Fréttablaðið - 16.07.2012, Side 36

Fréttablaðið - 16.07.2012, Side 36
16. júlí 2012 MÁNUDAGUR16 BAKÞANKAR Jóns Sigurðar Eyjólfssonar LÁRÉTT 2. offur, 6. drykkur, 8. mánuður, 9. gilding, 11. tveir eins, 12. kambur, 14. samband, 16. hæð, 17. fiskur, 18. hjör, 20. í röð, 21. seytlar. LÓÐRÉTT 1. bumba, 3. hljóm, 4. billjónasti, 5. óhróður, 7. verkfæri, 10. viður, 13. slagbrandur, 15. gón, 16. árkvíslir, 19. skóli. LAUSN LÁRÉTT: 2. fórn, 6. öl, 8. maí, 9. mat, 11. ðð, 12. burst, 14. félag, 16. ás, 17. áll, 18. löm, 20. aá, 21. agar. LÓÐRÉTT: 1. vömb, 3. óm, 4. raðtala, 5. níð, 7. laufsög, 10. tré, 13. slá, 15. gláp, 16. ála, 19. ma. 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Ég þekki einn Madrídarbúa sem veit fátt skemmtilegra en að villa um fyrir bresku ferðafólki. Ég hef aldrei séð hann jafn hamingjusaman og þegar hann var nýbúinn að senda ferðamenn sem voru að leita að Pradosafninu í lest til Chinchon sem er krummaskuð utan við borgina. ÁSTÆÐAN fyrir þessu gráa gamni er sú að gamli maðurinn fór fullur bjartsýni til Lundúna á áttunda áratugnum. Ætlaði hann að vinna sig upp til metorða á þessum baga- legu tímum þegar Spánverjar voru versti pappírinn í bresku skúffunni. Hvernig sem hann reyndi komst hann aldrei hærra en í stöðu aðstoðaruppvaskara. SJÁLFUR er ég ekki alveg saklaus í þessum efnum. Þannig er mál með vexti að ég vann á menningarsetri í Aþenu þar sem einnig var rekinn veitingastað- ur. Grikkirnir bjuggu svo vel að vera með tvo matseðla, annar var gulur og með háum verðum. Var hann ósjaldan notaður þegar ferðamann bar að garði. Ég hélt mig reyndar glettilega mikið við þann sið kennd- an við heiðarleika. EN DAG EINN kemur svo sænskur hópur sem gerði óspart að gamni sínu þegar ég hafði gert grein fyrir þjóðerni mínu. Fóru þeir þá að biðja um „kókur, vínur og matur“ og svo létu þeir ekki undir höfuð leggjast að spyrja hvort þetta væri þungur hnífur þegar ég lagði á borð. Þá kom guli matseðilinn sér afskaplega vel. SVO HEF ÉG sjálfur verið tekinn í bak- aríið, bæði á Spáni og Grikklandi, af hinum ýmsu þjónustuaðilum sem telja mig hinn mesta heimskingja um leið og ég skýt upp ljósum kolli með bláum augum. Hinu hef ég líka kynnst að vera settur í sérlegan úrvalshóp eftir að ljóst er hvaðan ég kem. Það var á Grænlandi og finnst mér nú að við Íslendingar mættum alveg endur- gjalda þeirri sómaþjóð vináttuhuginn. UM DAGINN sá ég Spánverja í miðbæ Reykjavíkur sem voru að spyrjast fyrir um Þjóðminjasafnið. Mér varð hugsað til vinar míns í Madríd. Síðan til allra spænsku óþokkanna. Ég var farinn að velta því fyrir mér hvaða vagn færi upp í Norðlingaholt en að lokum tók ég Kúlu- súkk á þetta. MIKILVÆGASTA ferðamennska lífsins er ferðin að öðlingnum í sjálfum sér. Þangað er leiðin greið jafnvel þó sumir bregði fyrir mann fæti. Það er nefnilega hægt að húkka sér far með því að halda í stuðarann sem gerði mann glaðan. Taktu Kúlusúkk á þetta Frábært! Sjáðu þetta, Palli! Ég lét húðflúra á mér löppina þannig að það lítur út fyrir að ég sé í skóm. Núna get ég komið berfættur í skólann án þess að nokkur geti gert neitt! Það er tveggja gráðu hiti og slydda úti, Pierce. Já, reyndar. Þetta virðist vera mór- alskur sigur, þó það fari ekki mikið fyrir notagildinu. Slæmt að konan þín sé svona mislynd. Hún er góður málari. Þú ert mjög góð barnapía. Takk, Solla. Þegar okkur líkar við barnapíur ráða foreldrar okkar þær yfirleitt aftur. Það væri frábært! Og að hugsa sér. Aðeins klukkutími af sjónvarpsglápi í viðbót myndi láta okkur líka virkilega vel við þig … Eru þeir byrjaðir að kenna kúgun í grunn- skóla? Nei. Við lærðum það af sjónvarpinu.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.