Fréttablaðið - 11.07.2012, Síða 2

Fréttablaðið - 11.07.2012, Síða 2
12. júlí 2012 FIMMTUDAGUR2 DÝRALÍF Milljón tonna makrílstofn- inn sem gengur inn í íslenska fisk- veiðilögsögu virðist hafa veruleg áhrif á vistkerfið hér við land. Þorsteinn Þorbergsson, skip- stjóri á hrefnuveiðiskipinu Hrafn- reyði, segir að makríllinn hafi haft mestallt æti af hrefnunni í Faxaflóa svo hún sé farin að leita annað. Hann segist ætla að leita af sér allan grun næstu daga en ef fram heldur sem horfir muni þeir halda til Breiðafjarðar. Ef eins sé ástatt þar verði haldið til hrefnu- veiða í Húnaflóa. Þetta er annað árið í röð sem makríllinn hefur áhrif á veiðihög- un hrefnuveiðimanna. - jse/ sjá síðu 16 Hrefnuveiðar í Faxaflóa: Hrefnan hopar undan makríl SPURNING DAGSINS LANDBÚNAÐUR „Ég er mjög stoltur af hugmyndum þeirra um að láta peninga í þetta verkefni og gera það vel,“ segir Hafberg Þóris- son, eigandi gróðrarstöðvarinn- ar Lambhaga, sem nýkominn er heim frá Kína þar sem hann ráð- lagði heimamönnum um gróður- húsaræktun. Aðstoðarlandbúnaðarráðherra Kína heimsótti Lambhaga í maí. Áður höfðu tvær kínverskar sendinefndir heimsótt Hafberg og gróðrarstöðina hans sem þekkt er fyrir Lambhagasalat. Kínverjarnir buðu Hafberg til heimalands síns og þaðan kom hann í síðustu viku eftir rúmlega viku dvöl, fyrst og fremst í Giy- jong-héraði. „Þar sýndu þeir okkur hvað þeir eru búnir að gera, hvað þá langar til að gera og hvað er á döfinni,“ segir Hafberg og útskýrir að þótt Kínverjar séu óhemjugóðir og tæknilega full- komnir í ræktun hrísgrjóna séu aðferðir þeirra í grænmetisrækt ef til vill ekki nógu afkastamikl- ar og stundum skorti á gæði. „Nú vilja þeir afkastameiri aðferðir og það er mikill hugur í þeim,“ segir Hafberg sem átti góðar viðræður við héraðsstjórn- ina í Giyjong, þar sem stærsta borgin telur 6,5 milljónir íbúa. „Þeir eru mjög velviljaðir því að það sé farið af stað með alvöru verkefni og að það verði gert á sama hátt og hérna hjá mér,“ segir Hafberg. Kínverjarnir hafi aðallega verið að hugsa um salat. „En ég benti þeim líka á að það er svo margt, margt annað sem þeir geta gert.“ Hafberg segir heimsóknina hafa komið sér ánægjulega á óvart. „Þeir eru agaðir og mjög umhugað að gera góða hluti, ekki bara í garðyrkju. Vegir og allir innviðir bera vitni um ofboðs- legan metnað. Það kom mér mjög á óvart hversu vel hlutunum er stjórnað á þessu svæði,“ segir garðyrkjubóndinn. Sjálfur er Hafberg einmitt um þessar mundir að betrum- bæta eigin framleiðslustöð í Lambhaga. Þar á hann í sam- vinnu við danska fyrirtækið Danish Greenhouse Supply sem hann kveður það stærsta í Evr- ópu í framleiðslu tæknibúnaðar í gróðurhús. Danska fyrirtækið taki þátt í verkefninu í Kína og hluti tæknibúnaðarins sé þróað- ur í Lambhaga þar sem salat er ræktað í lokuðu rými með flugna- netum og tölvustýrðri vatnskæl- ingu. „Það er það sem þeir eru að leita að; að geta stjórnað fram- leiðslunni til að fá ákveðið magn og gæði á hvern fermetra,“ segir Hafberg sem á standandi boð um að koma sjálfur til starfa ytra. „Ég er í ágætum málum hérna heima og er ekkert að leita mér að vinnu og benti þeim á að það er til fullt af fólki sem er betra en ég. En ég bauð þeim að vera á hliðarlínunni.