Fréttablaðið - 09.08.2012, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 09.08.2012, Blaðsíða 16
9. ágúst 2012 FIMMTUDAGUR16 Umsjón: nánar á visir.is EFNAHAGSMÁL Starfshópur fjármála- ráðuneytisins um málefni Lífeyris- sjóðs starfsmanna ríkisins (LSR) stefnir að því að ljúka vinnu fyrir 1. október. Gunnar Björnsson, skrif- stofustjóri í ráðuneytinu og formað- ur hópsins, segir koma til greina að breyta launakjörum samhliða breyt- ingum á lífeyrisréttindum. Starfshópurinn var skipaður í mars á síðasta ári. Hann á að yfir- fara stöðu LSR og leggja til lausnir á fjárhagsvanda sjóðsins. Starfs- hópnum voru ekki sett nein formleg tímamörk við vinnuna en hins vegar þarf stjórn LSR að taka ákvörðun um mögulegar breytingar á iðgjaldi fyrir 1. október. Því stefnir starfs- hópurinn að því að ljúka vinnu sinni fyrir þann tíma. „Það eru allir sammála um að það þarf að gera breytingar. Stóra spurningin er hvaða breytingar. Það gildir vitaskuld um þetta eins og margt að því fyrr sem menn kom- ast að niðurstöðu, því betra,“ segir Gunnar og heldur áfram: „Við þurf- um meðal annars að horfa til þess að hagsmunir opinberra starfsmanna eru ekki alltaf hinir sömu. Það sem hentar sumum getur skaðað aðra og því er þetta visst púsluspil.“ Þess vegna segir Gunnar að starfshópurinn hafi verið sammála um að líta til starfskjara opinberra starfsmanna í víðu samhengi. „Það er hægt að ímynda sér að gegn breytingum á lífeyrisréttinda- ávinnslu verði launakjörum breytt. Það er ein leið og það er held ég betra að skoða málið svona fremur en að binda okkur við breytingar á réttindum,“ segir Gunnar. Erfið fjárhagsstaða LSR hefur legið fyrir lengi. Samanlagt vantar A- og B-deildir LSR um 430 millj- arða króna til þess að geta staðið við skuldbindingar sínar. Þar af eru 373 milljarðar vegna B-deildar. Hrein eign sjóðsins er aftur á móti tæplega 380 milljarðar. Til að vinna á halla A- deildar hefur stjórn Fjármálaeftirlits- ins (FME) beint þeim tilmælum til stjórnar LSR að iðgjald launa- greiðenda verði hækkað um fjögur prósentustig, úr 15,5% í 19,5%. Þá hefur FME einnig hvatt almennt til þess að dregið verði úr halla í lífeyriskerfinu með því að hækka iðgjöld, skerða réttindi sjóðsfélaga eða hækka lífeyrisaldur. Stjórn LSR hefur hingað til ekki viljað hækka iðgjöld en vænta má að það verði tekið til alvar legrar skoðunar telji starfshópurinn það nauðsynlegt. Til að fara megi að hinum tillögum FME þarf hins vegar að breyta lögum. Til að bregðast við vanda B- deildar mun ríkissjóður hefja sér- stakar aukagreiðslur til sjóðsins svo fljótt sem aðstæður ríkissjóðs leyfa. Var þannig komist að orði í svari Steingríms J. Sigfússonar, þáverandi fjármálaráðherra, við fyrirspurn um stöðu LSR á þingi þann 9. janúar síðastliðinn. Þá kom fram í svarinu að B-deild LSR færi í þrot árið 2025 berist engar frekari aukagreiðslur. Ef hins vegar væri gert ráð fyrir að ríkissjóður greiddi jafna fjárhæð frá og með árinu 2012 þá yrði sú greiðsla að nema 7,8 milljörðum á ári í fjörutíu ár til að rétta af halla sjóðsins. „Eðlilega erum við líka að skoða stöðu B-deildar. Við viljum svara því hvernig greiða megi niður hallann og jafnframt viljum við útbúa greiðsluáætlun,“ segir Gunnar. magnusl@frettabladid.is Öll starfskjör til skoðunar Starfshópur um málefni LSR hyggst ljúka vinnu fyrir 1. október. Hlutverk hópsins er að leggja til lausnir á fjárhagsvanda sjóðsins. Til greina kemur að gera breytingar á starfskjörum opinberra starfsmanna. FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ Stefnt er að því að ríkissjóður hefji á ný sérstakar auka- greiðslur vegna B-deildar LSR á næstunni. Greiðslurnar munu sennilega nema fjölda milljarða á ári. Þá hefur FME lagt til að iðgjöld launagreiðenda vegna sjóðsfélaga í A-deild sjóðsins verði hækkuð um ríflega fjórðung. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM B-deild LSR var lokað árið 1997 og A-deildin þá stofnuð. Í B-deild eru hins vegar skuldbindingar vegna eldri starfsmanna. Glíma báðar deildirnar við fjárhagsvanda en þó af ólíkum meiði. B-deildin er með fullri ábyrgð ríkissjóðs en sjóðurinn var aldrei hugsaður sem fullkominn söfnunar- sjóður. Greiddi ríkissjóður aukalega með sjóðnum frá 1999 til 2008 en eftir bankahrun lögðust greiðslur af. Þó stendur til að hefja þær brátt á ný. Hjá A-deildinni er ábyrgð ríkisins hins vegar óbein. Samkvæmt núgildandi lögum er ekki leyfilegt að skerða réttindi sjóðs- félaga í opinberum lífeyrissjóðum og því er eina leiðin til að laga trygg- ingafræðilega stöðu þeirra sú að hækka iðgjöld. Það er ekki lausn á vanda B-deildarinnar en stjórn LSR ákvarðar árlega iðgjald launagreiðenda vegna framlaga í A-deild þannig að það dugi til greiðslu á skuldbindingum. Stjórninni er þó samkvæmt lögum ekki skylt að hækka iðgjald fyrr en hallinn er orðinn 15% í eitt ár eða 10% í fimm ár. Hallinn er nú 13,1%. Vandi A- og B-deildar ólíkur Vefmiðlun ehf., sem meðal ann- ars á og rekur vefinn amx.is, flutti lögheimili sitt og póstfang að Hádegismóum 2 í Reykjavík nýverið. Þetta kemur fram í til- kynningu til fyrirtækjaskráar sem móttekin var 13. júní síðast- liðinn. Hádegismóar 2 hýsa einnig starfsemi Morgunblaðs- ins, en hluti húsnæðisins hefur verið leigður undir aðra starf- semi. Vefmiðlun ehf. er í eigu Frið- björns Orra Ketilssonar og Arthúrs Ólafssonar til helminga. Friðbjörn Orri er auk þess titl- aður útgefandi AMX-vefjarins. Félagið hagnaðist um 177 þúsund krónur á árinu 2010 samkvæmt síðasta birta ársreikningi. - þsj Vefmiðlun færir lögheimili: AMX flutt í Hádegismóa Eignir lífeyrissjóða landsins drógust lítillega saman í júní síðast liðnum. Þær voru 2.243 milljarðar króna í lok maí en 2.242 milljarðar króna þegar júní var liðinn. Þetta kemur fram í nýjum hagtölum Seðlabanka Íslands sem birtar voru á heima- síðu bankans á þriðjudag. Mestu munar um breytingu á erlendri verðbréfaeign sjóðanna og skýrist það líkast til að mestu af styrkingu íslensku krónunnar, enda eignir þeirra gefnar upp í þeim gjaldmiðli. Innstæður og sjóðir lífeyris- sjóðanna hafa ekki verið hærri frá því í september 2010. Alls voru 161,8 milljarðar króna geymdir með þeim hætti í lok júní síðastliðins. Innstæður jukust um 5,8 milljarða króna í þeim mánuði. Eign sjóðanna í inn lendum h lutabréfum hefur fa r ið hríð vaxandi á undanförnum mán uðum. Um síðustu áramót var virði innlendra hlutabréfa í eigu sjóðanna 106 milljarðar króna. Um þarsíðustu mánaða- mót var virði þeirra hins vegar komið í 143 milljarða króna og hafði því aukist um ríflega þriðj- ung á einungis hálfu ári. – þsj Innstæður lífeyrissjóða ekki verið meiri í tvö ár: Eignir lífeyrissjóða dragast aðeins saman Nýsköpunarstyrkir Landsbankans landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn Markmið nýsköpunarstyrkja Landsbankans er að styðja við frumkvöðla með því að veita þeim tækifæri til að þróa nýja viðskiptahugmynd, eldri viðskipta- hugmynd á nýju markaðssvæði eða nýja vöru eða þjónustu. Nýsköpunarstyrkjum er jafnframt ætlað að styðja við frumkvöðla til kaupa á efni, tækjum eða sérfræði- þjónustu vegna nýsköpunar eða sækja námskeið sem sannanlega byggir upp færni sem nýtist við þróun viðskiptahugmyndar. Styrkupphæðir » 500.000–2.000.000 kr. – styrkir fyrir verkefni sem eru lengra komin. » 200.000–500.000 kr. – styrkir fyrir fyrstu skrefin. Umsóknarfrestur Umsóknarfrestur vegna nýsköpunarstyrkja er til og með 12. september 2012. Dómnefnd er skipuð þremur fagaðilum og tveimur sérfræðingum bankans. Sótt er um styrkina rafrænt á vef bankans, landsbankinn.is. Samfélagssjóður Landsbankans hefur það hlutverk að veita styrki til verðugra verkefna. Árlega eru veittar fimm tegundir styrkja: Afreksstyrkir, námsstyrkir, umhverfisstyrkir, samfélagsstyrkir og nýsköpunarstyrkir. Nánari upplýsingar á landsbankinn.is Landsbankinn styður góðar hugmyndir í atvinnurekstri og veitir allt að 15 milljónum króna í nýsköpunarstyrki árið 2012. VAR FJÖLDI GISTINÓTTA á íslenskum hótelum í júní. Gistinóttum í mánuðinum fjölgaði um 13% milli ára.202.500
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.