Fréttablaðið - 09.08.2012, Blaðsíða 42
9. ágúst 2012 FIMMTUDAGUR34 34tónlist
TÓNNINN GEFINN
Trausti Júlíusson
tonlist@frettabladid.is
Þátttakendur í Lagalistanum: Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, Kaninn, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum: Skífan, Hagkaup, Penninn/Eymunds-
son, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elkó, tonlist.is
Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is.
Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista
Skýringar:
TÓNLISTINN
Vikuna 2. ágúst - 8. ágúst 2012
LAGALISTINN
Vikuna 2. ágúst - 8. ágúst 2012
Sæti Flytjandi Lag
1 Jón Jónsson .........................................................All, You, I
2 Lykke Li .......................................................I Follow Rivers
3 Helgi Júlíus & Valdimar Guðmundsson .. Þú ert mín
4 Fun ..................................................................Some Nights
5 Fjallabræður & Sverrir Berg .....Þar sem hjartað slær
6 Ásgeir Trausti ................................................. Leyndarmál
7 Sálin hans Jóns míns....................... Hjartadrottningar
8 Jónas Sigurðsson .......................................... Þyrnigerðið
9 Retro Stefson .................................................Fram á nótt
10 Train ....................................... 50 Ways To Say Goodbye
Sæti Flytjandi Plata
1 Of Monsters And Men ............My Head Is An Animal
2 Mannakorn ............................................. Í blómabrekkunni
3 Helgi Björns & reiðm. vindanna ........Heim í heiðard.
4 Sigur Rós..........................................................................Valtari
5 Ýmsir.........................................Pottapartý með Sigga Hlö
6 Brimkló ........................................Síðan eru liðin mörg ár
7 Tilbury ............................................................................Exorcise
8 Ýmsir........................................................................ Pottþétt 57
9 Ýmsir...........................................................................Bara grín!
10 Justin Bieber ................................................................ Believe
Í SPILARANUM
Antony & the Johnsons –
Cut The World
The Flaming Lips – The
Flaming Lips and Heady
Fwends
Brimkló – Síðan eru liðin
mörg ár
Þeir Kenneth Gamble og Leon Huff stofnuðu Philadelphia Inter-
national plötufyrirtækið árið 1971 í Fíladelfíuborg. Það naut mikillar
velgengni á áttunda áratugnum og í upphafi þess níunda. Þekktustu
tónlistarmennirnir hjá PI voru The O‘Jays, Billy Paul, Harold Melvin
and the Blue Notes og Lou Rawls, en fjölmargir aðrir voru á mála hjá
fyrirtækinu. PI var mikilvægasta sálartónlistarútgáfa áttunda ára-
tugarins. Hún starfaði í svipuðum anda og Motown og Stax gerðu á
sjöunda áratugnum, en tónlistin
var fágaðri og meira fínpússuð
útgáfa af sálartónlist með mikilli
áherslu á strengjaútsetningar.
Hún hafði mikil áhrif á popptón-
listarhljóm áttunda áratugarins,
diskóið og danstónlistina.
Mikill meirihluti tónlistar PI
var tekin upp í Sigma Sound-
hljóðverinu og eins og Motown
og Stax hafði PI húshljómsveit
sem spilaði undir hjá hinum
ýmsu listamönnum útgáfunnar.
Það var M.F.S.B. (Mother Father
Sister Brother), sem einnig gaf
út eigin plötur sem margar náðu
vinsældum. Hinn fágaði hljómur
Gambles og Huffs vakti mikla athygli og varð meðal annars til þess
að David Bowie tók plötuna sína Young Americans upp í Sigma Sound
árið 1974.
Fyrir nokkrum vikum gaf Harmless-útgáfan út veglegan 40 ára
afmælispakka með tónlist Philadelphia International. Harmless er
þekktust fyrir ódýrar endurútgáfur af fönki og grúvi, en hér hafa for-
svarsmenn hennar ákveðið að leggja allt undir. Í PI afmælis pakkanum
eru 165 lög á tíu geisladiskum, næstum því þrettán klukkutímar af
tónlist. Það fylgir líka 60 blaðsíðna bók með ýtarlegum upplýsingum
og útgáfulista, skrifuð af Ralph Tee og David Grimes sem báðir eru
á meðal virtustu PI-sérfræðinga heims. Tónlist PI hefur verið marg-
endur útgefin, en þessi nýi afmælispakki er í sérflokki.
Glæsilegur afmælispakki
VEGLEGT Það eru 10 diskar og bók í Phila-
delphia International-pakkanum.
ÖNNUR MÓSEBÓK með Moses Hightower er plata vikunnar ★★★★
„Heilsteypt og flott plata sem gefur snilldarplötunni Búum til börn ekkert eftir.“ - tj
Rafpoppararnir í Passion
Pit sendu frá sér aðra breið-
skífu sína á dögunum en
hafa þurft að aflýsa tón-
leikum vegna slæmrar geð-
heilsu söngvarans.
Bandaríska rafskotna popp-
sveitin Passion Pit sendi frá
sér aðra breiðskífu sína, Gos-
samer, þann 24. júlí og fylgir
nú plötunni eftir með tónleika-
ferð. Þeir hafa þó þurft að aflýsa
nokkrum tón leikum, þar á meðal
í dag og undan farna tvo daga,
vegna slæmrar geðheilsu Micha-
el Angelakos, söngvara sveit-
arinnar. Var hann meðal ann-
ars lagður inn á sjúkrahús fyrir
skemmstu. Tónlistarvefsíðan
Pitchfork fjallaði náið um málið
og sagði 25 ára söngvarann hafa
barist við geðhvarfasýki frá átján
ára aldri og að hún hefði ágerst
eftir skyndilega frægð Passion
Pit með fyrstu breiðskífu sinni.
Með þessa þekkingu í farteskinu
geta hlustendur skilið betur tog-
streituna sem ríkir í tónum sveit-
arinnar, þar sem gleðitónar mæta
þungum hugsunum. Söngvarinn
mun þrátt fyrir allt stíga á svið á
morgun og vonandi í framhaldinu
á ferð um heiminn út árið.
Meðal umfjöllunarefna glimmer-
skreyttra tónsmíða Gossamer eru
áfengisfíkn, sjálfsmorð, geðveiki,
fíkniefni, innflutningur fólks og
efnahagslegur mismunur fólks.
Sem sagt létt og hresst rafpopp
með alvörugefnum textum og
dimmum undirtóni.
Gossamer fylgir fyrri breið-
skífu hljómsveitarinnar Manners.
Sú kom út fyrir þremur árum og
kom sveitinni á kortið á heims-
vísu. Upphaf hljómsveitarinnar
er með ótrúlegasta móti og má
rekja til demóa sem söngvarinn
samdi fyrir þáverandi kærustu
sína og gaf í Valentínusargjöf í
stað súkkulaðihjarta eða rósa-
búnta. Ekki leið svo á löngu þar
til þau náðu eyrum bloggara og
umfangsmikilla umboðsskrif-
stofa árið 2008.
Hljómsveitin var á þessum tíma
eins manns sveit með ferðatölvu
eða þar til núverandi hljóm sveitar-
meðlimurinn Ian Hultquist kom
upp að Angelakos á lágstemmdum
tónleikum hans í Boston og stakk
upp á samstarfi sem nú saman-
stendur af þeim Ayad Al Adhamy,
Jeff Apruzzese og Nate Donmoyer
ásamt fyrrnefndum.
Þrátt fyrir þriggja ára bið eftir
nýrri breiðskífu og slæma geð-
heilsu hefur Angelakos verið
iðinn við kolann og unnið með
Usher og Nelly Furtado ásamt
því að vera eftirsóttur af popp-
fyrirbærum á borð við Britney
Spears. Tónlistin hans hljómar
í umtalaðri lokamynd Twilight-
seríunnar, sem verður frumsýnd
á árinu. Frægðarsól Of Monsters
and Men hefur ekki farið framhjá
Passion Pit sem endurhljóð-
blandaði smellinn Little Talks
nýverið og fer Nanna Bryndís
Hilmarsdóttir söngkona íslensku
sveitarinnar fögrum orðum um
endurhljóðblönduna í viðtali við
tónlistartímaritið Rolling Stones
og sagði þau elska lagið sem væri
skemmtistaðavænt og svalt.
hallfridur@frettabladid.is
Glimmerskreytt geðveiki
AFLÝSTU TÓNLEIKUM Michael Angelakos, söngvari Passion Pit, að syngja nýju rafskotnu popptónana af plötunni Gossamer þann
2. ágúst í Chicago en fyrir og eftir það þurfti sveitin að aflýsa tónleikum. NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES