Fréttablaðið - 03.07.2012, Síða 35

Fréttablaðið - 03.07.2012, Síða 35
ÞRIÐJUDAGUR 3. júlí 2012 31 Sígilda Óskajógúrtin sem enginn verður leiður á. Létta Óskajógúrtin án viðbætts sykurs. Óskajógúrt þjóðarinnar í 40 ár Í gegnum súrt og sætt hefur Óskajógúrt verið kærkominn kostur íslensku þjóðarinnar, hvort sem er í ferðalaginu, á róló, í vinnu, hjá dagmömmu, í vegasjoppunni eða sem morgunmatur heima við. Þín óskastund getur verið hvar sem er. SUND Sundsambandi Íslands bárust í gær þau góðu tíðindi að Jakob Jóhann Sveinsson fengi keppnis- rétt í 100 m bringusundi á Ólympíu- leikunum í Lundúnum sem hefjast þann 27. júlí næstkomandi. Þar með er ljóst að Jakob Jóhann mun keppa á sínum fjórðu Ólympíu leikum frá upphafi og þar með bætast í fámennan hóp íslensks íþróttafólks sem hefur náð þeim árangri. Guðmundur Gíslason sundkappi var fyrstur til að afreka það þegar hann keppti á sínum fjórðu leikum árið 1972. Bjarni Friðriksson náði því árið 1992 og svo Vésteinn Haf steins son fjórum árum síðar. Skíðakappinn Kristinn Björnsson bættist svo í hópinn árið 2002 en hann er sá eini sem hefur náð því sem keppt hefur á vetrarleikunum. Jakob Jóhann er nú við æfingar í Englandi ásamt sex öðrum úr íslenska sundlandsliðinu. Þau eru nú að undirbúa sig fyrir Opna franska meistaramótið um helgina en eftir það fara Ólympíufararnir í æfingabúðir í Canet í Frakklandi. Sem stendur eru fimm íslenskir sundmenn komnir inn á leikana og er Jakob Jóhann eini karlinn. Hörður Oddfríðarson, formaður Sundsambands Íslands, sagði við Fréttablaðið í gær góðar líkur á að Árni Már Árna- son og Anton Sveinn McKee kæmust einnig inn en að það myndi vonandi skýrast í dag. Margir þættir ráða því hverjir komast inn og því erfitt að spá fyrir um það. Reikna má með að endanlegur þátttakenda- listi liggi fyrir þann 9. júlí næstkomandi en þó mun FINA, Alþjóðasund- sambandið, halda því opnu alveg fram að leikunum að bjóða sundfólki þátttöku- rétt ef einhver þátttak- andi skyldi forfallast á síðustu stundu. - esá Jakob Jóhann Sveinsson keppir í London og bætist því í fámennan hóp íslensks íþróttafólks: Keppir á Ólympíuleikum í fjórða sinn JAKOB JÓHANN Þessi þrítugi sundkappi keppti á sínum fyrstu leikum í Sydney árið 2000.HANDBOLTI Nú er orðið ljóst hvernig leikjadagskrá íslenska handboltalandsliðsins verður á Ólympíu leikunum í London en íslensku strákarnir munu spila á tveggja daga fresti. Fyrsti leikur Íslands verður á móti Ameríkumeisturum Arg- en tínu sunnudaginn 29. júlí en tveimur dögum síðar mæta strákarnir Afríkumeisturum Túnis. Fyrstu tveir leikirnir byrja klukkan 8.30 um morguninn að íslenskum tíma en hinir þrír leik- irnir í riðlinum eru síðan seinna um daginn eða á móti Svíþjóð (fimmtudagur 2. ágúst, klukkan 20.15), Frakklandi (laugardagur 4. ágúst, klukkan 18.30) og Bretlandi (mánudagur 6. ágúst, klukkan 15.15). Átta liða úrslitin fara síðan fram miðvikudaginn 8. ágúst. Íslenska landsliðið byrjaði að æfa í gær en Guðmundur Guð- mundsson, landsliðsþjálfari, þarf að tilkynna 14 manna hópinn fyrir lok vikunnar. - óój Handboltalandsliðið á ÓL: Byrja á tveimur morgunleikjum SNORRI STEINN GUÐJÓNSSON Fagnar hér einum af sigrunum á ÓL fyrir fjórum árum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FÓTBOLTI Spánverjinn Andres Iniesta var valinn besti leikmað- urinn á EM í fótbolta en UEFA tilkynnti val sitt í gær. Þetta er annað Evrópumótið í röð sem leikmaður númer átta hjá Spáni er valinn bestur því fyrir fjórum árum spilaði Xavi í treyju númer átta. Xavi og Iniesta, sem hafa alla tíð verið liðsfélagar hjá Barcelona, skiptu um númer fyrir þessa keppni. Iniesta byrj- aði alla sex leiki Spánar á EM og átti frábært mót þrátt fyrir að hafa ekki náð að skora í keppn- inni. Iniesta var síðan einn af tíu Spánverjum sem voru valdir í 23 manna úrvalslið keppninnar. - óój EM í fótbolta gert upp: Iniesta bestur GAMAN Andrés Iniesta fagnar titlinum með félögum sínum. NORDICPHOTOS/AFP Úrvalslið EM 2012: Markmenn: Gianluigi Buffon (Ítalía), Iker Casillas (Spánn), Manuel Neuer (Þýska- land) Varnarmenn: Gerard Pique (Spá), Fabio Coentrao (Portúgal), Philipp Lahm (Þýsk.), Pepe (Port), Sergio Ramos (Spá), Jordi Alba (Spá). Miðjumenn: Daniele De Rossi (Íta.), Steven Gerrard (England), Xavi (Spá.), Andres Iniesta (Spá.), Sami Khedira (Þýsk.), Sergio Busquets (Spá.), Mesut Ozil (Þýsk.), Andrea Pirlo (Íta.), Xabi Alonso (Spá.) Framherjar: Mario Balotelli (Íta.), David Silva (Spá.), Cesc Fabregas (Spá.), Cristiano Ronaldo (Port.), Zlatan Ibrahimovic (Svíþjóð).

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.