Fréttablaðið - 09.08.2012, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 09.08.2012, Blaðsíða 54
9. ágúst 2012 FIMMTUDAGUR46 BESTI BITINN Í BÆNUM Ég verð að segja að besti bitinn í bænum sé lambarúllan á Ali Baba. Við í Reykjavík höfum nefnilega verið snuðuð um góðan kebab í áraraðir og nú er loksins búið að bæta úr því. Atli Bollason, kynningarstjóri RIFF. „Að hafa sýninguna utandyra er í ætt við ferða- lagið sjálft og gerir það líka að verkum að fleiri sjá myndirnar,“ segir ljósmyndarinn Baldur Kristjánsson sem opnar ljósmyndasýninguna Austur fyrir fjall á göngugötu Skólavörðustígs í kvöld. Sýningin er sú fyrsta sem Baldur heldur en hann hefur getið sér gott orð sem auglýsinga- ljósmyndari undanfarin ár. Á sýningunni eru fjörutíu ljósmyndir sem Baldur tók á bakpoka- ferðalagi sínu um Asíu fyrir tveimur árum. „Ég kalla þetta „umhverfisportrettmyndir“ af fólki sem varð á vegi mínum í Nepal, Tíbet, Víetnam, Kambódíu og á Indlandi. Myndirnar sýna fólk í sínu náttúrulega umhverfi, eins og það kom mér fyrir sjónir,“ segir Baldur sem hefur látið sér- smíða sérstaka standa fyrir myndirnar svo þær njóti sín sem best í stórri upplausn. „Ég pældi mjög mikið í staðsetningunni áður en ég fann þá réttu en ég er sjálfur að vinna á Skólavörðustíg og finnst hún án vafa vera ein skemmtilegasta gata bæjarins.“ Sýningin verður opnuð í kvöld klukkan 20 en Baldur blæs til opnunarteitis á efri hæðinni á Sólon í tilefni dagsins. „Þessa stundina er ein mynd í uppáhaldi hjá mér en það er mynd sem ég tók á Killing Fields í Kambódíu en þar voru framin hrottaleg fjöldamorð. Þar sá ég litla stelpu hinum megin við girðingu sem horfði inn á svæðið en ég náði að smella af einni mynd áður en hún lét sig hverfa. Þessi mynd situr eftir,“ segir Baldur. Sýningin stendur til 19. ágúst. Eitthvað sem þú vilt koma á framfæri að lokum? „Myndirnar á sýningunni eru til sölu á www.baldurkristjans.is og jú, lengi lifi Þróttur.“ - áp Sýnir afrakstur Asíureisu á Skólavörðustíg FAGRAR MYNDIR Þróttarinn og ljósmyndarinn Baldur Kristjánsson opnar sína fyrstu ljósmyndasýningu utan- dyra á Skólavörðustíg í kvöld. Hér er hann með eina af uppáhaldsmyndum sínum á sýningunni sem tekin var í Kambódíu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON „Hún sendi mér póst í byrjun vik- unnar þar sem hún þakkar mér fyrir að setja myndirnar mínar inn á Facebook svo hún geti stolið þeim. Ég áttaði mig þá á því að hún hlyti að vera vinur minn á Facebook og þá undir öðru nafni þannig ég ákvað að fara í gegn- um vinalistann minn og henda út öllum sem ég þekkti annað hvort lítið eða ekkert. Síðan þá hef ég fengið um fimm vinabeiðnir á dag frá henni og alltaf undir nýju nafni,“ segir María Guð- rún Rúnars dóttir nemandi í ljós- myndun við BTK skólann í Berlín. Ókunnug manneskja er kallar sig Maejapaejapictures á Facebook hefur stolið fjölda mynda Maríu Guðrúnar en segir síðuna vera aðdáendasíðu. Þetta er í annað sinn sem María Guðrún lendir í því að myndum hennar er stolið og þær notaðar af öðrum án leyfis. Fyrir nokkr- um árum var myndum af dóttur hennar stolið af Flickr.com deil- isíðunni og einnig af persónulegu bloggi hennar. „Ég hef