“ gar@frettabladid.is Íslenskur salatbóndi leiðbeinir Kínverjum Hafberg Þórisson í Lambhaga er nýkominn frá Kína þar sem hann ráðleggur heimamönnum um gróðurhúsaræktun. Kínverjar leita aðferða til að rækta mikið magn af gæðagrænmeti. Hafberg hreifst af metnaði og aga gestgjafanna. HAFBERG ÞÓRISSON OG LIU YI HUA Hafberg ræddi við stóreignamanninn og fjárfest- inn Liu Yi Hua í Giyjong um hátæknigróðurhús Hafbergs í Reykjavík sem fyrirmynd við uppbyggingu grænmetisræktunar með auknum afköstum og gæðum í Kína. MYND/ÚR EINKASAFNI Arnar Eggert, ertu líka að selja nærbuxurnar þínar? „Já, en bara þær úr vínilnum.“ Arnar Eggert Thoroddsen heldur garðsölu um helgina þar sem hann býður þús- undir vínilplatna til sölu. Þunna pappírs- umslagið sem vínilplötur eru geymdar í er gjarnan kallað nærbuxur. KÁRASTAÐASTÍGUR Smíðað er eftir verðlaunatillögu úr arkitektasamkeppni. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR FRAMKVÆMDIR Gerð nýrrar brautar yfir hyldýpi sem opnaðist við hrun í Almannagjá í fyrra kostar mun meira en samþykktar fjárheimildir gera ráð fyrir. Verja átti 23 millj- ónum króna til verksins. Strax í apríl í vor, áður en framkvæmdir hófust, var sá rammi sprunginn og kostnaðurinn kominn upp í 29 milljónir, eða 26 prósent umfram áætlun. Tafir urðu vegna halla á göngu- brautinni sem ekki var talinn henta fötluðum. Mannvirkjastofn- un sagði hins vegar reglugerð um slíkt aðeins eiga við í þéttbýli. Verið er að smíða gangveginn um Kárastaðastíg þessa dagana. - gar Fram úr á Kárastaðastíg: Kostar meira en fjárheimildir DANMÖRK Óhugnanleg sjón blasti við starfsmönnum í dýragarð- inum í Kaupmannahöfn þegar þeir mættu til vinnu í gærmorg- un. Í búri tígrisdýranna fannst lík manns sem dýrin höfðu rifið í sig um nóttina. Dýrin hringsóluðu um líkið þegar starfsmennirnir mættu. Þeim tókst að hrekja þau á brott og ná líkinu úr búrinu. Lögregla telur allt benda til þess að maðurinn hafi klifrað yfir girðinguna og inn til dýr- anna. Borin voru kennsl á hann síðdegis og reyndist hann vera tvítugur maður frá Afganistan sem fékk danskan ríkisborgara- rétt í síðasta mánuði. Dýragarðurinn var opinn í gær þótt búr tígrisdýranna hafi verið girt af. Ekkert þessu líkt hefur áður hent í 152 ára sögu garðsins. - sh Óhugnaður í Danmörku: Tvítugur mað- ur drepinn af tígrisdýrum Frá kr. 34.950 Ótrúlegt tilboð - Allra síðustu sætin Heimsferðir bjóða nú einstakt tilboð á síðustu flugsætunum til Malaga 17. júlí í 14 nætur. Þú kaupir 2 flugsæti en greiðir aðeins fyrir 1. Við bjóðum þér fjölbreytta gistingu meðan á dvölinni stendur. Verð kr. 34.950 Flugsæti með sköttum, m.v. 2 fyrir 1 tilboð 17. júlí í 14 nætur. Netverð á mann. Verð áður kr.69.900. Verðdæmi fyrir gistingu: kr. 50.300 á mann m.v. tvo fullorðna og tvö börn á Bajondillo 17. júlí í 14 nætur Verð á mann m.v. 2 fullorðna í studio íbúð á Bajondillo kr. 56.200 í 14 nætur. 2 fyrir 1 til Costa del Sol 17. júlí SAMFÉLAGSMÁL Hópur tölvu- þrjóta, Anonymous, hefur nú birt 500 tölvupósta, IP-tölur og heimilisföng hjá fólki sem hópurinn segir hafa verið virka notendur á heimasíðum sem innihalda barnaklám. Á listanum eru meðal annars tölvupóstföng frá Hollandi, Belgíu, Bretlandi og Bandaríkj- unum. Stóran hluta er þó ekki hægt að rekja. Þetta kemur fram á Politiken. Þetta er í annað skiptið sem hópurinn ræðst gegn barnaníð- ingum, en í október á síðasta ári birti hópurinn yfir 1.500 nöfn. - ktg Tölvuþrjótar birta gögn: Birta lista yfir barnaníðinga SPÁNN Ríkisstjórn Spánar kynnti í gær miklar sparnaðaraðgerðir, á meðan þúsundir mótmæltu í Madríd svo að til átaka kom milli mótmælenda og lögreglu. Sparnaðaraðgerðirnar sem forsætisráðherrann Mariano Rajoy kynnti fyrir þinginu í gær eiga að hans sögn að spara 65 milljarða evra á tveimur og hálfu ári. Skattar verða hækkaðir, jólabónusar verða aflagðir í opinbera geiranum og fjárframlög til stjórnmálaflokka, verkalýðsfélaga og sveitar- stjórna verða lækkuð. Þá verða atvinnuleysisbætur skertar ef fólk er atvinnulaust í meira en hálft ár. Rajoy sagði að án þessara aðgerða yrði almanna- þjónusta í hættu. Hann viðurkenndi að skattahækk- anir væru brot á kosningaloforði hans. „Ég sagðist myndu lækka skatta og ég er að hækka þá. Aðstæð- ur breytast og ég verð að aðlagast þeim.“ Námaverkamenn á Spáni hafa mótmælt aðgerðum stjórnvalda harðlega síðustu vikur, en til stendur að lækka niðurgreiðslur til námaiðnaðarins í landinu. Verkalýðsfélög segja að með niðurskurðinum séu 30 þúsund störf sett í hættu. Þúsundir mótmæltu niður- skurði og skattahækkunum með námamönnunum í höfuðborginni Madríd í gær, og rigndi grjóti og flöskum yfir lögreglumenn. Fimm voru handteknir og þrír slösuðust lítillega. - þeb Fjölmenn mótmæli í Madríd sama dag og forsætisráðherra kynnti niðurskurð: Boðar niðurskurð og hækkanir FJÖLMENNT Mótmælendur fjölmenntu í miðborg Madrídar í gær, en upphaf mótmælanna er óánægja námuverkamanna með lægri niðurgreiðslur til greinarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP VEIÐI „Viðureignin var tiltölulega stutt, ekki nema 25 eða 30 mínút- ur. Hann var þungur og allt það en engin læti í honum. Þetta var auð- veldara en ég hélt í fyrstu þegar ég sá hversu stór fiskurinn var,“ segir Björn Magnússon sem veiddi 110 sentimetra lax, sem ætla má að sé 29 pund, við Spegilflúð í Laxá í Aðaldal í gær. „Þetta var mjög skemmtileg viðureign og það ligg- ur við að adrenlínkikkið sé enn þá í manni.“ Hrygnan sem Björn veiddi er stærsti lax sem veiðst hefur í sumar. Stærsti lax sem veiddist í fyrra var 108 sentimetrar en hann veiddist á svipuðum stað, eða við Fossbrún. Orri Vigfússon, leigutaki Laxár í Aðaldal, er búinn að veiða á þess- um stað í ein 45 ár og segir að þarna sé stærstu fiska landsins að finna. „Þetta er einhver magnaðasti staður í veröldinni,“ segir Orri. Eins og gefur að skilja er þetta langstærsti lax sem Björn hefur veitt, tíu pundum þyngri en sá stærsti hingað til. Björn býst ekki við að veiða stærri fisk í náinni framtíð en er þó ekki úrkula vonar. „Við verðum hér til hádegis á morg- un [í dag] svo það er aldrei að vita,“ segir hann og hlær. Risafiskurinn tók fluguna Kolskegg, hnýtta af Stefáni Kristjánssyni. Svo mikið fát var á Birni og Hákon Ólafssyni veiðifélaga hans þegar þeir ætluðu að sleppa fisk- inum að þeir fundu ekki mynda- vélina. Því er engin mynd til af stærsta laxi sumarsins. - kh Björn Magnússon veiddi 110 sentimetra fisk við Spegilflúð í gær sem gæti verið stærsti lax sumarsins: Landaði 29 punda hrygnu í Laxá í Aðaldal RISAFISKUR Þessi fiskur úr Laxá í Aðaldal reyndist 104 sentimetrar en fiskurinn hans Björns var 110 cm. Því miður náðist ekki mynd af ferlíkinu. MYND/ÓSKAR PÁLL SVEINSSON

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.