Fréttablaðið - 11.07.2012, Page 54
12. júlí 2012 FIMMTUDAGUR46
SUMARFRÍIÐ
Aðsókn á frönsku kvikmyndina Intouchables hefur
aukist um 77 prósent á milli helga og var nauðsynlegt
að færa myndina í stærri sali til að anna eftirspurn.
Samkvæmt Ísleifi Þórhallssyni, markaðs- og deild-
arstjóra viðburðadeildar Senu, hafa um sextán þúsund
manns séð myndina frá því hún var frumsýnd fyrir
fjórum vikum. „Þetta er alveg einstakt. Yfirleitt er
þetta þveröfugt; myndir opna stórt og svo dalar
aðsóknin. Minni myndir halda gjarnan jafn-
ari aðsókn og íslenskar myndir sömuleiðis,
en það er mjög óalgengt að aðsóknin aukist
svona mikið hverja einustu sýningarhelgi.
Ég er búinn að vera lengi í þessum bransa og
man ekki eftir að hafa séð kúrvu sem þessa
áður.“
Ísleifur segir að rekja megi velgengnina til
góðra meðmæla frá áhorfendum sem séu
flestir yfir sig hrifnir af myndinni.
Intouchables hefur leikið sama leik í
fleiri löndum að sögn Ísleifs, en aukning-
in hefur hvergi verið jafn mikil og hér
á landi. Fyrstu sýningarhelgina sáu
innan við þúsund manns myndina,
þá næstu komu rétt rúmlega þúsund
manns og þá þriðju sáu um 1.500
manns myndina. Helgina sem leið
komu svo um 2.700 manns til að njóta myndar-
innar.
„Þetta eru tölur sem maður hefur ekki séð áður
hjá mynd sem sýnd er undir merkjum Græna
ljóssins. Stærsta myndin okkar hingað til var
Ferðalag keisaramörgæsanna sem fékk innan
við fimmtán þúsund áhorfendur,“ segir
Ísleifur að lokum. - sm
Einstök aðsókn á Intouchables
„Nú er ég kominn yfir fertugt og
finnst ekki lengur gaman að bruna
um bæinn í spandex-galla heldur
langar mig að geta hjólað á götu-
hjóli um bæinn og í venjulegum
fötum,“ segir Alexander Schepsky,
doktor í sameindalíffræði og eig-
andi Reiðhjólaverzlunarinnar
Berlin, sem opnar við Snorrabraut
56 í dag.
Verslunin leggur áherslu á klass-
ísk hjól og hjólafatnað en Alexand-
er segir hjólamenninguna á Íslandi
vera á uppleið. „Ég er frá Þýska-
landi og hef alla tíð hjólað mikið.
Þegar ég flutti hingað fyrir fjórtán
árum síðan keypti ég mér fjalla-
hjól eins og allir hinir,“ segir hann.
„Fólk er meðvitaðra um umhverf-
isvernd og mér fannst því sniðugt
að bjóða Íslendingum upp á klass-
ísk borgarhjól og fatnað svo fólk
geti hjólað á fund eða í leikhús án
þess að vera gallað upp.“
Í versluninni fást meðal annars
klassísk götuhjól sem og hand-
smíðuð hjól frá Bretlandi sem
smíðuð eru sérstaklega eftir pönt-
un. Alexander segir borgarhjólin
kosta frá 130 þúsund krónum og
þau sérsmíðuðu frá 200 þúsund
krónum en tekur fram að hjólin
séu lífstíðareign. „Fólk virðist til-
búið til að borga meira fyrir gæða-
hjól sem endist út ævina. Bens-
ín er nú orðið svo dýrt að fólk á
síður tvo bíla og fjárfestir frekar í
góðum hjólum.“
Búðina rekur Alexander í sam-
starfi við vin sinn, Jón Gunnar
Tynes Ólason, sem sér að mestu
um fatadeild verslunarinnar.
Alexander segir þá félaga hvorn
hafa sitt sérsviðið og því sjái Jón
Gunnar um fatadeildina og hann
um hjólin. Þar verður meðal ann-
ars hægt að kaupa vatnsheldar
gallabuxur og skyrtur sem eru
úr efni sem þornar fljótt og því
er svitablettamyndun lítil.
Reiðhjólaverzlunin Berlin
opnar í dag og verður verslun-
in opin frá klukkan 14 til 18 alla
virka daga sem og laugardaga.
Áhugasömum er bent á Facebook-
síðu verslunarinnar.
sara@frettabladid.is
ALEXANDER SCHEPSKY: HJÓLAMENNINGIN Á ÍSLANDI ER Á UPPLEIÐ
Sameindalíffræðingur
selur klassísk reiðhjól
KLASSÍSK HJÓLAVERSLUN Alexander Schepsky og Jón Gunnar Tynes Ólason reka saman Reiðhjólaverzlunina Berlin sem selur
klassísk hjól og hjólafatnað. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Ég var að byrja að vinna
aftur eftir sumarfrí. Ég ætlaði
til London en varð að fresta
ferðinni fram á haust. Ég
byrjaði í ræktinni, fór í mikið
af göngutúrum og sundferðum
og í Nauthólsvík. Síðan eyddi
ég fríinu í að undirbúa möppu
fyrir umsókn í mastersnám.“
Ásgrímur Már Friðriksson,
fatahönnuður.
VINSÆLUST Ísleifur Þórhallsson segir frönsku
myndina Intouchables vera vinsælustu kvikmynd
Græna ljóssins til þessa.
04–11.07.12
Vasabrotsbækur – skáldverk
Vasabrotsbækur – skáldverk
04–11.07.12
„Við Andri verðum saman á flandri.
Ég mun láta lítið fyrir mér fara en
sjást öðru hvoru með gítarinn eða
munnhörpuna,“ segir Kristján Krist-
jánsson, betur þekktur sem tónlistar-
maðurinn KK. Hann heldur á slóðir
Vestur-Íslendinga ásamt Andra Frey
Viðarssyni í nýrri þáttaröð af Andra
á flandri, sem verður tekin upp í lok
mánaðarins.
„Ég er Vestur-Íslendingur, í fullri
alvöru,“ segir Kristján sem fer á
æskuslóðir sínar í upphafi ferðalags-
ins en hann er fæddur í Minneapolis
í Bandaríkjunum. „Þaðan keyrum við
krókaleið upp til Winnipeg og endum á
Gimli-hátíðinni. Hugmyndin er að hafa
mig sem eins konar gjöf til Vestur-
Íslendinga frá Andra en ég spila á
hátíðinni,“ segir hann.
Félagarnir fara af landi brott
24. júlí og keyra um svæðið á pall-
bíl í tvær vikur. KK segir takmark
ferðarinnar vera að kanna hvort
Andri haldi lagi. „Þá semjum við
kannski lag saman,“ segir hann
og bætir við að allt geti gerst í
slíkri ævintýraferð.
KK heldur síðustu tónleika
sína fyrir Ameríkuförina í
dag í Viðeyjarstofu klukkan
átta. Þar mun hann flytja
lagasmíðar sem hafa
ekki hljómað á tónleik-
um hans að undan-
förnu. - hþt
KK fer með Andra til Kanada
FERÐALANGUR KK ferðast
með Andra á slóðir Vestur-
Íslendinga í lok júlí en fyrst
siglir hann á bátnum sínum,
Æðruleysi, til Viðeyjar og flytur
nokkrar perlur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ANDRI FREYR
VIÐARSSON