Fréttablaðið - 05.06.2012, Blaðsíða 8
5. júní 2012 ÞRIÐJUDAGUR8
FRÉTTASKÝRING
Hvaða hryðjuverkamál hafa dönsk
stjórnvöld þurft að glíma við?
Fjórir menn voru dæmdir í tólf ára
fangelsi í gær fyrir að hafa ætlað
að ráðast inn á skrifstofur Jót-
landspóstsins í Kaupmannahöfn í
desember árið 2010.
Þrír þeirra, Munir Award, Omar
Abdallah Aboelazm og Munir Ben
Mohammed Dhahri, voru hand-
teknir 29. desember í húsi skammt
frá Kaupmannahöfn. Sá fjórði,
Sabhi Ben Mohammed Zalouti, var
handtekinn daginn eftir í Svíþjóð,
þar sem hann var nýkominn yfir
landamærin frá Danmörku.
Mennirnir fjórir eru allir mús-
límar, búsettir í Svíþjóð en ættaðir
frá Túnis, Egyptalandi og Líbanon.
Leyniþjónustumenn höfðu fylgst
með þeim mánuðum saman.
Mennirnir neituðu sök en á upp-
tökum úr eftirlitsvélum í Stokk-
hólmi má heyra þá tala saman um
Jótlandspóstinn, píslarvætti og
vangaveltur um það hvernig þeir
gætu drepið sem flest af fólki en
samt tekið eina manneskju í gísl-
ingu. Einnig heyrast þeir velta
fyrir sér hvað þeir eigi að gera við
konur og börn, en þeir virðast hafa
ætlað að þyrma lífi þeirra.
Fyrsta málið árið 1993
Á síðustu árum hafa ellefu hryðju-
verkamál komið til kasta lög-
reglunnar í Danmörku, samkvæmt
samantekt á vefsíðu Politiken.
Hið fyrsta kom upp árið 1993
þegar þrír Egyptar voru ákærðir
fyrir að hafa skipulagt sprengju-
árásir á tvær lestarstöðvar í Kaup-
mannahöfn. Þeir voru á endanum
sýknaðir af tengslum við hryðju-
verk, en sakfelldir fyrir íkveikju.
Sex Norðurlandabúar, þar á
meðal þrír danskir ríkis borgarar,
voru handteknir í Bosníu í októ-
ber árið 2005 grunaðir um
hryðjuverka áform. Þrír hlutu dóm
í málinu en hinir voru látnir lausir
vegna skorts á sönnunargögnum.
Eftir að danska dagblaðið
Jyllands posten birti skop myndir af
Múhameð spámanni haustið 2005
hafa strangtrúaðir múslímar haft
horn í síðu Dana. Þau níu hryðju-
verkamál sem hafa komið upp
síðan hafa flest tengst eða verið
talin tengjast myndunum.
Eitt þeirra kom upp í september
árið 2007 þegar átta menn voru
handteknir í Kaupmannahöfn
grunaðir um tengsl við al-Kaída.
Tveir voru á endanum dæmdir
í tólf og sjö ára fangelsi fyrir að
skipuleggja sprengjuárásir.
Þrír menn voru einnig hand-
teknir árið 2007 og dæmdir í fimm
til tólf ára fangelsi fyrir að skipu-
leggja hryðjuverk sem áttu að
beinast að Jótlandspóstinum.
Sprengja sprakk á salerni
Árið 2007 var bóksalinn Said
Mansour dæmdur í þriggja og
hálfs árs fangelsi fyrir að hvetja
til hryðjuverka í Danmörku.
Í september árið 2010 var
Tsjetjeninn Lors Dukajev hand-
tekinn eftir að hann hafði ætlað að
gera sprengjuárás, líklega á skrif-
stofur danskra dagblaða. Hann
særðist sjálfur þegar sprengja
hans sprakk inni á salerni hótels
í Kaupmannahöfn.
Í júní á síðasta ári var maður frá
Sómalíu dæmdur í tíu ára fangelsi
fyrir að hafa ætlað að ráðast á
skopmyndateiknarann Kurt Wes-
tergaard með öxi og hníf að vopni.
Þrír menn voru hins vegar sýkn-
aðir árið 2010 af áformum um að
drepa Westergaard vegna ónægra
sönnunargagna. Í október síðast-
liðnum kom bandaríska lög reglan
upp um áform tveggja manna í
Chicago um að gera árásir á Jót-
landspóstinn í Kaupmannahöfn.
