Fréttablaðið - 11.07.2012, Síða 49
FIMMTUDAGUR 12. júlí 2012 41
bmvalla.is
Vörur okkar eru sérhannaðar fyrir íslenskar aðstæður.
Fáðu tilboð og gerðu verðsamanburð!
Álag á hellur er meira á Íslandi en annars staðar í heiminum
sökum veður- og hitabreytinga. Hjá BM Vallá eru hellur því
steyptar í einu lagi, úr harðari efnum og í viðeigandi þykkt
eftir notkun, og síðan styrkleika- og gæðaprófaðar.
Við bjóðum mikið úrval af hellum, hleðslusteini og garð-
einingum og faglega ráðgjöf við landslagshönnun og val á
hellum. Allar vörur eru afgreiddar fljótt og örugglega.
Hellur eiga að endast lengi og því ber að vanda til verksins
strax í upphafi.
Þess vegna velur fagfólkið BM Vallá.
PI
PA
R\
TB
W
A
·
SÍ
A
·
12
17
00
Fagfólkið
velur BM Vallá
Fagmenn ráðleggja 6 cm þykkar
hellur að lágmarki í bílaplön.6
cm
BM Vallá ehf · Akureyri
Austursíðu 2
603 Akureyri
Sími: 412 5203
sala@bmvalla.is
Opið mán.–fös. kl. 8–17
BM Vallá ehf
Breiðhöfða 3
110 Reykjavík
Sími: 412 5050
sala@bmvalla.is
Opið mán.–fös. kl. 8–18
Opið laugard. kl. 10-14
FÓTBOLTI Karlalið ÍBV og Þórs í
knattspyrnu leika síðari leiki sína
gegn írskum andstæðingum í 1.
umferð forkeppni Evrópudeildar
á heimavöllum sínum í kvöld.
Eyjamenn töpuðu fyrri leik
sínum gegn St. Patrick‘s frá
Dublin á Írlandi ytra 1-0.
„Við vorum alls ekki góðir í
fyrri leiknum, náðum ekki að
spila okkar leik en vonandi náum
við því á heimavelli. Ef það tekst
eru möguleikarnir góðir,“ segir
Þórarinn Ingi Valdimarsson leik-
maður ÍBV.
Veðurblíða ríkir á landinu en
Þórarinn er klár á því hvernig
aðstæður myndu henta ÍBV.
„Það væri auðvitað best fyrir
okkur að fá vind. Ég efast um
að þeir kunni nokkuð á vindinn.
Vonandi verður þurrt því ég held
að þeir spili best ef búið er að
vökva völlinn mjög vel.“
Langþráður Evrópuleikur
Þórsarar, sem leika í næstefstu
deild, eiga góðan möguleika á
sæti í annarri umferð keppninnar
eftir markalaust jafntefli gegn
Bohemians í fyrri leik liðanna á
Írlandi.
„Það er gott veður og góð
stemning í bænum. Maður finnur
að fólk er spennt fyrir þessu.
Þetta er öðruvísi enda langt síðan
að Evrópuleikur var spilaður á
Akureyri,“ segir Sveinn Elías
Jónsson fyrirliði Þórs.
„Við vitum að við þurfum að
eiga góðan leik til þess að eiga
möguleika því liðið er það gott að
það mun refsa okkur ef við miss-
um einbeitingu,“ segir Sveinn
Elías sem telur liðið sambærilegt
að getu við meðallið í efstu deild
á Íslandi.
Flautað verður til leiks á Þórs-
velli klukkan 18.30 og í Eyjum
klukkan 19.30. - ktd
Evrópudeildin í knattspyrnu:
Fínn möguleiki
ÍBV og Þórs
TUÐ Ármann Pétur Ævarsson skiptist á
skoðunum við mótherja í fyrri leiknum.
MYND/DONALL FARMER
DUBLIN Guðmundur Þórarinsson með
boltann í fyrri leiknum. MYND/JAMES CROMBIE
FÓTBOLTI FH-ingar mæta USV
Eschen/Mauren frá Liechten-
stein í síðari viðureign liðanna í 1.
umferð forkeppni Evrópudeildar
ytra í kvöld. FH vann 2-1 sigur í
fyrri leik liðanna í Hafnarfirði þar
sem nóg var af færum en aðeins
tvö sem nýttust.
„Þeir sýndu það heima um dag-
inn að þeir geta alveg leikið sér í
fótbolta. Þeir skoruðu gott mark
og áttu hættulegar skyndisóknir.
Það er alls ekkert vanmat í gangi,“
segir Gunnleifur Gunnleifsson
fyrirliði og markvörður FH-inga.
Gunnleifur, sem spilaði eitt
tímabil með FC Vaduz í Liechten-
stein, segir möguleika FH-inga
góða.
„Það yrðu gríðarleg vonbrigði
ef okkur tækist ekki að komast
áfram í keppninni. Það bíður okkar
mjög skemmtilegt verkefni gegn
gegn Helga Val (Daníelssyni) og
félögum í AIK ef okkur tekst að
komast áfram,“ segir Gunnleifur.
Óvissa ríkir um þátttöku Ólafs
Páls Snorrasonar en aðrir leik-
menn FH eru klárir í slaginn en
leikurinn hefst klukkan 17.30. - ktd
FH-ingar stóra liðið í einvíginu gegn Eschen/Mauren:
Alls ekkert vanmat
ÖLLU VANIR Í EVRÓPUKEPPNUM FH-ingar hafa verið fulltrúar Íslands í Evrópukeppn-
unum síðastliðin níu ár eða frá árinu 2003. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR