Fréttablaðið - 05.06.2012, Page 6

Fréttablaðið - 05.06.2012, Page 6
5. júní 2012 ÞRIÐJUDAGUR6 Sundnámskeið Sundnámskeið fyrir börn hefst 11. júní. Kennt verður í Sundlaug Sjálfsbjargar, Hátúni 12. Skráning fer fram í Íþróttahúsi ÍFR Hátúni 14 eða í síma 561-8226. Íþróttafélag fatlaðra í Reykjavík Aðalfundur Íþróttafélagsins Gerplu verður haldinn í dag, 5. júní. Fundurinn fer fram í félagsaðstöðu Gerplu á annarri hæð í Versölum og hefst kl. 20:00. Hefðbundin aðalfundarstörf Stjórn Gerplu Save the Children á Íslandi VERSLUN „Ef það stendur íslenskar lopapeysur, merkt með íslensku fánamerki, þannig að það sé gefið í skyn að þetta sé alíslenskt, þá get ég nú tekið undir að þetta geti virk- að villandi,“ segir Gísli Tryggva- son talsmaður neytenda spurður út í vörumerkingar á lopapeysum. „Ef þetta er bara merkt sem íslensk hönnun og framleitt úr íslenskri ull, get ég ekki fullyrt um að þetta sé eitthvað ólöglegt,“ segir Gísli. „Ef upplýsingar eru gefnar eiga þær náttúrulega að vera réttar, fullnægjandi og þar af leið- andi ekki vill- andi.“ Hann segir almennt að neytendur g e r i m e i r i kröfur um að fá að vita hvar vörurnar séu framleiddar. „Sumir vilja vita hvar varan er framleidd, til að vita við hvaða vinnuskilyrði og umhverfisskil- yrði varan er framleidd,“ segir Gísli. „Við höfum alltaf sagt að ef framleiðendur telja vöruna íslenska, þá er bara ósköp einfalt fyrir þá að segja að hvaða leyti hún er íslensk,“ segir Sigurður B. Halldórsson lögfræðingur hjá Sam- tökum iðnaðarins. Hann vildi þó ekki tjá sig um einstök tilfelli enda fá fyrirtæki sem tengjast málinu aðilar að Samtökum iðnaðarins. Neytendastofa kannar allar ábendingar, en getur ekki gefið svör um málið að svo stöddu. - ktg Neytendur kalla eftir upplýsingum um uppruna lopapeysa í verslunum: Merkingar geta verið villandi GÍSLI TRYGGVASON DÓMSMÁL Friðfinnur Ragnar Sig- urðsson, fyrrverandi millistjór- nandi hjá Glitni, neitaði því fyrir dómi í gær að hafa gerst sekur um tuttugu milljóna króna innherja- svik árið 2008. Ákæra í málinu var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Samkvæmt henni seldi Friðfinnur, sem var forstöðumaður millibanka- markaðar í fjárstýringu bankans, hlutabréf sín í Glitni fyrir samtals tæpar 20,2 milljónir á árinu 2008, fyrst í mars, síðan í apríl og síðast um miðjan september. Fullyrt er í ákærunni að hann hafi í öllum tilvikum búið yfir inn- herjaupplýsingum um slæma lausa- fjárstöðu bankans í krafti stöðu sinnar. Þær hafi einkum borist honum í fjölda tilgreindra tölvu- skeyta frá samstarfsmönnum hans, þar sem farið var yfir lausafjár- stöðu bankans. Þetta er annað innherjasvika- málið sem sérstakur saksóknari höfðar frá bankahruni. Það fyrra var á hendur Baldri Guðlaugssyni, fyrrverandi ráðuneytisstjóra, sem var sakfelldur fyrir 192 milljóna króna innherjasvik og dæmdur í tveggja ára fangelsi. - sh Ákæra á hendur fyrrverandi millistjórnanda hjá Glitni þingfest í héraðsdómi: Kveðst saklaus af innherjasvikum GLITNIR Friðfinnur starfaði sem for- stöðumaður millibankamarkaðar í fjárstýringu Glitnis. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA FASTEIGNAMARKAÐUR Alls var 91 kaupsamningi þinglýst á höfuð- borgarsvæðinu á milli 25. og 31. maí. Á vef Þjóðskrár segir að 65 samningar hafi verið um eignir í fjölbýli, 23 um sérbýli og þrír um aðrar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarvelta var 2.848 milljónir króna og meðalupphæð á samning 31,3 milljónir króna. Fjöldi samn- inga sem og heildarvelta er álíka og á sama tíma í fyrra. Sjö kaupsamningum var þinglýst á Suðurnesjum, sextán á Akureyri og fimm á Árborgarsvæðinu. - þj Fasteignamarkaðurinn: 91 samningi þinglýst á viku Átt þú íslenska lopapeysu? JÁ 70,8% NEI 29,2% SPURNING DAGSINS Í DAG: Er rétt hjá LÍÚ að stöðva veiðar í viku í mótmælaskyni? Segðu þína skoðun á vísir.is. HEILBRIGÐISMÁL Helmingi færri sex ára börn á Íslandi eru of feit nú samanborið við ástandið fyrir tíu árum. Þá var fimmta hvert sex ára barn of feitt en tíunda hvert barn nú. Þetta kom fram í erindi Ingi- bjargar Gunnarsdóttur sem hún flutti á ráðstefnu Samtaka nor- rænna næringarfræðinga sem haldin var á Hotel Nordica í gær. Þar kynnti hún niðurstöður rann- sóknar sinnar á langtímaáhrifum breytinga í mataræði ungbarna, sem ná til tíu ára tímabils. Helstu niðurstöður rannsókn- arinnar eru að tíðni ofþyngdar sex ára barna hefur lækkað úr 20 prósentum í 10 prósent á tíu ára tímabili. Tveir árgangar voru rannsakaðir, sá fyrri fæddur á árabilinu 1995 til 1997 og sá síðari árin 2005 til 2007. „Meðal breytinga sem sjást á mataræði ungbarna milli kann- ana er að prótínneysla við níu mánaða aldur er lægri í seinni ár- gangnum,“ segir Ingibjörg. Hún segir að þetta megi skýra með því að þau drekki minna af kúamjólk. Í fyrirlestri Ingibjargar var bent á að árið 2003 voru nýjar ráð- leggingar til foreldra ungbarna kynntar á Íslandi. Meiri áhersla var lögð á brjóstagjöf, ráðlagt að takmarka neyslu barnanna á venjulegri kúamjólk og sérstök stoðmjólk kynnt til sögunnar. „Mjög háa prótínneyslu mátti útskýra, meðal annars, með mikilli neyslu á venjulegri kúamjólk, allt að tvo lítra á dag meðal 9-12 mán- aða barna,“ segir Ingibjörg. Aðrar rannsóknir hafa sýnt fram á að mikil prótíninntaka á fyrstu árum lífsins getur aukið hættu á offitu síðar í þroskaferli barna. „Strákar sem neyttu mest af prótíni við 9-12 mánaða aldur voru með marktækt hærri líkams þyngdarstuðul við sex ára aldur en drengir sem neyttu minna prótíns,“ segir Ingibjörg. „Fleiri áhrifaþættir gætu spilað inn í þessar niðurstöður en áhrif prótíninntöku eru áhugaverð.“ Inga Þórsdóttir er aðalskipu- leggjandi ráðstefnunnar. Hún segir vinnu rannsóknarhópsins frábæra. „Ísland hefur batnað á rannsóknartímabilinu. Unga full- orðna fólkið er að gera betri hluti við uppeldi barna sinna en það gerði fyrir tíu árum.“ Ráðstefnan var sett í tíunda sinn í Reykjavík í gær, en hún er haldin fjórða hvert ár. Vigdís Finnbogadóttir er verndari ráð- stefnunnar í ár og var hún við- stödd setninguna í gærmorgun. birgirh@frettabladid.is Helmingi færri of feit Hlutfall of feitra sex ára barna í árgöngunum tveimur. 20 15 10 5 % Börn fædd 1995-1997 Börn fædd 2005-2007 Of feitum börnum fækkað um helming Niðurstöður rannsóknar sem kynnt var á ráðstefnu Samtaka norrænna næring- arfræðinga sýna að helmingi færri sex ára börn á Íslandi eru of feit nú en fyrir tíu árum. Minni prótínneysla ungbarna er stór áhrifavaldur segir sérfræðingur. MIKILVÆGT Halldór Ásgrímsson, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar, fjallaði um aðgerðaáætlun nefndarinnar um betri heilsu og lífsgæði á ráðstefnunni í gær. Vigdís Finnbogadóttir er verndari ráðstefnunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.