Fréttablaðið - 05.06.2012, Blaðsíða 18
FÓLK|
minni því ég færði mig yfir í vinstri
hönd og sé eftir að hafa ekki fært
músina til vinstri fyrir löngu því
það er svo miklu eðlilegra í vinnu.“
Skemmtiferð Snorra er ekki fjár-
söfnun heldur hvatning til almenn-
ings um að hreyfa sig meira.
„Víst er erfitt að hjóla hringinn
en miðað við hversu margir geta
ekki hreyft sig og vildu gjarnan vera
með mér er ferðin auð vitað eintóm
skemmtun. Þótt fólk sé heilbrigt í
dag er ekki víst að heilsan endist.
Því er ávinningurinn mun dýr-
mætari en peningar takist mér að
hjálpa einhverjum að standa upp úr
sófanum og byrja að hreyfa sig.“
Snorri er í betra líkamsformi en
margir heilbrigðir jafnaldrar hans.
„Við megum ekki sjúkdóms-
væðast og verðum að hugsa um
heilsuna í stað sjúkdómsins. Það
viðhorf skiptir miklu því heil-
brigðir einstaklingar geta lagst
í kör og orðið sjúklingar af því
einu. Því er ekki í boði annað en
að halda áfram og bjóðist ekkert
betra en sjúkdómurinn verður að
hámarka öll lífsgæði sem bjóðast.“
Parkinsonsveikinni fylgir svefn-
leysi og allt að 40 prósent Parkin-
sonsjúklinga þjást af þunglyndi.
„Ég sef sjaldnast heila nótt en
hreyfing og útivera hjálpa mér að
sofa. Líkamleg þreyta er betri en
andleg og ég vil ná henni fram. Ég
er svo þannig gerður að ég velti
mér ekki upp úr ljótu dögunum en
á náttúrlega mína bömmerdaga. Þá
átti ég líka fyrir. Maður getur verið
rasssíður einn daginn en ekki má
kenna sjúkdómnum um allt.“
Snorri bloggar um dagleiðir sín-
ar á hverjum degi. Best er að fara
á heimasíðu Parkinsonsam takanna
www.parkinson.is og þaðan á
heima- og Facebook-síðu Snorra.
„Ég hvet sem flesta til að fylgjast
með og slást í hópinn hvar sem ég
verð á ferð. Mér er mikils virði að
sjá einhvern bíða mín við afleggj-
ara til að hjóla með mér spöl.
Margir sitja jafnvel fyrir mér, sem
er yndislegt. Það þarf enginn að
vera feiminn; ég verð svo glaður
við samfylgdina. Það þarf heldur
ekki að hjóla 100 kílómetra með
mér; það er nóg að hjóla einn eða
minna, eða bara segja halló. Þá
veit ég að fólk tekur hvatningu
minni um að hreyfa sig meira
og að það kunni að meta það að
vera heilbrigður og hreyfi sig í
virðingar skyni við þá sem geta það
ekki.“ ■ thordis@365.is
■ FRAMHALD AF FORSÍÐU
HEILSA
Jón Ármann Steinsson, hönnuður og rit-
höfundur, er laus við þursabit eftir að hafa
drukkið Alpha Daily. „Hún móðir mín mælti
með þessu við mig og gamla konan vissi
greinilega hvað hún söng því eftir að hafa
drukkið mikið af Alpha Daily á stuttu tímabili
þá var ég laus við þursabitið. Ég lenti í ákveðn-
um vítahring eftir að ég fékk þursabit einu sinni,
þá fór ég að hreyfa mig á rangan máta og fékk
þursabitið aftur og aftur. Alpha Daily mýkti upp
alla vöðva þannig að það var eins og þeir væru
hlýir að innan,“ segir Jón Ármann.
Hann segir drykkinn einnig slá á
svengdar tilfinningu og hefur hann því
grennst. „Ég tek kúra og drekk þá mikið af
Alpha Daily á stuttum tímabilum. Þá get
ég jafnvel sleppt úr máltíðum og narta
ekki eins mikið á milli mála.“
Eplaedik, sem er meginuppi staðan
í Alpha Daily, hefur verið notað í
gegnum aldirnar til að bæta heilsuna.
„Þessi drykkur er í eðli sínu gamall.
Fólk hefur í gegnum aldirnar verið að
blanda drykkinn sjálft en í dag er svo
mikið af kemískum efnum í öllu að
það er erfitt fá rétta virkni úr honum.
Alpha Daily hins vegar er blanda eftir
gömlu uppskriftinni sem virkar,“ segir
Jón Ármann.
Drykkurinn er í glerflöskum sem
má skila til HP Heilsu, Smiðjuvegi
38 í Kópavogi, og fá áfyllingu. Ef sex
flöskum er skilað inn fæst áfylling á
heildsöluverði.
Alpha Daily-drykkurinn fæst á eftir-
töldum stöðum: Hagkaupum, Víði,
Fjarðarkaupum, Kosti, Melabúðinni,
Heilsuhúsinu, Lifandi markaði, Garð-
heimum og Blómavali.
UPPSKRIFT ALPHA
DAILY VIRKAR
HP Heilsa kynnir Jón Ármann Steinsson hefur
notað Alpha Daily-drykkinn í þó nokkurn tíma
og þakkar honum það að vera laus við þursabit
sem plagaði hann.
Við gefum
25% afslátt af
Daywear Sheer Tint og
Daywear BB creme
í dag þriðjudag og
miðvikudag,
Í Lyfju Lágmúla,
Smáratorgi og Selfossi
*meðan birgðir endast
Verð með afslætti kr. 5.242,-
Verð með afslætti kr. 7.496,-
-WU SHU ART
ÍTR NÁMSKEIÐ
KUNG FU
FYRIR BÖRN
OG UNGLINGA
DREKINN
WUSHU FÉLAG REYKJAVÍKUR
Skeifunni 3j · Sími 553 8282
www.heilsudrekinn.is
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ
sem býður auglýsendum að kynna
vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn:
Jónína María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is s 512 5473
Sverrir Birgir Sverrisson
sverrirbs@365.is, s 512 5432
Elsa Jensdóttir
elsaj@365.is s. 512-5427
■ SÓLIN ELDIR HÚÐINA
Sólin kætir og gleður en hún er líka varasöm.
Óhófleg geislun á húðina getur meðal annars
valdið freknum, litabreytingum, öldrunar-
breytingum, hrukkum, frumubreytingum og
húðkrabbameinum. Sólarvörnin skiptir því
miklu og eins getur reynst nauðsynlegt að
klæða sólina af sér og leita í skugga. Þá skiptir
miklu máli að verja börnin fyrir sólinni, þar sem
meirihluti þeirrar geislunar sem fólk verður
fyrir, eða um það bil 80 prósent, verður á
fyrstu tuttugu árum ævinnar.
Heimild: www.landlaeknir.is
PASSA ÞARF BÖRNIN Í SÓLINNI
Sólin er sérstaklega varasöm fyrstu árin.