upp þekktar
lagasmíðar sem allar eiga þjóð-
vegi að yrkisefni.
Þjóðvegur 66
flutt af KK
Í fjarlægð þeim sýndist fjöllin blá,
fundu hvorki sjálfan sig né eitt-
hvað sem þau þrá á þjóðvegi 66.
Þjóðvegurinn
flutt af Brimkló
Svo er ekið af stað og ekki áð um
sinn. Ég ætla að glíma í allan dag
við þjóðveginn.
Vegir liggja til allra átta
flutt af Ellý Vilhjálms
Vegir liggja til allra átta, enginn
ræður för.
Hit the Road, Jack
flutt af Ray Charles
Hit the road, Jack and don‘t you
come back no more.
King of the road
flutt af Roger Miller
Trailer for sale or rent, rooms to
let, fifty cents. No phone, no pool,
no pets, I ain’t got no cigarettes.
Take Me Home Country Roads
flutt af John Denver
Almost heaven, west Virginia. Blue
ridge mountains, Shenandoah
River.
The Long and Winding Road
flutt af Bítlunum
The long and winding road, that
leads to your door, will never
disappear, I‘ve seen that road be-
fore. It always leads me here, lead
me to your door.
Road to Hell
flutt af Chris Rea
This ain‘t no technological
breakdown. Oh-no, this is the road
to hell.
Stuð og tár á malbikinu
Malbikunarsetrið var sett á fót árið 2009 á Ný-sköpuna r m iðstöð Ís-
lands í samstarfi við Vegagerðina
og framkvæmdasvið Reykja víkur-
borgar. Fjárfest var í tækjabúnaði
sem uppfyllir Evrópustaðla um
prófanir og framleiðslu malbiks
sem opnaði möguleika á endur-
hönnun íslensks malbiks með það
að markmiði að auka endingu þess.
Óskar Örn Jónsson, forstöðumaður
mannvirkjarannsókna og þróunar
hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands er
með yfirumsjón með rannsóknum
Malbikunarsetursins.
Hvað er malbik?
Í malbik er almennt notuð jarðolía
sem búið er að eima öll léttari efni
úr, líkt og bensín, dísel og stein-
olíu. Um 85% af rúmmáli malbiks
er fylliefni sem vegur 95% af þyngd
þess. „Í blönduna eru notaðar mis-
munandi gerðir steina, en hlutfall
lítilla steina á móti stórum ræður
töluverðu um gæði malbiksins.
Einnig eru ýmis íblöndunarefni
sem herða malbikið. Svo eru önnur
efni til að auka þjálni svo ekki þurfi
að hita malbikið eins mikið við
lagningu. Það minnkar uppgufun
rokgjarnra efna sem er umhverfis-
vænna.“
Mælingar og próf
Óskar segir ýmsar prófanir fara
fram á rannsóknarstofunni. „Til
dæmis mælum við stífni efnis og
endingu. Við erum líka að reyna
að finna leiðir til að lækka hita-
stig við lagningu og draga þannig
úr mengandi liðum í ferlinu með
mismunandi íblöndunarefnum í
malbikið.“ Harka malbiks er mæld
með því að láta stálkúlur berja á
malbiksplatta eftir ákveðnum
stöðlum. Svo er slitið mælt á yfir-
borðinu. Einnig eru hörku mæl-
ingar gerðar á steinunum sem
notaðir eru í malbikið. Þá eru þeir
settir í tromlu ásamt stálkúlum
sem snýst í hringi. Eftir ákveðinn
tíma er tromlan stöðvuð, stærð
steinanna mæld og ákvarðast
harkan út frá því hversu mikið þeir
rýrna í tromlunni. „Svo erum við
með vél sem líkir eftir bíl sem ekur
á malbiki. Þá er útbúinn malbiks-
platti sem gúmmíhjól gengur fram
og aftur á, af fyrirfram gefnum
þunga í ákveðinn tíma. Þannig er
hægt að gera tilraunir á endingu
og þoli malbiksins inni á rann-
sóknarstofu á skemmri tíma en
við raunaðstæður. Þessar prófanir
eru samkvæmt evrópustaðli og
saman burðarhæfar við erlendar
rannsóknir.“
Hagkvæmni
„Þetta snýst í raun um það að nota
heppileg fylli- og íblöndunarefni
til að tryggja góða endingu. Þar
að auki er mikilvægt að þróa að-
ferðir við framleiðslu og lagn-
ingu sem auka hagkvæmni. Það
er kostnaðar samt að leggja mal-
bik og halda því við. Því verri sem
efnin eru þeim mun örar þarf að
skipta um.“ Hlutverk Malbikunar-
setursins er því þjóðhagslega
mikil vægt. Af þeim sökum eru
sveitarfélög, Vegagerðin og fyrir-
tæki í góðu samstarfi við Nýsköp-
unarmiðstöð Íslands. „Við erum
til að mynda með tilraun í gangi
á nýju malbiki á Bústaða veginum
í samvinnu við Malbikunar-
stöðina Hlaðbæ-Colas. Svo erum
við einnig að rannsaka mögu-
leika á því að blanda saman upp-
fræstu efni við nýtt malbik og ná
þannig að endurvinna malbikið
sem annars færi til spillis.“
Þjóðhagslega hagkvæmar rannsóknir
Malbikunarsetrið heyrir undir Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Þar eru gerðar prófanir á malbiki og endingu þess. Óskar Örn Jónsson,
forstöðumaður Mannvirkjarannsókna og þróunar, segir það mikilvægt að auka endingu malbiks og hagkvæmni í vinnslu.
Hér má sjá hvernig malbikið slitnar og
gefur undan álaginu frá hjólinu.
Notuð er vél sem líkir eftir akstri bíls á
malbiksplatta til að kanna endingu mal-
biksins.
Óskar Örn Jónsson er í forsvari fyrir Malbikunarsetrið sem opnað var 2009.