Fréttablaðið - 16.07.2012, Qupperneq 36
16. júlí 2012 MÁNUDAGUR16
BAKÞANKAR
Jóns
Sigurðar
Eyjólfssonar
LÁRÉTT
2. offur, 6. drykkur, 8. mánuður, 9.
gilding, 11. tveir eins, 12. kambur,
14. samband, 16. hæð, 17. fiskur, 18.
hjör, 20. í röð, 21. seytlar.
LÓÐRÉTT
1. bumba, 3. hljóm, 4. billjónasti, 5.
óhróður, 7. verkfæri, 10. viður, 13.
slagbrandur, 15. gón, 16. árkvíslir, 19.
skóli.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. fórn, 6. öl, 8. maí, 9. mat,
11. ðð, 12. burst, 14. félag, 16. ás, 17.
áll, 18. löm, 20. aá, 21. agar.
LÓÐRÉTT: 1. vömb, 3. óm, 4. raðtala,
5. níð, 7. laufsög, 10. tré, 13. slá, 15.
gláp, 16. ála, 19. ma.
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Ég þekki einn Madrídarbúa sem veit fátt skemmtilegra en að villa um fyrir
bresku ferðafólki. Ég hef aldrei séð hann
jafn hamingjusaman og þegar hann var
nýbúinn að senda ferðamenn sem voru að
leita að Pradosafninu í lest til Chinchon
sem er krummaskuð utan við borgina.
ÁSTÆÐAN fyrir þessu gráa gamni er sú
að gamli maðurinn fór fullur bjartsýni til
Lundúna á áttunda áratugnum. Ætlaði hann
að vinna sig upp til metorða á þessum baga-
legu tímum þegar Spánverjar voru versti
pappírinn í bresku skúffunni. Hvernig
sem hann reyndi komst hann aldrei
hærra en í stöðu aðstoðaruppvaskara.
SJÁLFUR er ég ekki alveg saklaus í
þessum efnum. Þannig er mál með vexti
að ég vann á menningarsetri í Aþenu
þar sem einnig var rekinn veitingastað-
ur. Grikkirnir bjuggu svo vel að
vera með tvo matseðla, annar var
gulur og með háum verðum. Var
hann ósjaldan notaður þegar
ferðamann bar að garði. Ég
hélt mig reyndar glettilega
mikið við þann sið kennd-
an við heiðarleika.
EN DAG EINN kemur
svo sænskur hópur sem
gerði óspart að gamni sínu
þegar ég hafði gert grein fyrir þjóðerni
mínu. Fóru þeir þá að biðja um „kókur,
vínur og matur“ og svo létu þeir ekki undir
höfuð leggjast að spyrja hvort þetta væri
þungur hnífur þegar ég lagði á borð. Þá
kom guli matseðilinn sér afskaplega vel.
SVO HEF ÉG sjálfur verið tekinn í bak-
aríið, bæði á Spáni og Grikklandi, af
hinum ýmsu þjónustuaðilum sem telja mig
hinn mesta heimskingja um leið og ég skýt
upp ljósum kolli með bláum augum. Hinu
hef ég líka kynnst að vera settur í sérlegan
úrvalshóp eftir að ljóst er hvaðan ég kem.
Það var á Grænlandi og finnst mér nú
að við Íslendingar mættum alveg endur-
gjalda þeirri sómaþjóð vináttuhuginn.
UM DAGINN sá ég Spánverja í miðbæ
Reykjavíkur sem voru að spyrjast fyrir
um Þjóðminjasafnið. Mér varð hugsað
til vinar míns í Madríd. Síðan til allra
spænsku óþokkanna. Ég var farinn að
velta því fyrir mér hvaða vagn færi upp í
Norðlingaholt en að lokum tók ég Kúlu-
súkk á þetta.
MIKILVÆGASTA ferðamennska lífsins er
ferðin að öðlingnum í sjálfum sér. Þangað
er leiðin greið jafnvel þó sumir bregði
fyrir mann fæti. Það er nefnilega hægt að
húkka sér far með því að halda í stuðarann
sem gerði mann glaðan.
Taktu Kúlusúkk á þetta
Frábært!
Sjáðu
þetta,
Palli!
Ég lét húðflúra á
mér löppina þannig
að það lítur út fyrir
að ég sé í skóm.
Núna get ég komið berfættur í
skólann án þess að nokkur geti
gert neitt!
Það er tveggja
gráðu hiti og
slydda úti,
Pierce.
Já, reyndar. Þetta
virðist vera mór-
alskur sigur, þó
það fari ekki mikið
fyrir notagildinu.
Slæmt að
konan þín sé
svona mislynd.
Hún er góður
málari.
Þú ert
mjög góð
barnapía.
Takk,
Solla.
Þegar okkur líkar við barnapíur
ráða foreldrar okkar þær yfirleitt
aftur. Það væri
frábært!
Og að hugsa sér.
Aðeins klukkutími
af sjónvarpsglápi í
viðbót myndi láta
okkur líka virkilega
vel við þig …
Eru þeir byrjaðir að
kenna kúgun í grunn-
skóla?
Nei. Við
lærðum það af
sjónvarpinu.