Fréttablaðið - 09.08.2012, Síða 36
9. ágúst 2012 FIMMTUDAGUR28
BAKÞANKAR
Jóns
Sigurðar
Eyjólfssonar
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. lýð, 6. kúgun, 8. stúlka, 9. nögl,
11. voði, 12. glæsibíll, 14. matarsam-
tíningur, 16. pot, 17. atvikast, 18. af,
20. tveir, 21. hnappur.
LÓÐRÉTT
1. tónlistarstíll, 3. hljóm, 4. fugl,
5. knæpa, 7. gera óvandlega,
10. skelfing, 13. eldsneyti,
15. jarðefni, 16. tíðum, 19. fisk.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. fólk, 6. ok, 8. mær, 9. kló,
11. vá, 12. kaggi, 14. snarl, 16. ot,
17. ske, 18. frá, 20. ii, 21. tala.
LÓÐRÉTT: 1. rokk, 3. óm, 4. lævirki,
5. krá, 7. klastra, 10. ógn, 13. gas,
15. leir, 16. oft, 19. ál.
Af hverju gengur
ekkert hjá
mér? Ég er ekki
hreyfihamlaður!
Nei, nei
einmitt!
Þú mátt
eiga
það!
Er það vegna
þess að ég er
feitur? Er það-
skeggið? Strætó-
búningurinn?
Gostapparnir?
„Unibrowen“?
Nei
ertu að
djóka?
Alls ekki!
Er það vegna
þess að ég bý
til litla karla
úr naflaku-
skinu mínu?
Þarna
gætiru
verið kom-
inn með
ástæðu!
Björgunarskip-
ið Hörmung úr
eyrnamerg?
Og nú
eru þær
tvær!
Hún
þurfti
síðar að
leita sér
hjálpar
vegna
minnis-
leysis.
...og þarna
endaði
sögutími
Hönnu.
„Á næstu árhundruðum
héldu víkingarnir áfram
að herja á írsk þorp...
...þar sem þeir fengu
yfirleitt á broddinn.“
Ég sagði að ég vildi
mann sem væri
óhræddur við að
sýna tilfinningar
sínar!
Vinkona Siggu,
Anna, ætlar að
gista hjá okkur
í nótt.
Manstu
regl-
urnar?
Já. Ekki elta,
ekki hræða, ekki
njósna, ekki stríða
og ekki pína.
Hár-
rétt.
Leggðu þær allar á ís.
Fáið þið öll
ykkar hús-
gögn í Góða
hirðinum?
Það er sama hvort ég labba um Lauga-veginn eða vappa um Skaga fjörðinn,
ég er farinn að reka upp fagnaðaróp þegar
ég heyri einhvern orða hugsun sína á
okkar ylhýra. Ekki svo að mér þyki er-
lendir ferðamenn leiðinlegir en það er
bara svo ágætt að rekast á Íslendinga, sér-
staklega þegar maður er búinn að hafa
fyrir því að koma sér til Íslands.
REYNDAR hef ég afskaplega gaman af
því að spjalla við ferðamennina og kanna
hug þeirra. Allir eiga það sameiginlegt að
vera afar hrifnir af náttúru landsins og
hneykslaðir á háu verðlagi.
Á SAMA tíma heyrist hljóð úr horni því
blessaðir ferðamennirnir skilja ekki
nógar fjárhæðir eftir sig. Hef ég heyrt
ýmsum hugmyndum kastað til að ráða
bót á því, eins og til dæmis þær að setja
sérstakt gjald á þetta þjakaða lið, lokka
hingað efnaða ferðamenn og búa til
afþreyingu og þjónustu sem hægt
er að verðleggja eftir himinskaut-
um. Með reglulegu millibili
heyrum við líka að ágangur
þessa fólks rýrir náttúru-
perlur okkar eins og Gull-
foss og Geysi en umhverfi
þessara staða verður
gengið niður í svörð ef
ekki er brugðist við.
ÉG ÞEKKI nú mitt heimafólk ágæt-
lega, þó erfitt sé að hitta á það í mann-
þrönginni, og veit því að það er líklegt
til að fara út í svona aðgerðir. Skiptir þá
engu að það er í eðli hvers óbrenglaðs
manns að halda að sér höndum þegar
honum þykir okrað á sér. Það er ekki
af nísku gert heldur er einhvers konar
blygðunar kennd farin að taka í taumana.
EN ÞÁ ætla ég líka að fá að setja fram
eina geggjaða hugmynd sem gæti fallið
vel að svona okurstarfsemi. Ef það á
að fara að leggja meira á þetta góða
fólk þá væri ekki úr vegi að koma upp
áfallahjálp sem allra næst flugvellinum
í Keflavík svo hún finni fólk fljótlega
eftir að það áttar sig á verðlaginu. Svo
að hún falli nú vel að þessum áherslum
mætti hafa þetta rándýra lúxusáfalla-
hjálp.
ÞAÐ er hætt við því að fólk snúi til síns
heima eftir slíkar móttökur og þá er
búið að takmarka ágang á náttúruperlur
vorar verulega. Þar sem við myndum
þá ekki fá frekara tækifæri til að okra
á liðinu setjum við sérstakt gjald á alla
sem fara í þessa áfallahjálp til að bæta
okkur þetta tekjutjón.
ÞESSA hugmynd er ég tilbúinn að selja
yfirvöldum á okurverði, að sjálfsögðu.
Ráð við gjaldeyrisgræðgi