haldið úti Flickr síðu í mörg ár en fór að ritskoða efnið sem ég setti þar inn eftir að ég komst að því að það væri verið að stela þeim. Í staðinn byrjaði ég að nota Facebook því mér fannst ég geta fylgst betur með efninu þar, en nú þori ég því ekki nema með enn hertara eftirliti,“ útskýrir hún. Innt eftir því hvort algengt sé að ljósmyndarar verði varir við að fólk sé að stela verkum þeirra segist María Guðrún hafa heyrt af nokkrum dæmum um slíkt. „Ég veit að ein lenti í því að myndum hennar var stolið og þær seldar undir fölsku nafni.“ María Guðrún kveðst ekki vita hvað hægt sé að gera til að koma í veg fyrir áframhaldandi stuld á verkum hennar annað en að fara varlegar. „Ég held að þetta fólk mundi stela myndunum sama þótt þær væru vatnsmerktar á einhvern hátt. Maður verður bara að fara varlega.“ sara@frettabladid.is María Guðrún: Maður verður að fara varlega Glímir við ókunnugan ljós- myndaþjóf á alheimsnetinu TEKST Á VIÐ ÞJÓF María Guðrún Rúnarsdóttir stendur í stappi við ókunnuga mann- eskju sem stelur ljósmyndum hennar af Facebook. Öll brúðhjón fá glæsilega svuntu með nöfnum sínum og brúðkaupsdegi ísaumuðum. Íslensk kennslubók í matreiðslu fylgir. MIKIÐ ÚRVAL BRÚÐARGJAFA FOR THE WAY IT´S MADE Gildir um KitchenAid hrærivélar. „Þetta er svo ríkt í mér og það sem gerir mig hamingjusamasta og það liggur beinast við að rækta garðinn sinn,“ segir söngkonan Védís Her- vör Árnadóttir. Hún flytur eigin tónsmíðar í fyrsta sinn í langan tíma annað kvöld sem gestur Ragn- heiðar Gröndal í tónleikaröð hennar á Café Haiti klukkan hálf tíu. Hún mun leika nýtt efni í bland við lög af plötunni A Beautiful Life: Recovery Project frá árinu 2007 á hljómborð og rödd ásamt eiginmanni sínum Þórhalli Berg- mann. „Við ætlum að flytja glæný lög. Sum eru þriggja ára gömul og önnur urðu til í byrjun árs,“ segir Védís. „Þegar Ragga bauð mér að vera með sló ég til. Þetta var akkúrat tíminn til að koma út úr skápnum með nýja efnið og við flytjum það eins og það kemur beint af kúnni.“ Ragnheiður hyggst halda mánað- arlega tónleika fram að ára mótum til að undirbúa tónleikaferð um Þýskaland en plata hennar Astro- cat Lullaby kemur út í Þýskalandi og víðar 31. þessa mánaðar. Söngkonurnar eru góðar vin- konur og báðar nýbakaðar mæður. „Við höfum verið að hittast í kring- um þetta barnastúss og hún talaði um að hana langaði að spila meira svo ég var svolítið að sparka í rass- gatið á henni,“ segir Ragnheiður og skellir upp úr. Védís hefur lagt stund á líffræði- lega mannfræði og sinnt móður- hlutverkinu undanfarin ár og því lítið getað unnið að sólóferlinum. Hún hyggst þó gera breytingar á og setja tónlistina í fyrsta sætið. „Ég hef verið í góðu samstarfi við lagahöfundateymi í London frá árinu 2003 svo ég hef verið að gera fullt tengt músík,“ segir Védís og Ragnheiður bætir við að þær nái ef til vill að semja lítið lag fyrir tón- leikana. - hþt Védís hefur sólóferilinn að nýju SYNGJA SAMAN Ragnheiður Gröndal og Védís Hervör leiða saman hesta sína á tónleikum á morgun þar sem Védís kemur út úr skápnum með nýtt efni ásamt eiginmanni sínum. FR ÉTTA B LA Ð IÐ /ER N IR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.