Fréttablaðið - 05.06.2012, Side 19

Fréttablaðið - 05.06.2012, Side 19
MALBIKUN ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2012 Kynningarblað Þjóðvegir Rannsóknir Heimkeyrslur Jarðgöng Þróunarvinna Hver er forsaga fyrirtæk-isins? „Malbikunar stöðin Hlaðbær-Colas (MHC) byggir á grunni gamla verktaka- fyrirtækisins Hlaðbæjar hf. sem stofnað var 1964. Fyrir tækið verður því brátt hálfrar aldar gamalt. Um miðjan níunda ára- tuginn hafði danska Colas fyrir- tækið áhuga á að hasla sér völl hér á landi og keypti þá Hlaðbæ ásamt því að reisa á þeim tíma fullkomna verksmiðju til framleiðslu á mal- biki. Nýtt fyrirtæki var stofnað árið 1987 sem fékk nafnið Hlað- bær-Colas.“ Hver eru helstu verkefni Colas á Íslandi ? „Okkar sérsvið er framleiðsla malbiks og bik- tengdra afurða til vegagerðar ásamt því að leggja út malbik. Starfsfólk Hlaðbæjar-Colas er stolt af því að nánast öll jarðgöng sem gerð hafa verið síðustu 20 ár eru malbikuð af okkur og sama má segja um stærstu flugvalla- verkefni undanfarna áratugi. Við segjum hér hjá Hlaðbæ- Colas að ekkert verkefni sé of smátt eða of stórt fyrir okkur.“ Er malbik ekki bara malbik? „Ó, nei. Það eru til ótrúlega margar mismunandi gerðir mal- biks sem spanna vítt notkunar- svið. Allt frá ódýru burðarlags- malbiki upp í hágæða malbik með íblöndunarefnum eins og fjölliðum sem bæta styrk þess þar sem mikið mæðir á. Það er ekki verið að nota sama efnið á innkeyrslu við einbýlishús og á gámavinnusvæði á höfninni. Það er mikil vinna sem liggur að baki þróun mismunandi slitlaga. Hins vegar er grunn- urinn einfaldur. Segja má að malbik samanstandi af jarðbiki sex prósent og steinefnum 94 prósent.“ Er einhver þróun í malbiki? „Já svo sannarlega, við höfum, í kjölfar samdráttar í malbiks- framleiðslu í kreppunni, nýtt tímann vel og stóraukið allt þróunarstarf. Við höfum meðal annars skoðað hvernig við getum endurnýtt efni sem fellur til sem annars er urðað. Einnig höfum við leitað leiða til þess að auka arðsemi fjárfestinga verk- kaupans með því að hámarka endingartíma slitlagsins. Eins og sést á vegum landsins hefur fjármagn til vegamála verið skorið gríðarlega niður og er ástand sumra vega slæmt.“ Þú nefndir endurvinnslu, hvað fáist þið einkum við í þeim efnum? „Við höfum síðastliðin 5 ár tekið á móti malbiksafgöngum. Þetta eru mörg þúsund tonn á ári. Endurunnið malbik má nota í allt malbik sem við framleiðum. Einnig höfum við hannað malbik sem inniheldur brotið flöskugler. Rétt er að nefna að við höfum verið í samstarfi við Háskólann í Reykjavík og Nýsköpunarmiðstöð Íslands varðandi ýmsa þróun á slit lögum, til dæmis glermalbikið og súpermalbik.“ Bíddu við, súpermalbik? „Já, við höfum verið að þróa svokallað PMA-malbik og ætlum út í frekari þróun í þessa veru og viljum blanda súpermalbik í sumar sem verður besta malbik sem nokkru sinni hefur verið búið til á Íslandi. Innihaldið er leyndarmál. Einnig erum við að þróa bindiefnið í klæðningarnar (sem eru notaðar á vegum utan höfuðborgarsvæðisins) sem byggir á þeirri reynslu sem við höfum aflað okkur í gegnum áðurnefnda vinnu.“ Eitthvað sem þú vilt bæta við í lokin? „Við elskum malbik!“ Starfsfólk Hlaðbæjar-Colas er stolt af því að nánast öll jarðgöng sem gerð hafa verið síðustu 20 ár eru malbikuð af okkur. Við elskum malbik Malbikunarstöðin Hlaðbær - Colas hefur séð um malbikun nánast allra jarðgangna sem gerð hafa verið á landinu síðustu tuttugu ár. Gunnar Örn Erlingsson, verkefnastjóri hjá MHC, kynnir fyrirtækið. Gunnar Örn Erlingsson, verkefnastjóri hjá MHC, segir fyrirtækið hafa stóraukið þróunarstarf í malbiksframleiðslu. MYND/PJETUR STÆRSTIR Í EINKAREKSTRI Hlaðbær-Colas hf. er stærsta einkarekna malbikunarfyrirtækið á Íslandi. Stærsti keppinauturinn er í eigu Reykjavíkurborgar. LEIÐANDI Í NÝJUNGUM MHC er leiðandi á sínu sviði á Íslandi, í nýjungum og þróun á malbiki og biktengdum afurðum. ENDURVINNSLA OG ÞRÓUN MHC er í fararbroddi við endur- vinnslu og hefur m.a. þróað slitlag úr 100% endurunnu malbiki og flöskugleri. PMAMALBIK PMA-malbik stendur fyrir „poly- mer modified asphalt“ og þýðir fjölliðubætt malbik. Fjölliður eru langar plast/gúmmí-keðjur sem ganga í efnasamband við bikið.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.