Fréttablaðið - 03.07.2012, Page 10
3. júlí 2012 ÞRIÐJUDAGUR10
MEXÍKÓ, AP „Við erum ný kynslóð.
Það verður ekki aftur snúið,“ sagði
Enrico Pena Nieto þegar ljóst þótti
að hann hefði sigrað í forsetakosn-
ingum í Mexíkó á sunnudag með
um það bil 38 prósentum atkvæða.
Nieto er 45 ára gamall og fram-
bjóðandi PRI-flokksins, gamla
Byltingarflokksins sem hefur verið
í stjórnarandstöðu í tólf ár en hafði
þar á undan stjórnað landinu sam-
fleytt í 71 ár.
Sjö áratuga valdatíð Byltingar-
flokksins aflaði honum mikilla
óvinsælda. Stjórnarhættir hans ein-
kenndust af spillingu og kúgun, en
flokkurinn stærði sig engu að síður
af því að hafa byggt upp stofnanir
samfélagsins og almannaþjónustu.
Það var Vicente Fox, þáverandi
leiðtogi hægri manna, sem steypti
Byltingarflokknum af stóli með
stórsigri í forsetakosningum árið
2000.
Vinsældir hægriflokksins PAN
hafa hins vegar dalað mjög á
seinni árum, sem má meðal annars
rekja til þess að efnahagskreppan
2008 bitnaði hart á Mexíkó, auk
þess sem landsmenn eru orðnir
langþreyttir á ofbeldinu í stríði
stjórnvalda gegn gengjum fíkni-
efnasmyglara undanfarinn ára-
tug, sem harðnaði mjög eftir að
Vicente Fox tók við völdum árið
2000. Átökin hafa kostað meira en
50 þúsund manns lífið á síðustu
árum.
Josefine Vazquez Mota, fram-
bjóðandi PAN-flokksins, fékk
aðeins fjórðung atkvæða í for-
setakosningunum, og lenti í þriðja
sæti. Næstflest atkvæði fékk
hins vegar Andrés Manuel Lopez
Obrador, frambjóðandi Lýðræðis-
lega byltingarflokksins, sem er
töluvert lengra til vinstri en PRI-
flokkurinn.
Byltingarflokknum hefur tek-
ist að ná til kjósenda með nýrri
forystusveit af yngri kynslóð-
inni. Auk þess virðast kjósendur
vonast til þess að gamli valda-
flokkurinn geti náð betri tökum á
fíkniefnabarónum, sem flokknum
tókst jafnan að halda sæmilega í
skefjum meðan hann var við völd.
Árangur Nietos og PRI-flokks-
ins varð hins vegar engan veginn
jafn glæsilegur og skoðana-
kannanir höfðu gefið fyrirheit
um fyrir nokkrum vikum. Allt
stefndi í að hann fengi meira en
50 prósent atkvæða í þessum
kosningum, en úrslitin urðu þegar
til kom þau að Nieto fékk um 38
prósent atkvæða.
Hann lét það hins vegar ekki
á sig fá og sagði við fjölmiðla:
„Þetta er bara upphafið að því
verki sem framundan er hjá
okkur.“ gudsteinn@frettabladid.is
Byltingarflokkurinn
kemst til valda á ný
Gamli valdaflokkurinn í Mexíkó, Byltingarflokkurinn, vann sigur í forseta- og
þingkosningum um helgina. Hann hefur verið í stjórnarandstöðu í tólf ár en
snýr nú aftur með nýrri kynslóð forystumanna og fyrirheit um betri tíð.
ENRICO PENA NIETO Sigur hans varð ekki jafn glæsilegur og skoðanakannanir höfðu spáð. NORDICPHOTOS/AFP
FERÐALÖG Vindar og vindhviður skapa ferðalöngum
með húsvagna oft mikla hættu. Dæmi eru árlega
um að húsbílar fjúki af þjóðvegum landsins vegna
strekkings, jafnvel svo að þeir velti og lífi fólks sé
stefnt í hættu. Á landinu eru þjóðvegir þó misvara-
samir.
Sjóvá starfrækir vefsíðu þar sem er að finna
ýmsar nytsamlegar upplýsingar fyrir ferðalanga.
Þar má finna kort yfir vindasama staði og aðvaranir
um hvar vindhraði er meiri en 15 metrar á sekúndu.
Einnig má á kortinu finna almennar vegaupplýsingar
frá Vegagerðinni ásamt þjónustustöðvum og umboðs-
aðilum tryggingafélagsins.
Ef slóðin Sjova.is/vindakort er slegin inn í vafra
tölvu eða snjallsíma opnast gagnvirkt kort sem auð-
velt er að nota sér til upplýsingaöflunar. Mikil vinna
hefur verið lögð í að kortleggja vindasama staði. - bþh
Ferðamenn eru hvattir til að afla sér upplýsinga um ferðaleið við brottför:
Veðurupplýsingar geta forðað slysi
FÓR ILLA Bílstjórinn ók löturhægt en hélt ekki stjórn á bílnum
þegar vindhviða hreif hann með sér svo bíllinn valt. MYND/VÍS
VIÐSKIPTI Hlutabréf í fasteigna-
félaginu Regin, sem meðal
annars á og rekur Smáralind og
Egilshöll, voru tekin til viðskipta
í Kauphöll Íslands í gærmorgun.
Gengi bréfa félagsins stóð í stað í
8,2 í lok dags, en heildarvelta við-
skipta með bréf í félaginu nam
tæplega 40 milljónum á þessum
fyrsta viðskiptadegi. Með Regin
hafa nú tvö ný félög verið skráð á
markað frá hruni, en auk Regins
hefur smásölurisinn Hagar, sem
á og rekur Bónus og Hagkaup,
einnig verið skráður á markað.
Páll Harðarson, forstjóri Kaup-
hallar Íslands segist ánægður
með það umhverfi sem sé að
verða til eftir hrunið, þar sem
eignarhald á fyrirtækjum sé
dreifðara en var fyrir hrun fjár-
málakerfisins og hlutabréfa-
markaðarins, fyrir tæplega
fjórum árum, og konur í ríkara
mæli við stjórnvölinn, en 35 pró-
sent stjórnarmanna í skráðum
félögum á Íslandi eru nú konur.
Til samanburðar er meðaltalið
um 13 prósent í Evrópu, eins og
fram kom í frétt Stöðvar 2 fyrir
tveimur vikum. „Þessar breyt-
ingar eru mjög til bóta að mínu
mati,“ sagði Páll eftir að bjöllunni
hafði verið hringt í Kauphöllinni,
til marks um að viðskipti með
bréf Regins á skráðum markaði
væru formlega hafin.
Landsbankinn, sem átti Regin
að öllu leyti, hefur nú selt tæp-
lega 75 prósent af eign sinni í
félaginu, en er þrátt fyrir það
stærsti eigandi félagsins með
ríflega fjórðungshlut. Meðal
annarra stórra eigenda eru Líf-
eyrissjóður verzlunarmanna
með 8,2 prósenta hlut og Gildi
l ífeyris sjóður með ríf lega
fjögurra prósenta hlut. - mþl
Fasteignafélagið Reginn, sem á og rekur meðal annars Smáralind og Egilshöll, var skráð á markað í gær:
Kauphallarstjóri ánægður með breytt umhverfi
BJALLAN GLYMUR Fjórar konur skipa
fimm manna stjórn Regins. Elín Jóns-
dóttir, Fjóla Þ. Hreinsdóttir, Guðríður
Friðriksdóttir, Hjördís Halldórsdóttir og
Stanley Pálsson. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SVEKKT Francesca Schiavone frá Ítalíu
beit í tennisboltann eftir að henni mis-
tókst að ná honum í leik gegn Petru
Kvitovu frá Tékklandi á Wimbledon-
mótinu í Englandi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP