Fréttablaðið - 09.08.2012, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 09.08.2012, Blaðsíða 12
9. ágúst 2012 FIMMTUDAGUR12 12 hagur heimilanna Vörur Kötlu voru yfir leyfilegum mörkum þegar Neytendastofa athugaði þyngd á vörum frá fyrirtækinu. Áður hafði Neytendastofa gert athugasemdir við að vörur fyrirtækisins hefðu verið of léttar. Niðurstöður nú sýna að Katla hefur brugðist við athugasemdunum Neytenda- stofu. Í könnun stofnunarinnar voru þrjár vörutegundir kannaðar, en það voru gróft salt í 1.200 gramma pakkningum, púður- sykur í 1.000 gramma pakkningu og Bónus rasp í 300 gramma pakkningu. Bæði nettóþyngd og meðalþyngd þess- ara vara voru yfir leyfilegum mörkum. ■ Verslun Vörur frá Kötlu orðnar nógu þungar Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 • Akureyri sími: 461 1099 • www.heimsferdir.is B irt m eð fy rir va ra u m p re nt vi llu r. H ei m sf er ð ir ás ki lja s ér r ét t til le ið ré tt in g a á sl ík u. A th . a ð v er ð g et ur b re ys t án fy rir va ra . E N N E M M / S IA • N M 53 62 7 frá aðeins 14.900 kr. Benidorm eða Costa del Sol 14. ágúst 21. ágúst – ótrúleg kjör! Stökktu til Benidorm eða Costa del Sol Frá kr. 79.900 í viku Netverð á mann, m.v. 2–4 í herbergi, studio eða íbúð með einu svefnherbergi. Aukagjald fyrir aukaviku kr. 17.900 á mann. Frá kr.14.900 flugsæti 14. ágúst til Alicante og kr.19.900 til Malaga aðra leiðina með sköttum. Lee Nelson, annar stjórnandi Sirkus Íslands, er á rómantísku nótunum þegar hann er spurður um bestu kaupin sem hann hefur gert. „Bestu kaupin eru demantshringur sem ég keypti handa eiginkonunni í Suður-Afríku. Ég fór þangað í vinnuferð og var með fjórar sýningar á dag í heilan mánuð. Allur peningurinn sem ég vann mér inn fór í hringinn.“ Lee Nelson segir þessum peningum vel varið og hringurinn prýði nú fingur eiginkonunnar. Lee Nelson er svo ekki í vafa um hver bestu kaupin fyrir sirkusinn eru. Það eru páfuglsfjaðrir sem hann segir vera bæði hræódýrar og mikið notaðar. „Við notum páfuglsfjaðrir til að kenna börnum sirkuskúnstir. Það er mjög auðvelt að láta fjaðrirnar ná jafnvægi og þess vegna notum við þær til að þjálfa börn í að láta hluti standa í lófanum á sér eða jafnvel á nef- broddinum,“ segir Lee Nelson. „Ég hugsa að hvert einasta barn á Íslandi hafi prófað að æfa jafnvægis- kúnstir með eina af páfuglsfjöðrunum mínum síðustu sjö árin,“ bætir hann við. Lee Nelson ólst upp í Ástralíu en hann lét ekki hátt hitastig í landinu aftra sér þegar hann gerði verstu kaup lífs síns. „Allra, allra, allra verstu kaup sem ég hef gert, er þykk, vatnsheld, skósíð kápa frá Rússlandi. Ég var á unglingsaldri þegar ég keypti hana og hún var gerð til að þola tuttugu gráðu frost. Ég ólst upp í Ástralíu þar sem 35 stiga hiti er í skugga þannig að ég hafði ekki mikil not fyrir hana. Mér fannst bara hún flott, ég var ungur og kápan dýr,“ segir Lee Nelson. Kápuna á hann reyndar enn þá, en hún er hinum megin á hnett- inum, uppi á lofti í húsi foreldra hans. Versta fjárfestingin fyrir fyrirtækið fór hins vegar í Facebook. „Heimskulegustu kaupin fyrir sirkusinn sem ég hef gert eru auglýsingar á Facebook. Þær voru bæði dýrar og skiluðu mér akkúrat engu.