Í apríl síðastliðnum voru fimm
ungir vinstri róttæklingar ákærðir
fyrir nokkrar íkveikjur og áform
um enn fleiri íkveikjur, sem í
ákærunni voru taldar tilraunir til
hryðjuverka, en mál þeirra tengdist
skopmyndunum af Múhameð ekki.
gudsteinn@frettabladid.is
Tólf ár fyrir
árásaráform
Hugðust ráðast inn á skrifstofur Jótlandspóstsins í
Kaupmannahöfn og drepa eins marga og þeir gætu.
Virðast þó hafa ætlað að þyrma börnum og konum.
SKRIFSTOFUR JÓTLANDSPÓSTSINS Í KAUPMANNAHÖFN Mennirnir voru sakfelldir fyrir
að ætla að ráðast þar inn og drepa eins marga og þeir gætu. NORDICPHOTOS/AFP
VÍSINDI Hiti og selta umhverfis
landið mældust um og yfir lang-
tímameðaltali í vorleiðangri Haf-
rannsóknastofnunar.
„Hiti við vestanvert landið var
heldur lægri en verið hefur síð-
ustu árin á þessum árstíma,“ segir
í niðurstöðum vorleiðangursins.
„Almennt var styrkur næringar-
efna í yfirborðslögum enn hár og
lítið hafði gengið á vetrarforða
þeirra sem bendir til að vorblómi
svifþörunga sé ekki búinn.“ Þá
kemur fram að átumagn hafi verið
nálægt langtímameðaltali. - óká
Vorleiðangri Hafró lokið:
Með kaldara
móti vestanvert
VEÐUR Veðurblíðunni er lokið í bili
og við tekur kaldara loft sem berst
úr norðri. Þetta segir Einar Svein-
björnsson veðurfræðingur.
„Þetta er búið að standa í átta
daga, byrjaði á hvítasunnudag og
dagarnir voru hver öðrum líkir,“
segir Einar. Mjög sólríkt hefur
verið á nánast öllu landinu og hlýtt,
sérstaklega inn til landsins. „Hins
vegar hefur verið miklu kaldara við
norðaustur- og austurströndina þar
sem hefur andað af hafi. Sjórinn
er kaldur þannig að þar hefur
ekki verið eins hlýtt og sunnan- og
vestan lands.“
Einar segir undanfarna daga ein-
staka fyrir þær sakir hversu lengi
heiðríkja hafi verið. „Það hefur
verið svokölluð fyrirstöðuhæð sem
myndast þegar loftstraumurinn á
norðurhveli jarðar stíflast. Í þessari
hæð er ríkjandi niðurstreymi lofts,
loftið er þurrt og ef það eru ein-
hver ský til staðar þá leysast þau
upp. Ekkert ósvipað og gerist á
svæðunum í kringum Kanaríeyjar
og í eyðimörkum, miklu sunnar.“
En nú er þessu lokið í bili. Hæðin
hörfar til vesturs og við tekur
kaldara loft úr norðri. Vindurinn
verður ákveðnari, norðan átt og
norðaustanátt og kaldara loft sem
reyndar er ekkert óvenjulegt fyrir
fyrri part júnímánaðar. - þeb
Kaldara loft úr norðri tekur við á landinu en það er ekki óvenjulegt í byrjun júní:
Veðurblíðunni er lokið í bili
LEIKIÐ Veðurblíðan var nýtt til ýmissa
verka, meðal annars leikja. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
1. Hvaða forsetaframbjóðendur
gengu út úr beinni útsendingu
kappræðna hjá Stöð 2 á sunnudag?
2. Hvað skuldar Grafarvogskirkja
mikla peninga?
3. Hver hefur hug á að kaupa
norska vafrafyrirtækið Opera?
SVÖRIN
1. Andrea J. Ólafsdóttir, Ari Trausti Guð-
mundsson og Hannes Bjarnason. 2. Sex
hundruð milljónir króna. 3. Facebook.
VELKOMIN Á BIFRÖST
Opið fyrir umsóknir
til 15. júní á bifrost.is
HHS - heimspeki,
hagfræði og
stjórnmálafræði
HHS undirbýr nemendur fyrir atvinnumarkað þar
sem gerðar eru miklar kröfur og þróun er hröð.
Námið er einnig góður undirbúningur fyrir fjölbreytilegt framhaldsnám
á sviði hug- og félagsvísinda. Í því fléttast saman þrjár grunngreinar hug- og
félagsvísinda sem oftast eru kenndar hver í sínu lagi. Með því að blanda saman
aðferðum heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði verður til óvenjulegt
og innihaldsríkt grunnnám sem gefur óvænt og gagnleg sjónarhorn.
Á Bifröst gefst nemendum kostur á að ljúka námi á skemmri tíma þar sem
sumarnám er hluti reglulegs náms. Náminu má því ljúka á tveimur og hálfu
ári og er boðið upp á bæði fjarnám og staðnám.
Save the Children á Íslandi
VEISTU SVARIÐ?