“ NEYTANDINN: LEE NELSON STJÓRNANDI SIRKUS ÍSLANDS Rússneska kápan var léleg fjárfesting ER SÚ HLUTFALLSLEGA VERÐHÆKKUN sem varð á einu kílói af Cheerios-morgunkorni frá maí 2011 til maí 2012.15,7% GOTT HÚSRÁÐ Þvoið lopapeysur sem minnst Margir vilja eflaust fríska aðeins upp á lopapeysurnar sínar, nú þegar seinni hluti sumars gengur í garð. Það er samt varasamt að þvo lopapeysur oft. Þetta er eins og með annan utanyfirfatnað, það á að þvo hann örsjaldan. Sumir halda því fram að fitan í ullinni haldi henni mjúkri og hlýrri og með hverjum þvotti minnki þessi fita. Fáir vita að ullin hreinsar sig að einhverju leyti sjálf og því er oft nóg að viðra lopaflíkur til þess að hressa aðeins upp á þær. Í þau örfáu skipti sem peysurnar eru þvegnar er best að nota lopa- sápu eða aðra ullarsápu. Varist að setja hárvörur eða mýk- ingarefni sem ekki eru ætluð ullarvörum, því peysurnar virðast oft taka meiri lykt í sig en annar fatnaður. Munið svo að skola peysurnar vel og leggja þær til þerris á hand- klæði, því ef þær eru hengdar upp teygjast þær til. www.saft.is RÆDDU UM ÞÁ ÁHÆTTU SEM FYLGIR ÞVÍ AÐ HITTA NETVIN Þægilegt, nett og einfalt eru kjörorðin fyrir vel heppnuð skólatöskukaup. Mikilvægt er að taskan falli að vaxtarlagi barnsins og sé ekki of þung en einnig er brýnt að taskan sé nógu einföld til að börnin ráði við hana. „Mikilvægast er að velja töskur sem börnin ráða við, að þau geti opnað og lokað töskunni og smellt öllum hólfum sjálf. Sumar töskur eru ótrúlega flóknar og sumir nemendur geta ekki opnað tösk- urnar sínar því klemmurnar eru svo stífar. Það er það sem við kennararnir erum að reka okkur á,“ segir Anna Guðrún Harðar- dóttir, umsjónarkennari fyrsta bekkjar í Langholtsskóla. Hún bendir á að börn sem eru að hefja nám í sex ára bekk þurfi ekki stóra tösku. „Hjá okkur eru krakkarnir bara með smá möppu í töskunni, með einu eða tveimur lestrarheftum og svo létta hressingu. Þetta er mjög lítið, þau eru ekki einu sinni með pennaveski,“ segir Anna Guðrún. Á Ísafirði nota börnin heldur ekki mikið pláss í töskunni. „Börnin geyma allt sitt dót í skúffum. Sum eru kannski með einhverja bók, nestið, pennaveski og stundum leikfimisdót. Það er aðallega verið að kenna börnunum að passa sitt,“ segir Jón Heimir Hreinsson, kennari í fyrsta bekk í Grunnskólanum á Ísafirði. Jón Heimir segir best að hafa töskurnar renndar að ofanverðu. „Börnin setja töskurnar oft á stólbökin og og sumar töskur eru þannig að þær eru renndar nánast allan hringinn. Svona töskur vilja oft opnast þannig að dótið flæðir út um allt,“ segir Jón Heimir. Frá sjónarhóli iðjuþjálfans er mikilvægast að finna tösku sem passar á bak barnsins. „Það er í rauninni hægt að líta á val á skólatösku eins og skókaup. Sama taskan hentar ekki öllum og Einfaldar og nettar skólatöskur bestar ■ Skólataska ætti ekki að vera breiðari en efri hluti baks til að hindra ekki hreyfingar hand- leggja. ■ Veljið tösku með bólstruðum axlarólum og helst bólstruðu baki líka. ■ Skólataskan á að hvíla við mjóbakið en á ekki að ná lengra en tíu sentímetra fyrir neðan mitti. ■ Gott er að velja tösku með brjóstól, því hún stuðlar að því að taskan sitji rétt á öxlum og renni ekki út af þeim. Heimild: Leiðbeiningar frá iðjuþjálfum um skólatöskur. Góð ráð Sumir nemendur geta ekki opnað töskurnar sínar því klemmurnar eru svo stífar. ANNA GUÐRÚN HARÐARDÓTTIR KENNARI Í LANGHOLTSSKÓLA hún má ekki vera of stór,“ segir Harpa Ýr Erlendsdóttir iðjuþjálfi. „Í fyrsta lagi þarf taskan að sitja vel á bakinu, hún má ekki hvíla á rassinum eða þrýsta á axlir. Ólarnar þurfa að vera breiðar og bólstraðar og bakið helst líka. Svo þarf að huga að breiddinni á töskunni og lengd- inni líka.“ katrin@frettabladid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.